Hrun í seinni hálfleik og tímabilið er búið hjá Drekunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. apríl 2015 18:45 Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson. Vísir/Valli
Sundsvall Dragons er úr leik í úrslitakeppni sænska körfuboltans eftir 19 stiga tap á útivelli á móti deildarmeisturum Södertälje Kings, 104-85. Södertälje Kings vann undanúrslitaeinvígi liðanna 4-1 og er þar með komið í úrslitaeinvígið um sænska meistaratitilinn. Sundsvall Dragons var í fínum málum í hálfleik en leikur liðsins hrundi í seinni hálfleiknum sem tapaðist með 27 stiga mun. Hlynur Bæringsson var með 14 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar, Jakob Örn Sigurðarson skoraði 11 stig og Ægir Þór Steinarsson var með 2 stig og 4 stoðsendingar. Ragnar Nathanaelsson skoraði ekki. Sundvall var fimm stigum undir eftir fyrsta leikhlutann en átti mjög góðan annan leikhluta sem liðið vann 26-13. Hlynur Bæringsson endaði fyrri hálfleikinn á því að skella niður þrist og Sundsvall-liðið var 59-51 yfir í hálfleik. Södertälje Kings skoraði 11 af fyrstu 13 stigum seinni hálfleiksins og Sundsvall þurfti að taka leikhlé eftir tæpar fjórar mínútur. Södertälje var komið í 15-2 í þriðja leikhluta þegar Hlynur skoraði körfu og minnkaði muninn í 66-63. Södertälje Kings liðið var hinsvegar komið í gírinn og var komið sex stigum yfir fyrir lokaleikhlutann eftir að hafa unnið þriðja leikhlutann 26-12. Lítið breyttist í lokaleikhlutanum og Södertälje vann á endanum mjög öruggan sigur.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Ætla að sniðganga leikinn við Víking Fótbolti Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira