Lög og regla
60 61 62 63 64 65 66 67 68 … 120 ›
Eldur í húsi að Mánagötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Mánagötu í Reykjavík á fjórða tímanum vegna elds í húsi við götuna. Kona með ungabarn var á heimilinu en þau komust bæði út heil á húfi. Innlent 13.10.2005 19:17
Heyrði kvalafullt öskur Nágranni Sæunnar Pálsdóttur segist hafa heyrt skelfingaröskur og vein í konu á þeim tíma sem morðið á henni á að hafa átt sér stað. Óhljóðin hafi síðan hætt skyndilega eftir þungan dynk. Þetta kom fram í vitnisburði nágrannans við aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær. Innlent 13.10.2005 19:17
Fjöldaslagsmál í Hafnarstræti Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt en mikið af fólki var samankomið í miðbæ höfuðborgarinnar til að skemmta sér. Ekki tókst öllum þó ætlunarverk sitt og var lögreglan kölluð að skemmtistaðnum Ópus í Hafnarstrætinu um sexleytið í morgun þar sem fjöldaslagsmál fóru fram. Alls voru tólf lögreglumenn kallaðir á vettvang og gekk greiðlega að róa lýðinn en enginn meiddist alvarlega að sögn lögreglunnar. Innlent 13.10.2005 19:16
Rólegt hjá lögreglu um land allt Tveir voru stöðvaðir á Akureyri í gærkvöld og nótt grunaðir um ölvun við akstur og tveir á Selfossi. Annars var nóttin tiltölulega róleg hjá lögreglunni um land allt þrátt fyrir að miðbæir víða um land hafi verið fullir af fólki enda mikið af útskriftum og öðrum hátíðarhöldum í gær á þessari björtu og fallegu sumarnótt. Innlent 13.10.2005 19:16
Eldur í undirgöngum í miðbænum Slökkvilið Reykjavíkur kallað að undiröngum við Urðarstíg og Nönnustíg um klukkan hálffjögur í nótt þar sem búið var að kveikja í rusli. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en nokkur hætta myndaðist þó þar sem eldurinn hefði getað náð til íbúðarhúsa í kring, að sögn slökkviliðsins. Innlent 13.10.2005 19:16
Máluðu Vík rauða Lögreglan á Vík í Mýrdal þurfti að hafa talsverð afskipti af gestum á mótorkrossmóti sem þar fór fram.</font /></font /> Innlent 13.10.2005 19:17
Sektaður fyrir að veifa riffli Maður á þrítugsaldri, sem gekk um Akureyrarbæ og veifaði veiðiriffli í júlí í fyrra með þeim afleiðingum að sérsveitin var kölluð út, hefur verið dæmdur í 30 þúsund króna sekt í Héraðsdómi Norðurlands fyrir brot á vopnalögum. Innlent 13.10.2005 19:17
Sótti slasaðan vélsleðamann Vélsleðaslys varð við skálann Jaka á Langjökli um tíuleytið í gærkvöldi þegar maður ók vélsleða fram af um metra hárri snjóhengju. Maðurinn slasaðist það mikið við fallið að læknir í Borgarnesi kallaði þyrlu Landhelgisgæslunnar út. TF-LIF lenti við Borgarspítalann með hinn slasaða um hálftólfleytið í gærkvöld en ekki er unnt að fá upplýsingar um líðan mannsins eða hversu alvarlega slasaður hann er. Innlent 13.10.2005 19:16
Eldur í bifreið í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi fékk tilkynningu um eld í bifreið á Smiðjuveginum um hálffjögurleytið í nótt og var bifreiðin alelda þegar slökkviliðið kom á staðinn. Þá skemmdist einnig lakk bifreiðar við hliðina á þeirri sem kviknaði í mikið. Lögreglan segir eldsupptök vera ókunn en grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Innlent 13.10.2005 19:16
Reyna að hindra löndun Landhelgisgæslan mun reyna að koma í veg fyrir að sjóræningaskipin sem eru að veiðum á Reykjaneshrygg komi afla sínum í verð. Jafnvel kemur til greina að varðskip elti flutningaskip, sem tók við afla frá þeim, hvert sem það fer til að reyna að landa. Gæslan mun jafnframt fylgjast grannt með þeim stóra flota erlendra skipa sem dansar línudans á lögsögumörkunum. Innlent 13.10.2005 19:16
Þrír teknir fyrir ölvunarakstur Þrír voru stöðvaðir í Hafnarfirðinum grunaðir um ölvun við akstur í nótt. Lögreglan segir mennina alla hafa virst töluvert ölvaða og verða þeir allir ákærðir. Enginn þurfti þó að gista fangageymslur lögreglunnar þessa nótt. Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni um land allt, þar á meðal lögreglunni í Reykjavík, og í raun óvenju róleg miðað við árstíma. Innlent 13.10.2005 19:16
Mikill erill hjá lögreglunni Töluverður erill var hjá lögreglunni á Vík í Mýrdal, vegna mótorkrossmóts sem staðið hefur yfir um helgina. Þrjú slys hafa orðið á ökumönnum bifhjóla. Einn ökumaður ökklabrotnaði, annar fór úr axlarlið og sá þriðji slapp með minni háttar meiðsl. Innlent 13.10.2005 19:16
Eitt skipanna reyndist draugaskip Eitt af sjóræningjaskipunum sjö á karfaslóð við lögsögumörkin á Reykjaneshrygg er draugaskip; það er ekki að finna í viðurkenndum skipaskrám. Öll sigla þau hins vegar undir fána Dominíku í Karíbahafinu. Kristján Þ. Jónsson, yfirmaður gæsluframkvæmda, segir verið að kortleggja sjóræningjaveiðarnar og verslun með afla. Innlent 13.10.2005 19:16
Sjö sjóræningjar að veiðum Sjö svokölluð sjóræningjaskip sáust á veiðum á karfaslóð á Reykjaneshrygg í gær þegar flugvél Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir. Sjóræningjaskipin eru togarar sem ekki hafa leyfi til veiða á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar. Innlent 13.10.2005 19:16
Þyrla sækir vélsleðamann Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir tíu í kvöld vegna vélsleðamanns á Langjökli. Þyrlan lagði af stað 24 mínútur yfir tíu. Maðurinn fór fram af stalli og lenti harkalega. Ekki lá fyrir hve alvarlegt slysið var, en um einhvers konar bakáverka var að ræða og rétt þótti að kalla björgunarþyrluna út. Innlent 13.10.2005 19:16
Sjóræningjaskip á Reykjaneshrygg Flugvél Landhelgisgæslunnar sá sjö sjóræningjaskip að veiðum á karfaslóð á Reykjaneshrygg í dag. Skipin eru skráð á smáeyju í Karabíska hafinu. Innlent 13.10.2005 19:16
Sagði eiginkonu hafa viljað deyja Magnús Einarsson, sem ákærður er fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Kópavogi í nóvember í fyrra, sagði fyrir dómi í morgun að hún hefði beðið sig að hjálpa sér að deyja. Hann sagði hana ítrekað hafa sagst vilja deyja eftir að hafa verið honum ótrú. Innlent 13.10.2005 19:16
Endurskoðun hafin Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsti því yfir á fundi með Samtökum um kvennaathvarf, Stígamót og fleiri samtök í gærmorgun að vinna væri hafin við að endurskoða kynferðiskafla almennra hegningarlaga. Innlent 13.10.2005 19:16
Varð bráðkvaddur á báti Maðurinn sem var á bátnum sem hafnaði uppi í fjöru við Stigahlíð í Ísafjarðardjúpi laust fyrir hádegi reyndist látinn þegar björgunarskip komu á vettvang. Samkvæmt lögreglunni í Bolungarvík varð hann bráðkvaddur. Varðskip og tvö björgunarskip fóru á vettvang eftir að það sást í sjálfvirku kerfi tilkynningaskyldunnar að báturinn var kominn upp í fjöru. Báturinn var hann í kjölfarið dreginn til land. Innlent 13.10.2005 19:16
Endurskoða lög um kynferðisbrot Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur falið Ragnheiði Bragadóttir lagaprófessor að semja drög að frumvarpi um breytingar á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Um er að ræða þau ákvæði sem eru um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi. Innlent 13.10.2005 19:16
Björguðu trillu út af Látrabjargi Björgunarsveitin á Patreksfirði bjargaði í morgun sex tonna trillu sem varð aflvana eina og hálfa sjómílu suður af Látrabjargi. Vörður, björgunarbátur félagsins, var kallaður út klukkan sex í morgun og var kominn að bátnum um tveimur klukkustundum síðar og er nú að draga hann til Patreksfjarðar. Innlent 13.10.2005 19:16
Alvarlegt umferðarslys í Hvalfirði Sjúkrabílar og lögregla eru nú á leið í Hvalfjörð, en tilkynnt var um alvarlegt umferðarslys þar. Upplýsingar um slysið eru takmarkaðar en þó er vitað að um árekstur er að ræða. Innlent 13.10.2005 19:16
Miðar við tveggja milljóna árslaun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt að tjón konu, sem var bjargað frá drukknun úr hvolfdri bifreið í Hólmsá árið 2000, sé að fullu bætt með því að miða við tveggja milljóna króna árslaun. Hún gerði kröfu um þriggja milljóna króna viðmið. Konan, sem er tæplega þrítug, hlaut varanlegan heilaskaða og er metin 100 prósent öryrki eftir slysið og getur ekki snúið aftur á almennan vinnumarkað. Innlent 13.10.2005 19:16
Gæsluvarðhaldið framlengt Gæsluvarðhald yfir fylgdarmanni fjögurra kínverskra ungmenna sem komu hingað á leið til Bandaríkjanna á dögunum hefur verið framlengt um viku. Maðurinn er grunaður um skipulagt mansal. Innlent 13.10.2005 19:16
Banaslys í Hvalfirði 24 ára karlmaður beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í morgun. Slysið varð á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman skammt hjá Meðalfellsafleggjara í Hvalfirði, sunnan megin, og var flutningabíllinn á leið inn fjörðinn en fólksbíllinn út. Ökumennirnir voru einir í bílunum og var áreksturinn mjög harður og lést ökumaður fólksbílsins. Innlent 13.10.2005 19:16
Tveggja bíla árekstur í Hvalfirði Sjúkraflutningamenn og lögregla eru enn á slysstað í Hvalfirði þar sem varð alvarlegt umferðarslys laust fyrir klukkan níu í morgun, vestan við Fell í Hvalfirði. Upplýsingar af slysinu eru af skornum skammti en þó er vitað að tveir bílar lentu þar í árekstri. Vegfarendur komast þó um fjörðinn með því að fara Eyrarfellsveg. Innlent 13.10.2005 19:16
Lögbrjótar í þúsundavís Vel yfir fjögur þúsund ökumenn óku hraðar en á 110 kílómetra hraða um Ártúnsbrekkuna í vikunni samkvæmt mælum Gatnamálastofu Reykjavíkurborgar en það er 40 kílómetrum hraðar en leyfilegur hámarkshraði. Innlent 13.10.2005 19:16
Sektaðir fyrir vopnaburð Þrír menn á tvítugsaldri voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir til greiðslu sektar vegna brota á vopnalögum. Mennirnir voru ákærðir fyrir að hafa verið með tvo hnífa með 45 sentímetra blaði og höggvoopn í miðborg Reykjavíkur í apríl í fyrra. Mennirnir voru dæmdir til að greiða hver 30 þúsund króna sekt fyrir vopnaburðinn. Innlent 13.10.2005 19:16
Dæmdar bætur vegna uppsagnar Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða starfsmanni sem sagt var upp á sambýli fyrir fatlaða á Blönduósi árið 1998, 800 þúsund krónur í bætur vegna uppsagnarinnar. Í dóminum segir að manninum hafi verið sagt upp störfum vegna vankunnáttu og trúnaðarbrests á milli starfsmannsins og stjórnenda sambýlisins. Hlaut maðurinn einnig tvær áminningar frá sambýlinu en með dómnum voru þær felldar úr gildi. Innlent 13.10.2005 19:16
Ríkið dæmt til bótagreiðslna Íslenska ríkinu var gert að greiða fyrrverandi starfsmanni á sambýli fatlaðra á Blönduósi 800 þúsund krónur vegna ólöglegrar uppsagnar. Innlent 13.10.2005 19:16