Innlent

Sex mánaða fangelsisdómur

Maður var dæmdur til sex mánaða fangelsis fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir alvarlegar líkamsárásir á tvo menn á veitingastað í miðbænum sumarið 2003. Hlutu mennirnir báðir slæma áverka enda notaði maðurinn brotna flösku við árásirnar. Var til þess litið við kvaðningu dómsins að ákærði hafði ekki áður komist í kast við lögin og ákvað dómurinn því að skilorðsbinda fimm mánuði af þessum sex til næstu þriggja ára brjóti hann ekki af sér á þeim tíma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×