Innlent

Mikill erill hjá lögreglunni

p>Töluverður erill var hjá lögreglunni á Vík í Mýrdal, vegna mótorkrossmóts sem staðið hefur yfir um helgina. Þrjú slys hafa orðið á ökumönnum bifhjóla. Einn ökumaður ökklabrotnaði, annar fór úr axlarlið og sá þriðji slapp með minni háttar meiðsl. Tuttugu ökumenn hafa verið teknir fyrir of hraðann akstur í grennd við Vík. Eitt fíkniefnamál kom upp í gær þegar gestur á tjaldstæði var tekinn með um fjögur grömm af amfetamíni. Töluverður fjöldi fólks er í bænum í tengslum við mótið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×