Innlent

Eldur í timburhúsi á Mýrargötu

Eldur kviknaði í timburhúsi á Mýrargötu á fimmta tímanum í nótt. Þegar slökkvilið kom á staðinn logaði eldur út um glugga á miðhæð hússins. Talið var að einhverjir gætu verið í húsinu og voru reykkafarar sendir inn. Einn maður var í þeim hluta hússins sem eldurinn hafði ekki borist í. Hann var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. Aðrir íbúar hússins voru að heiman. Nokkrar skemmdir urðu á húsinu sökum elds, reyks og sóts.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×