Innlent

Mál á hendur Ramsey þingfest

Þingfest var í Héraðsdómi Reykjaness í dag ákæra á hendur Scott Ramsey sem varð 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Sló Ramsey manninn í hálsinn hægra megin með þeim afleiðingum að rifa kom á slagæð sem leiddi til mikilla blæðinga milli heila og heilahimnu af völdum höggsins sem leiddi til dauða hans. Einnig er farið fram á bótakröfur á hendur ákærða, ein milljón króna í miskabætur og ein milljón króna í skaðabætur auk greiðslu útfararkostnaðar mannsins að upphæð tæplega 80 þúsund danskar krónur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×