Heimtar 2,5 milljarða í skaðabætur Leikstjórnandinn Tony Parker hjá San Antonio hefur farið í 2,5 milljarða skaðabótamál við vefsíðuna x17 online eftir að hún hélt því fram að hann hefði haldið framhjá konu sinni Evu Longoriu með franskri fyrirsætu. Körfubolti 20. desember 2007 12:32
Ferill Mourning hugsanlega á enda Miðherjinn Alonzo Mourning hjá Miami Heat í NBA kann að hafa spilað sinn síðasta leik á ferlinum í nótt þegar liðið tapaði fyrir Atlanta í framlengdum leik. Mourning meiddist illa á hné og var borinn af velli. Körfubolti 20. desember 2007 10:16
Detroit stöðvaði sigurgöngu Boston Stórlið Detroit Pistons minnti rækilega á sig í NBA deildinni í nótt þegar það færði Boston Celtics fyrsta tapið á heimavelli með 87-85 sigri í Garðinum. Það var Chauncey Billups sem tryggði gestunum sigurinn með vítaskotum innan við sekúndu fyrir leikslok. Körfubolti 20. desember 2007 09:34
Stuðningsmenn Knicks heimta höfuð Thomas Stuðningsmenn New York Knicks eru nú búnir að fá sig fullsadda af vanhæfni þjálfarans Isiah Thomas og hafa skipulagt kröfugöngu í kvöld þar sem þeir krefjast þess að hann verði rekinn tafarlaust. Körfubolti 19. desember 2007 15:40
Michael Jordan æfir með Bobcats Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan er nú búinn að taka fram skóna að nýju og æfir á fullu með liði Charlotte Bobcats í NBA deildinni. Jordan er í stjórn félagsins og ákvað að reyna að efla andann í liðinu með uppátæki sínu, en liðinu hefur gengið afleitlega á síðustu vikum. Körfubolti 19. desember 2007 14:55
Keyrði fullur á afmælisdaginn Harðjaxlinn Charles Oakley sem á árum áður lék með New York Knicks í NBA deildinni hélt full glannalega upp á 44 ára afmælið sitt á dögunum. Hann var handtekinn ölvaður á bíl sínum norðan við Atlanta og þurfti að dúsa þrjá tíma í fangaklefa. Hann sýndi lögreglu þó engan mótþróa og hegðaði sér vel ef marka má frétt New York Daily News. Körfubolti 19. desember 2007 10:11
Lakers lagði Chicago Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. LA Lakers vann góðan sigur á Chicago á útivelli 103-91, en stuðningsmenn Chicago létu þá vera að kalla nafn Bryant eins og þeir gerðu eftir eitt stórtap liðsins í haust. Körfubolti 19. desember 2007 09:33
Fyrsta tap San Antonio á heimavelli Phoenix Suns varð í nótt fyrsta liðið til að leggja San Antonio á heimavelli þess með 100-95 sigri í Texas. Grant Hill skoraði 22 stig fyrir Phoenix en Tim Duncan skoraði 36 stig og hirti 17 fráköst fyrir San Antonio. Körfubolti 18. desember 2007 09:16
Alvaran að byrja hjá Boston Gamla stórveldið Boston Celtics hefur byrjað betur en nokkur þorði að vona í NBA deildarkeppninni í haust og hefur unnið 20 af fyrstu 22 leikjum sínum. Körfubolti 17. desember 2007 13:25
Spilaði fullur allan ferilinn Framherjinn Keon Clark sem lagði skóna á hilluna í NBA fyrir nokkrum árum, viðurkenndi í viðtali á dögunum að hann hefði ekki spilað einn einasta leik í deildinni alsgáður. Körfubolti 17. desember 2007 10:33
Níu sigrar í röð hjá Boston Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Boston vann sinn níunda leik í röð þegar liðið skellti Toronto á útivelli og er það lengsta sigurganga liðsins síðan árið 1993. Körfubolti 17. desember 2007 09:52
NBA í nótt: Dallas vann Houston Dallas Mavericks vann Houston Rockets í NBA-deildinn í nótt en þá fóru fram ellefu leikir í deildinni. Körfubolti 16. desember 2007 10:15
NBA í nótt: Tólfti heimasigur Boston í röð Boston vann í nótt sinn tólfta heimasigur í röð þegar fór illa með Milwaukee Bucks og vann öruggan sigur, 104-82. Körfubolti 15. desember 2007 09:00
Dallas - New Orleans í beinni á Sýn í kvöld Leikur Dallas Mavericks og New Orleans Hornets í NBA deildinni verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn laust eftir klukkan eitt í nótt. Hér er um að ræða einvígi tveggja af sterkustu liðunum í Vesturdeildinni. Körfubolti 14. desember 2007 20:06
NBA í nótt: Lakers vann vængbrotið lið Spurs Hvorki Tim Duncan né Tony Parker voru með San Antonio Spurs í nótt sem tapaði þó naumlega fyrir LA Lakers. Körfubolti 14. desember 2007 08:44
Tinsley ræður lífvörð Bakvörðurinn Jamaal Tinsley hjá Indiana Pacers í NBA deildinni hefur ákveðið að ráða sér lífvörð eftir að hafa orðið fyrir skotárás fyrir nokkrum dögum. Körfubolti 13. desember 2007 18:55
NBA í nótt: Fimmti tapleikur Utah í röð Utah Jazz tapaði sínum fimmta leik í NBA-deildinni í nótt er það tapaði fyrir Phoenix Suns, 103-98. Körfubolti 13. desember 2007 08:50
Hardaway látinn fara frá Miami Framherjinn Penny Hardaway var í dag leystur undan samningi sínum við Miami Heat í NBA deildinni og því er útlit fyrir að endurkomu þessa 36 ára gamla leikmanns sé lokið. Körfubolti 12. desember 2007 20:05
NBA í nótt: LeBron með og Cleveland vann Cleveland vann sinn fyrsta sigur í sjö leikjum í NBA-deildinni í nótt er liðið lagði Indiana, 118-105. LeBron James var með eftir að hafa jafnað sig af meiðslum og skoraði sautján stig. Körfubolti 12. desember 2007 09:01
700 milljóna sátt hjá New York Sátt hefur náðst í máli fyrrum starfsmanns NBA félagsins New York Knicks á hendur forráðamanna félagsins og Isiah Thomas vegna meintrar kynferðislegrar áreitni þjálfarans. Anucha Sanders, fyrrum yfirmaður hjá félaginu, fær ríflega 700 milljónir króna út úr sáttinni. Körfubolti 11. desember 2007 17:51
NBA í nótt: Wade gekk frá Suns í Phoenix Dwayne Wade skoraði tíu af sínu 31 stigi á síðustu fjórum mínútunum gegn Phoenix Suns og tryggði Miami Heat sigur, 117-113, í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 11. desember 2007 08:56
NBA í nótt: Bosh leiddi Toronto til sigurs Chris Bosh sneri aftur í lið Toronto í nótt eftir fimm leikja fjarveru vegna meiðsla. Hann leiddi sína menn til sigurs gegn Houston, 93-80. Körfubolti 10. desember 2007 09:35
Howard skoraði 47 stig í sigri Dallas Framherjinn Josh Howard var í miklu stuði í nótt þegar Dallas skellti Utah Jazz 125-117 í skemmtilegum í Dallas. Howard setti persónulegt met með því að skora 47 stig fyrir heimamenn, sem höfðu tapað 6 af síðustu 9 leikjum sínum. Körfubolti 9. desember 2007 06:08
Ginobili óstöðvandi Argentínumaðurinn Manu Ginobili fór hamförum annan leikinn í röð hjá San Antonio í nótt þegar liðið hafði sigur gegn Utah Jazz 104-98 í uppgjöri liðanna sem léku til úrslita í Vesturdeildinni í vor sem leið. Körfubolti 8. desember 2007 11:40
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn á miðnætti í kvöld. Liðin eru almennt talin tvö af þeim bestu í Austurdeildinni í NBA en staða þeirra er þó afar ólík eftir fyrsta mánuðinn í deildarkeppninni. Körfubolti 7. desember 2007 15:46
Shaq er orðinn reiður Miðherjinn Shaquille O´Neal er orðinn hundleiður á því að vera kallaður of gamall og lét blaðamenn heyra það eftir enn eitt tap Miami Heat í nótt. Hann segir slaka tölfræði sína að hluta til félögum sínum í liðinu að kenna. Körfubolti 7. desember 2007 13:52
Knicks er enn verðmætasta félagið í NBA Forbes hefur nú birt lista sinn yfir verðmætustu félögin í NBA deildinni og þar situr New York Knicks í efsta sæti þrátt fyrir ólgutíð undanfarin ár. Knicks er líka með mestu veltuna í deildinni, en hagnaður þess hefur þó snarminnkað milli ára. Körfubolti 7. desember 2007 11:12
Denver skellti Dallas Þrír leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Denver gerði sér lítið fyrir og skellti Dallas á útivelli 122-109. Allen Iverson skoraði 35 stig og gaf 12 stoðsendingar hjá Denver en Dirk Nowitzki skoraði 32 stig og hirti 12 fráköst hjá Dallas. Körfubolti 7. desember 2007 09:10
Kidd í verkfalli? Leiksstjórnandinn Jason Kidd hjá New Jersey Nets spilaði ekki með liði sínu þegar það tapaði fyrir grönnum sínum í New York í NBA deildinni í nótt. New York Post heldur því fram að Kidd sé í verkfalli vegna samningadeilna við forráðamenn félagsins. Körfubolti 6. desember 2007 13:15
Ginobili sá um Dallas - Iverson skoraði 51 stig Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Argentínumaðurinn Manu Ginobili fór mikinn í fjarveru Tim Duncan þegar San Antonio lagði Dallas á heimavelli 97-95. Körfubolti 6. desember 2007 10:00