Innlent

Sjö manns á slysadeild

Sjö manns voru fluttir á slysadeild Landspítalans laust fyrir klukkan tíu í morgun vegna reykeitrunar, brunasára eða annarra meiðsla eftir að íbúð í sambýlishúsi að Rósarima í Grafarvogi varð alelda á svipstundu þegar gaskútur í eldhúsi íbúðarinnar sprakk. Hann tættist í sundur og þeyttust út úr húsinu. Samkvæmt fyrstu upplýsingum mun þó enginn vera lífshættulega slasaður. Fyrst kviknaði eldur í eldhúsinu og tók að loga þar út um glugga en þegar kúturinn sprakk varð allt alelda á svipstundu. Slökkvistarf gekk vel en mikið tjón varð á húsinu og innbúi.
Mynd/Valli
Mynd/Valli
Mynd/Valli
Mynd/Valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×