Fótbolti

Tekjur Wrex­ham í hæstu hæðum

Siggeir Ævarsson skrifar
Þeir Rob McElhenney og Ryan Reynolds hafa heldur betur snúið við fjárhagnum hjá Wrexham
Þeir Rob McElhenney og Ryan Reynolds hafa heldur betur snúið við fjárhagnum hjá Wrexham Vísir/Getty

Ársreikningur Wrexham fyrir tímabilið 2023-24 hefur verið birtur og hafa tekjur félagsins aldrei verið meiri, eða 26,7 milljónir punda, sem er aukning um 155 prósent frá tímabilinu á undan.

Rúmlega helmingur þessarar upphæðar á uppruna sinn utan Evrópu og þá sérstaklega í N-Ameríku, en vinsældir liðsins hafa rokið upp á heimsvísu í kjölfar heimildaþáttanna Welcome to Wrexham sem sýndir eru á Disney Plús streymisveitunni.

Liðið fær engar beinar tekjur af þáttunum en vinsældir liðsins á heimsvísu og athyglin sem þættirnir hafa fært því hafa aukið auglýsingatekjur þess á milli ára um tæpar tólf milljónir punda.

Þrátt fyrir þessa miklu aukningu í innkomu hjá Wrexham var liðið rekið með 2,73 milljón punda tapi á síðasta tímabili, samanborið við tap upp á 5,11 milljón punda tímabilið áður, en félagið greiddi m.a. rúmar 15 milljónir til baka til lánadrottna og eigendanna Ryan Reynolds og Rob McElhenney.

Uppgangur Wrexham hefur verið ævintýri líkastur og er liðið í góðum séns að komast upp um deild þriðja tímabilið í röð en liðið situr í 2. sæti ensku C-deildarinnar þegar þetta er ritað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×