Innlent

Eldur í bifreið í Kópavogi

Lögreglan í Kópavogi fékk tilkynningu um eld í bifreið á Smiðjuveginum um hálffjögurleytið í nótt og var bifreiðin alelda þegar slökkviliðið kom á staðinn. Þá skemmdist einnig lakk bifreiðar við hliðina á þeirri sem kviknaði í mikið. Lögreglan segir eldsupptök vera ókunn en grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Lögreglan í Kópavogi biður því þá sem kunna að hafa einhverjar upplýsingar um málið að hafa samband. Þá voru tveir teknir með lítið af amfetamíni á skemmtistað í bænum um miðnætti. Lögreglan segir mennina þó hafa fengið að fara heim að loknum yfirheyrslum og er málið talið upplýst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×