Körfubolti

Tryggvi Snær í riðla­keppni Evrópu­bikarsins

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tryggvi Snær í leik með Bilbao á síðustu leiktíð.
Tryggvi Snær í leik með Bilbao á síðustu leiktíð. Borja B. Hojas/Getty Images

Spænska körfuknattleiksliðið Bilbao Basket er komið í riðlakeppni Evrópubikarsins eftir gríðarlega öruggan sigur á Neptunas frá Litáen í báðum leikjum liðanna.

Bilbao vann góðan sigur í fyrri leik liðanna og átti ekki í neinum vandræðum með gestina frá Litáen í kvöld, lokatölur 95-59.

Spænska liðið Bil­bao tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni Evr­ópu­bik­ars­ins í körfu­bolta með sann­fær­andi hætti. Tryggvi Snær spilaði stundarfjórðung í kvöld, skoraði átta stig, tók fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

Deildarkeppnin á Spáni hefst á sunnudaginn kemur. Bilbao fær þá Breogán í heimsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×