Innlent

Tveir teknir fyrir ofsaakstur

Tveir menn voru stöðvaði fyrir ofsaakstur á Suðurlandsvegi skammt fyrir austan Selfoss um miðjan dag í gær og reyndist kaupstaðarlykt af öðrum þeirra. Hann hafði mælst á 157 kílómetra hraða og þegar hann var látinn blása í blöðru kom í ljós að hann var ölvaður. Hann á yfir höfði sér háa sekt fyrir hraðakstur og aðra, vart lægri, fyrir ölvunaraksturinn auk þess sem hann missir ökuréttindi í að minnsta kosti eitt ár. Hinn var stöðvaður á sömu slóðum á rétt tæplega 160 kílómetra hraða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×