Heilbrigðismál
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 219 ›
Enginn axli ábyrgð á mistökum sem leiddu til andláts ungra barna Borgarfulltrúi Pírata er hugsi yfir því að forsvarsfólk í heilbrigðiskerfinu hafi ekki viðurkennt mistök og axlað ábyrgð í tveimur tilfellum þegar mjög ung börn létust. Það strái salti í sár syrgjandi foreldra að neitað sér fyrir mistök. Innlent 23.5.2024 11:21
Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Vísindamenn segja mögulega tímabært að leggja lýsispillurnar á hilluna, eða láta þær vera í hillunum, en niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að rekja megi aukna áhættu á gáttatifi og heilablóðfalli til neyslu fiskolíu sem fæðubótarefnis. Erlent 23.5.2024 10:53
Stefna íslenska ríkinu vegna andláts tveggja ára dóttur Foreldrar stúlku sem lést úr Covid-19 fimm klukkustundum eftir að hjúkrunarfræðingur skoðaði hana ætla að stefna íslenska ríkinu. Þrátt fyrir að óháður sérfræðingur telji lækni hafa sýnt af sér vanrækslu í málinu telur landlæknir að brestum í kerfislægum og mannlegum þáttum sé um að kenna. Innlent 22.5.2024 20:08
Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi Nýr samningur milli Sjúkratrygginga og Félags sjúkraþjálfara til fimm ára var undirritaður í dag og staðfestur af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra Innlent 21.5.2024 14:17
Yfirvöld ábyrg fyrir dauða þúsunda einstaklinga sökum mengaðs blóðs Yfir 3.000 manns af 30.000 eru látnir í Bretlandi eftir að hafa fengið „mengað“ blóð eða blóðhluta á árunum 1970 til 1998. Höfundur nýútkominnar skýrslu segir málið áfellisdóm yfir heilbrigðiskerfinu og stjórnvöldum og að draga hefði mátt verulega úr skaðanum. Erlent 21.5.2024 11:44
Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Klínískur næringarfræðingur hefur áhyggjur af stóraukinni notkun þyngdarstjórnunarlyfja hér á landi. Hún þekkir dæmi um að fólk hljóti af þeim alvarlegar aukaverkanir á borð við garnalömun. Þá telur hún lækna sæta mikilli pressu frá skjólstæðingum sínum um að skrifa upp á lyfin. Innlent 19.5.2024 09:42
Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Sérfræðilæknir í meðferð offitu hefur áhyggjur af því að nokkur hópur fólks noti þyngdarstjórnunarlyf án þess að þurfa þau. Með lyfjunum sé hins vegar loksins komin meðferð við offitu og mikil fjölgun notenda þeirra sé aðeins byrjunin á því sem koma skal. Innlent 18.5.2024 13:10
Of þung en annars hraust á Ozempic Íslendingum sem nota sykursýki- og þyngdarstjórnunarlyf hefur fjölgað um rúm sextíu prósent á aðeins sextán mánuðum. Notendur lyfjanna sem fréttastofa hefur rætt við segjast flestir eingöngu á lyfjunum til að léttast en eru hraustir að öðru leyti. Ung kona sem notaði Ozempic segir sligandi kostnað einu ástæðu þess að hún hætti á lyfinu. Innlent 18.5.2024 08:01
Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Landspítali tók á móti 4.500 fleiri sjúklingum á árinu 2023 en árið á undan. Það jafngildi því að spítalinn sinni tólf fleiri einstaklingum á degi hverjum en árið áður. Innlent 17.5.2024 14:01
Bein útsending: Ársfundur Landspítala Ársfundur Landspítala fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag. Fundurinn stendur milli klukkan 14 og 16 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. Innlent 17.5.2024 13:30
Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Í dag höldum við hátíðlegan dag íslenska læknisins 17. maí, á fæðingardegi Bjarna Pálssonar (1719-1779) fyrsta sérmenntaða læknisins á Íslandi. Íslendingar eiga frumkvöðlum á borð við Bjarna Pálssyni mikið að þakka, sem sótt hafa í aldanna rás nýja læknisþekkingu frá virtustu háskólum heims og flutt til Íslands, landi og þjóð til heilla og framdráttar. Skoðun 17.5.2024 07:31
Þörfin fyrir heimilislækna Að geta notið þjónustu heimilislæknis er ein af grunnþörfum okkar allra hvar sem við búum á landinu. Það er ekki síður mikilvægt að fólk hafi aðgang að föstum heimilislækni til að tryggja samfellu í þjónustunni. Skoðun 16.5.2024 14:01
Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Um 77 prósent þjóðarinnar eru hlynnt því að dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi, um fimmtán prósent eru hvorki hlynnt né andvíg og aðeins um sjö prósent eru andvíg. Innlent 15.5.2024 18:40
Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Formaður Félags íslenskra heimilislækna fagnar því að heilbrigðisráðherra sýni í verki vilja til að koma til móts við lækna en vill fleiri og stærri skref. Á dögunum voru drög að reglugerðarbreytum um einföldun á fyrirkomulagi tilvísana fyrir börn birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Innlent 15.5.2024 14:12
Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Sprenging hefur orðið í sölu á megrunarlyfinu Ozempic hér á landi síðustu ár. Seldar pakkningar af lyfinu voru tuttugu og þrisvar sinnum fleiri á mánuði í fyrra en árið 2019. Forstjóri Lyfjastofnunar telur að minnsta kosti tíu þúsund manns noti lyfið á Íslandi. Innlent 15.5.2024 12:06
Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Á undanförnum árum hef ég í starfi mínu sem læknir á Íslandi upplifað að víða er hægt að gera gott heilbrigðiskerfi enn betra. Læknisstarfið er einstakt og innan heilbrigðiskerfisins starfar frábært fólk, en þrátt fyrir það eru fjölmörg þekkt vandamál sem gera það að verkum að þjónusta við sjúklinga verður óskilvirk og álag oft of mikið þannig að langir biðlistar myndast. Skoðun 15.5.2024 10:45
Offita er langvinnur sjúkdómur Langvinnur sjúkdómur er, samkvæmt skilgreiningu, sjúkdómur sem varir í meira en eitt ár, felur í sér þörf fyrir viðvarandi heilbrigðisþjónustu og/eða veldur takmörkun á athafnargetu einstaklings. Skoðun 15.5.2024 10:30
Almenn kvíðaröskun: léttvægt vandamál eða áhyggjuefni? Ég hef gjarnan pirrað mig á því þegar ég heyri heilbrigðisstarfsfólk og aðra ræða um almenna kvíðaröskun sem „almennan kvíða“. Orðið „almennur“ er notað léttúðlega líkt og um sé að ræða léttvægt vandamál sem þarfnast ekki sérstakrar meðhöndlunar. Skoðun 15.5.2024 08:32
Fjarheilbrigðisþjónusta Fjarheilbrigðisþjónusta er heilbrigðisþjónusta sem nýtir stafræna samskipta- og upplýsingatækni þar sem aðilar eru ekki á sama stað á sama tíma. Sem dæmi má nefna myndsímtöl og netspjall. Í dag var samþykkt mikilvægt frumvarp heilbrigðisráðherra sem gekk út á að skilgreina fjarheilbrigðisþjónustu í lögum og styrkja stöðu hennar í nútímasamfélagi. Skoðun 14.5.2024 21:00
Einfaldara fyrirkomulag tilvísana Í gær kom inn lítill og nett tilkynning inn á vef Stjórnarráðsins frá heilbrigðisráðuneytinu. Tilkynningin fjallar um að einfalda eigi tilvísanakerfi fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Það má með sanni segja að tilvísanakerfið hafi sætt nokkurri gagnrýni síðustu misseri, ekki síst frá læknum sem hafa talið það taka frá þeim dýrmætan tíma og valdi óþarfa skriffinnsku. Skoðun 14.5.2024 15:30
Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Helga Vala Helgadóttir, lögmaður konu sem kvartaði til Landlæknisembættisins og Persónuverndar vegna ólögmætra uppflettinga lækna í sjúkraskrá sinni, segir málinu hvergi nærri lokið. Innlent 14.5.2024 13:28
Fjórða læknaferðin endurgreidd Síðustu mánuði hafa margar jákvæðar fréttir borist frá heilbrigðisráðuneytinu. Markvisst er unnið eftir stefnunni jafnt aðgengi, óháð efnahag og búsetu, um það ríkir samstaða í samfélaginu. Það er því fagnaðarefni að nú er verið að fjölga ferðum sem fást endurgreiddar frá Sjúkratryggingum vegna nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu sem sótt er utan heimabyggðar. Skoðun 14.5.2024 08:31
Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn Heilbrigðisráðherra hyggst leggja fram reglugerð til að einfalda fyrirkomulag tilvísana fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Læknar hafa hótað því að hætta að gefa út tilvísanir vegna barna. Innlent 14.5.2024 07:54
Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Notkun lyfjanna Ozempic og Wegovy, sem njóta sívaxandi vinsælda í baráttunni við aukakílóin, virðist draga verulega úr líkunum á hjartaáfalli ef marka má nýja rannsókn. Erlent 14.5.2024 07:22
Má ég taka þátt … í lífinu? Heilbrigðishópur ÖBÍ réttindasamtaka stendur fyrir hádegisfundi um endurskoðun á hjálpartækjahugtakinu 14. maí á Hótel Grand, milli 12:00 og 13:30. Þar mun Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, flytja erindi um hjálpartækjahugtakið og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Skoðun 14.5.2024 07:00
Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sífellt fjölgar í hópi þeirra kvenna sem kjósa að fæða börn án aðkomu heilbrigðiskerfisins. Ljósmóðir hjá Björkinni hefur orðið vör við slíka þróun og segist skilja konur sem taki ákvörðun um að haga fæðingunni á þennan hátt. Innlent 13.5.2024 23:02
Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Kórónuveirufaraldurinn virðist smávægilegur samanborið við þær áskoranir sem mannkynið mun standa frammi fyrir ef þeim bakteríum og veirum heldur áfram að fjölga sem eru ónæmar fyrir lyfjum. Erlent 13.5.2024 08:12
Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir, segir þar til gerða eftirlitsnefnd um rafræna sjúkraskrá hafa hreinsað hann og aðra lækna af sökum að hafa flett upp upplýsingum í sjúkraskrá í andstöðu við lög. Málinu sé lokið og muni ekki hafa afleiðingar fyrir hann. Innlent 12.5.2024 14:53
„Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Formaður Læknafélags Íslands telur að með lögleiðingu dánaraðstoðar hér á landi yrði hlutverki lækna breytt í grundvallaratriðum. Formaður Lífsvirðingar segir að með lögum um slíkt yrði þó ekki lögð skylda á lækna að framkvæma dánaraðstoð. Innlent 12.5.2024 13:50
Um dánaraðstoð Í umsögn LÍ kemur fram að félagið leggst eindregið gegn samþykkt þess frumvarps til laga um dánaraðstoð, sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Þar kemur og fram að stjórn LÍ hefur falið Siðfræðiráði félagsins að efna til málþings um dánaraðstoð á næstunni og þannig beita sér fyrir umræðu um efnið meðal félagsmanna sinna. Skoðun 12.5.2024 11:30