Innlent

Fimm flutt á spítala

Flytja þurfti fimm manns á spítala á Akureyri eftir útafakstur fólksbíls við Botnastaðabrekku í Vatnsdal. Reyndist fólkið þó ekki alvarlega slasað þegar til kom en óttast var í upphafi að um beinbrot hefði verið að ræða hjá einhverjum þeirra.  Að sögn lögreglu á Blönduósi var bíll fólksins nánast ónýtur og mildi að ekki fór verr. Tildrög slyssins voru ókunn en færð var með ágætum þegar atvikið átti sér stað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×