Innlent

Brasilíumanns enn saknað

Leit að Brasilíumanninum, sem hefur verið saknað frá því í gær, hefur enn ekki borið árangur en nú hafa björgunarsveitir orðið að hætta leit á sjó við Stokkseyri. Maðurinn fór í gönguferð frá Eyrarbakka um klukkan tíu í gærmorgun en ekkert hefur til hans spurst síðan. Sýslumaðurinn á Selfossi hefur nú birt mynd af manninum og biður lögreglan á Selfossi alla þá sem kunna að hafa orðið hans varir að láta vita í síma 480-1010. Maðurinn heitir Ricardo Correia Dantas. Hann er 170 til 172 sm á hæð, grannvaxinn með svart hár og stuttklipptur. Hann var klæddur ljósum jakka, með svarta húfu og í svörtum lágbotna íþróttaskóm. Hann kom til Íslands 24. mars síðastliðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×