Helgi Már fagnaði sigri á móti Íslendingunum í Sundsvall Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2011 18:58 Helgi Már Magnússon og Pavel Ermolinskji. Mynd/Hag
Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld og vakti þar mesta athygli sigur Helga Más Magnússonar og félaga í 08 Stockholm á sænsku meisturunum í Sundsvall Dragons. 08 Stockholm vann 75-74 sigur á Sundsvall Dragons á heimavelli sínum en þetta var fyrsti sigur liðsins í vetur eftir stórtap í fyrstu umferðinni. Pavel Ermolinskji gat tryggt Sundsvall sigurinn í lokin en klikkaði þá á þriggja stiga skoti. Helgi Már Magnússon átti mjög góðan leik, skoraði 16 stig og tók 7 fráköst á 26 mínútum en hann hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum. Helgi Már skoraði síðustu körfu 08 Stockholm í leiknum og kom liðinu þá í 75-68 en Sundsvall skoraði sex síðustu stig leiksins og var nærri því búið að stela sigrinum. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 22 stig fyrir Sundsvall (hitti úr 4 af 5 þriggja stiga skotum), Pavel Ermolinskji var með 11 stig og 5 fráköst og Hlynur Bæringsson bætti við 8 stigum, 11 fráköstum og 4 stoðsendingum. Brynjar Þór Björnsson og félagar í Jämtland Basket unnu tólf stiga sigur á LF Basket á heimavelli, 96-84, og fögnuðu þar með fyrsta sigri tímabilsins. Brynjar kom inn af bekknum og var með 5 stig og 4 fráköst á 15 mínútum. Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings hafa ekki byrjað vel og þeir töpuðu 84-71 á útivelli á móti Södertälje Kings í kvöld. Logi var með 11 stig og 4 fráköst á 36 mínútum.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Ætla að sniðganga leikinn við Víking Fótbolti Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira