Fótbolti

Hvorki zombie-bit né tattú

Sindri Sverrisson skrifar
Jes Odgaard skartaði stórum rauðum hring aftan á hálsinum í leik gegn Venezia um helgina.
Jes Odgaard skartaði stórum rauðum hring aftan á hálsinum í leik gegn Venezia um helgina. Samsett/Getty/Skjáskot

Þeir sem horfðu á leik Venezia og Bologna í ítölsku A-deildinni í fótbolta um helgina furðuðu sig á risastórum rauðum hring aftan á hálsi Danans Jens Odgaard, leikmanns Bologna.

Bologna vann leikinn 1-0 og heldur áfram sinni miklu siglingu í átt að Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð á meðan að Mikael Egill Ellertsson og Bjarki Steinn Bjarkason urðu að sætta sig við tap. Mikael spilaði leikinn en Bjarki var á bekknum hjá Venezia.

Það sem vakti hins vegar mesta athygli í leiknum var hálsinn á Odgaard. Netverjar kepptust við að giska á hvaða rauði hringur þetta væri á hálsinum og veltu fyrir sér hvort Daninn hefði verið bitinn af uppvakning eða fengið sér óvenjulegt tattú.

„Hvað í fjandanum er á hálsinum á þér?“ spurði einn á Instagram-síðu Odgaard og þar útskýrði leikmaðurinn málið:

„Þetta eru bara einhver lyf sem ég þarf að nota fyrir hálsinn. Ekkert alvarlegt,“ sagði Odgaard og lét fylgja með skellihlæjandi broskalla.

Odgaard hefur spilað 31 leiki fyrir Bologna á tímabilinu, skorað sex mörk og lagt upp þrjú. Liðið situr í 4. sæti A-deildarinnar, stigi fyrir ofan Juventus, eftir að hafa unnið fimm deildarleiki í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×