Fótbolti

Amanda lagði upp í dýr­mætum sigri og Kol­beinn nær toppnum

Sindri Sverrisson skrifar
Amanda Andradóttir lagði upp mark fyrir Twente í dag.
Amanda Andradóttir lagði upp mark fyrir Twente í dag. Getty

Landsliðskonan Amanda Andradóttir var á sínum stað í liði Twente í dag þegar það vann mikilvægan 3-2 sigur gegn Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Með sigrinum komst Twente upp að hlið Feyenoord en liðin eru í 4.-5. sæti með 14 stig og á Twente leik til góða. Liðin eru fimm stigum á eftir toppliði Ajax sem hefur leikið sjö leiki líkt og Twente.

Twente komst þrívegis yfir í leiknum í dag. Ella Peddemors, leikmaður U23-landsliðs Hollands, skoraði fyrsta markið og Amanda lagði svo upp mark Jaimy Ravensbergen þegar Twente komst í 2-1 eftir hálftíma leik.

Feyenoord náði aftur að jafna fyrir hálfleik en Sophie te Brake, önnur U23-landsliðskona frá Hollandi, skoraði sigurmark Twente snemma í seinni hálfleik.

Kolbeinn á bekknum eftir meiðsli

Í hollenska karlaboltanum var landsliðsmaðurinn Kolbeinn Birgir Finnsson mættur aftur á bekkinn hjá Utrecht eftir meiðslin sem komu í veg fyrir að hann gæti verið með Íslandi í leikjunum við Svartfellinga og Walesverja í Þjóðadeildinni.

Kolbeinn kom hins vegar ekkert við sögu í dag, í 2-1 sigri Utrechte á NEC Nijmegen á útivelli.

Eftir sigurinn er Utrecht með 31 stig í 2. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar, fimm stigum á eftir PSV og með leik til góða.

Alexandra kom inn á gegn Milan

Á Ítalíu kom Alexandra Jóhannsdóttir inn á sem varamaður og lék síðasta korterið fyrir Fiorentina, í 2-2 jafntefli við AC Milan á heimavelli. 

Fiorentina tókst því ekki að endurheimta 2. sæti deildarinnar af Cecilíu Rán Rúnarsdóttur og stöllum í Inter, en er með 23 stig eftir ellefu leiki. Inter er með stigi meira og Juventus á toppnum með 26 stig og leik til góða við Como síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×