Spánn heimsmeistari í fyrsta sinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. ágúst 2023 12:04 Spánverjar eru heimsmeistarar kvnna í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögunni. Catherine Ivill/Getty Images Spánverjar eru heimsmeistarar kvenna í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögunni eftir 1-0 sigur gegn Englendingum í úrslitaleik HM í Sydney í dag. Þrátt fyrir að lítið hafi verið skorað var leikurinn hin mesta skemmtun og augljóst að mikið var undir. Englendingar fengu fyrsta almennilega færi leiksins þegar Lauren Hemp fékk boltann inni á teig og lét vaða, en skot hennar small í þverslánni. Liðin skiptust á að sækja næstu mínútur, en á 29. mínútu leiksins stálu þær spænsku boltanum inni á miðsvæðinu og komu sér á ógnarhraða í átt að vítateig Englendinga. Mariona Caldentey renndi þá boltanum innfyrir á Olgu Carmona sem setti hnitmiðað skot meðfram jörðinni í fjærhornið, 1-0. 🇪🇸 @7OlgaCarmona always delivering when it matters most. pic.twitter.com/9ceas0t3SF— FIFA Women's World Cup (@FIFAWWC) August 20, 2023 Spánverjar voru svo hársbreidd frá því að tvöfalda forystuna fyrir hálfleikshléið þegar Salma Paralluelo setti boltann í stöngina. Inn fór hann þó ekki og staðan því 1-0, Spánverjum í vil, þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Enska liðið færði sig framar á völlinn í síðari hálfleik til að freista þess að finna jöfnunarmarkið. Eftir rúmlega klukkutíma leik fóru Spánverjar þó í sókn sem endaði með því að Kiera Walsh var dæmd brotleg inni í teig fyrir að handleika knöttinn eftir langa skoðun myndbandsdómara. Jennifer Hermoso fór á punktinn fyrir spænska liðið, en Mary Earps var eins og köttur í markinu, fleygði sér í vinstra hornið, greip boltann og hélt enska liðinu á lífi. Mary. Earps. pic.twitter.com/K8t1dAS6iW— FIFA Women's World Cup (@FIFAWWC) August 20, 2023 Englendingar reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn, en þétt vörn spænska liðsins gaf engin færi á sér. Eftir rúmlega 13 mínútna uppbótartíma var að lokum flautað til leiksloka og úrslitin voru ráðin. Spánverjar sigruðu leikinn 1-0 og eru heimsmeistarar kvenna í fyrsta sinn í sögunni. SPAIN ARE WORLD CHAMPIONS!!! 🇪🇸#BeyondGreatness | #FIFAWWC pic.twitter.com/x4liWtvgpN— FIFA Women's World Cup (@FIFAWWC) August 20, 2023 Fótbolti HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Spánn