Öll Íslendingaliðin töpuðu í sænska körfuboltanum Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. október 2014 19:00 Jakob Örn Sigurðarson skoraði sautján stig. vísir/valli
Íslendingaliðin þrjú í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta; Sundsvall Dragons, LF Basket og Solna Vikings, töpuðu öll í þriðju umferð deildarinnar í kvöld. Drekarnir spiluðu í fyrsta sinn á tímabilinu á heimavelli en töpuðu með ellefu stiga mun gegn Södertälje Kings, 77-66. Aðeins munaði tveimur stigum á liðunum í hálfleik, 34-32, en Kóngarnir unnu þriðja leikhlutann 23-26 og lögðu þannig grunninn að öruggum sigri. Drekarnir með tvö stig eftir þrjá leiki.Jakob Örn Sigurðarson var bestur Íslendinganna með 17 stig og 2 fráköst, HlynurBæringsson skilaði 11 stigum og 7 fráköstum, RagnarNathanaelsson skoraði 6 stig og tók 6 fráköst og Ægir Þór Steinarsson skoraði 2 stig, tók 3 fráköst og gaf 1 stoðsendingu.Haukur Helgi Pálsson og félagar í LF Basket töpuðu á útivelli gegn Uppsala Basket, 89-81, en LF er þjálfað af Peter Öqvist, fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands. Rétt eins og hjá Sundsvall var allt í járnum í hálfleik og gestirnir í LF Basket yfir, 45-42. En Uppsala vann þriðja leikhlutann 25-12 og stóð af sér áhlaup gestanna í síðasta leikhlutanum.Haukur Helgi Pálsson var öflugur í liði LF Basket, en han skoraði 14 stig, tók 6 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Þetta var fyrsta tap liðsins í deildinni, en það er með fjögur stig. Þá töpuðu Sigurður Gunnar Þorsteinsson og félagar hans í Solna Vikings með tveggja stiga mun, 100-102, gegn Borås Basket á heimavelli. Leikurinn var gríðarlega spennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en á loka andartökum leiksins. Ísafjarðartröllið spilaði í 34 og hálfa mínútu í leiknum og skilaði tveimur stigum, átta fráköstum og tveimur stoðsendingum. Solna er án sigurs eftir þrjár umferðir.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - ÍA 3-0 | Stjarnan gerir atlögu að Evrópusætinu Íslenski boltinn Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Ætla að sniðganga leikinn við Víking Fótbolti „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira