Menning

Tilnefndar til Norðurlandaverðlauna

Í gær var tilkynnt hvaða íslensk skáldverk eru tilnefnd til úrskurðar dómnefndar um Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2009. Íslensku valnefndina skipuðu þau Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur og Aðalsteinn Ásberg rithöfundur, en varamaður nefndarinnar var Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur.

Menning

Góð stemning í Kassanum

Það var margt um manninn á tískusýningu sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona stóð fyrir í Kassanum á fimmtudagskvöldið. Sýndir voru bolir sem hún hannaði ásamt Elínu Þórhallsdóttur í tengslum við sýninguna Utan gátta, en þær stöllur hanna undir merkinu Lollell.

Menning

Kántrímessa annan í jólum

„Þetta verður ekkert Country Road eða Devil Went Down To Georgia. Þarna verður amerísk jólastemning sem er ekki verri jólastemning en hver önnur," segir séra Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindakirkju í Kópavogi, um sveitamessu sem þar verður haldin annan í jólum.

Menning

Þröstur endurheimti Edduna

„Já, ég er loksins búinn að fá hana,“ segir leikarinn Þröstur Leó Gunnarsson sem endurheimti Eddu-verðlaunin fyrir leik sinn í Brúðgumanum á miðvikudagskvöldið.

Menning

Einleikur Jóns Atla vekur athygli ytra

Jón Atli Jónasson frumsýnir eftir áramót einleik sinn Djúpið. Ingvar E. Sigurðsson fer þar með hlutverk manns sem lendir í skip-skaða og þarf að synda til lands. Á meðan sundinu stendur horfist skipbrotsmaðurinn í augu við það sem skiptir hann mestu máli í lífinu.

Menning

Kvennakórar heiðra Jón

Á morgun er fyrsti sunnudagur í aðventu og þá munu nokkrir kvennakórar víðs vegar af landinu frumflytja jólalagið Ég heyrði þau nálgast, eftir tónskáldið Jón Ásgeirsson.

Menning

Kennileiti úr minni þjóðar

Þrír karlmenn, tvær kynslóðir, Finnbogi og Ólafur Haukur fæddir 45 og 47, Óskar Árni fæddur 59. Þrjár bækur sem rekja æskuár, tvær styðja frásögnina myndefni sem tengjast textunum. Sögusviðið er í kjarna sínum hverfið: Njálsgata, Jófríðarstaðahverfið austan við Eiði og Þingholtin, en í endurminningunni er leitað víðar: Óskar Árni fer lengst, austur á Langanes og alla leið til Winnipeg.

Menning

Holberg-verðlaun veitt

Á miðvikudag voru Holberg-verðlaunin veitt í Osló. Bandaríski bókmenntafræðingurinn Fredric R. Jameson þáði viðurkenninguna og 4,5 milljónir norskra króna fyrir að hafa dregið menningarfræði inn í sögulegt samhengi.

Menning

Nýr höfundur mættur

Í dag kl. 14 flytur Útvarpsleikhúsið nýtt íslenskt leikrit á Rás 1 Ríkisútvarpsins, Spor eftir Starra Hauksson. það er frumraun hans í Útvarpsleikhúsinu. Verkið dregur upp ljóðræna mynd af lífinu í kjölfar áfalls sem markar djúp spor í tilveruna. Andri er að verða þrítugur og býr einn. Í dag er afmælisdagur móður hans. Andri kemst ekki í afmælið því hann er upptekinn, eða kannski er hann upptekinn af því að vilja ekki mæta. Fyrir ári, á þessum degi, gerðist nokkuð sem olli straumhvörfum í lífi hans, fjölskyldunnar og vinahópsins. En örlögin grípa í taumana og Andri fær ekki lengur umflúið að horfast í augu við atburðinn – og sjálfan sig um leið.

Menning

Hirðfífl íslenska krimmans

„Já, ætli ég sé þá ekki bara hirðfífl íslenska krimmans? Er það ekki fínt? Það eru þau sem hafa hin raunverulegu völd. Rödd sannleikans. Eins og ástandið er í dag held ég að hinir titlarnir séu ekkert sérlega eftirsóknarverðir,“ segir Ævar Örn Jósepsson sem á föstudag sendi frá sér sinn fimmta krimma: Land tækifæranna.

Menning

Framlag Haralds

Einn helsti áhrifamaður þjóðarinnar á síðustu öld var Haraldur Nielsson. Á morgun er þess minnst með málþingi í Þjóðarbókhlöðu að 140 ár eru liðin frá fæðingu hans og öld liðin frá því hann gaf út umdeilda þýðingu á Gamla testamentinu. Á málþinginu talar sonur Haralds, Jónas Haralz, fyrrverandi bankastjóri, um föður sinn og prófessorarnir Pétur Pétursson, Gunnlaugur A. Jónsson, Erlendur Haraldsson og Gunnar Kristjánsson prófastur fjalla um ævi og störf Haralds.. Dagskráin hefst í Fríkirkjunni í Reykjavík með messu kl. 11 og málþingið hefst í Þjóðarbókhlöðunni kl. 13.15. Sýningin verður opnuð kl. 15.30.

Menning

Hjördís í Gilinu

Hjördís Frímann opnar málverkasýningu í Festarkletti, efst í listagilinu á Akureyri, kl. 15 í dag. Sýningin ber nafnið „Heimkoman“ og vísar til þess að Hjördís er nýlega flutt á heimaslóðir á Akureyri. Hjördís vinnur með akrýl á striga og pappír og nýtir jafnan litaskalann til hins ítrasta.

Menning

Fjórða prentun

Fjórða prentun af ljóðabók Kristínar Svövu Tómasdóttur, Blótgælur, er komin í búðir. Bókin kom fyrst út í október í fyrra: önnur prentun var prentuð í nóvember og sú þriðja í desember og er hún löngu uppseld. Það er bókaforlaginu Bjarti sönn ánægja að dreifa fjórðu prentun á þessari frábæru ljóðabók í dag. Þessi fyrsta ljóðabók Kristínar Svövu Tómasdóttur hefur sannarlega slegið í gegn enda í henni ferskur og áleitinn bragur.

Menning

Ástarljóð Strandamanns

Strandamaðurinn Bjarni Ómar Haraldsson hefur gefið út sína aðra sólóplötu sem nefnist Fyrirheit. Hefur hún að geyma melódískt popp í rólegri kantinum.

Menning

Þjóðleikhússtjóri leikur hórumömmu

Lögfræðidramasjónvarpsþættirnir Réttur eru nú í tökum en þar fara þau hjón Egill Ólafsson, tónlistarmaður og leikari, og Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri með veigamikil hlutverk. Meðan Egill fer með hlutverk eldri lögmanns hér í bæ þá er hlutverk Tinnu öllu nýstárlegra. Hún leikur hórumömmu í Reykjavíkurborg. Að sögn Sigurjóns Kjartanssonar handritshöfundar er Tinna sem sköpuð fyrir hlutverkið.

Menning

Kvennasýningar blómstra

Listakonur eru fyrirferðarmiklar í myndlistarsölum þessa dagana og kennir í verkum þeirra frá liðnu ári margra grasa. Hér er líka uppi athyglisverð sýning hollenskrar listakonu þar sem bent er á hlut horfinna kvenna í myndlistinni.

Menning

Grýla og familía

Í dag er opnuð sýning í Hafnarborg á nýjum myndskreytingum eftir Brian Pilkington af íslensku jólasveinunum, foreldrum þeirra, Grýlu og Leppalúða, þessari séríslensku vandamálafjölskyldu. Sýningin mun standa fram á þrettándann og er tilvalið að fara með börnin í Fjörðinn til að skoða þessar teikningar Brians.

Menning

Bandarísk bókmenntaverðlaun

Peter Matthiessen, rithöfundur og stofnandi Paris Review, hlaut á miðvikudag National Book Award fyrir skáldsögu sína Wednesday night for Shadow Country sem er endurritun á verki hans frá áttunda áratugnum. Hann hefur áður fengið þessi verðlaun fyrir eitt sitt frægasta verk, The Snow Leopard.

Menning

Janis áfram

Rokksöngleikurinn Janis 27 eftir Ólaf Hauk Símonarson hefur verið sýndur í Íslensku óperunni við miklar vinsældir í allt haust og verður síðasta sýning haustsins næstkomandi föstudag, 28. nóvember, kl. 20.

Menning

Moka Myrká Arnaldar út

„Já, Myrká mokast út. Mikil söluaukning milli ára,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins.

Menning

Ekki á dánarbeði

„Það eru gróusögur um að við séum háð einum banka og ef hann fer þá förum við líka en það er bara ekki þannig,“ segir Rakel Garðarsdóttir hjá leikhópnum Vesturporti þar sem fjöldi verkefna er fram undan.

Menning

Gefur út tónlist úr leikriti

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég sem tónlist við leikverk,“ segir Jarþrúður Karlsdóttir sem gefur úr plötu með tónlistinni úr leikritinu Dansaðu við mig, en verkið er sýnt í Iðnó um þessar mundir.

Menning

Franskir lúðrahljómar

Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr býður upp á franska tónlist og stemmningu á tónleikum á Kjarvalsstöðum á morgun kl. 17.

Menning

Lögfræðingur frekar en skáld

Sænski rithöfundurinn Jens Lapidus hefur slegið í gegn í heimalandi sínu með bók sinni Fundið fé. Nú er röðin kominn að Íslandi. Freyr Gígja Gunnarsson hitti þennan best klædda mann Svíþjóðar og forvitnaðist um það hvernig lögfræðingur verður skáld.

Menning

Barokk-popp í Langholti

Annað kvöld bregður Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir sig betri fætinum, flytur sig af Melunum upp í Langholt: í Langholtskirkju verður besta hljómsveit landsins með efnisskrá sem helguð er helstu perlum barokksins; sum þessara verka eru öllum kunn: Vatnamúsík Händels, Hljómsveitarsvíta nr. 3 eftir Bach, en í henni er einmitt Aría á G-streng, og hin sívinsæla kanón Pachelbels eru þeirra á meðal. Poppið úr barokkinu.

Menning

Út með sjálfsmynd þrælsins

Á stærstu sýningu Tolla til þessa vísa verkin til kynslóðar sem við miklu verri kost byggði upp almennilegt samfélag. „Nei, alls ekki. Tímasetningin er snilld,“ segir myndlistarmaðurinn Tolli spurður hvort ekki sé óðs manns æði að efna til myndlistarsýningar nú á þessum síðustu og verstu.

Menning

Nýtt starfsár hafið

Á morgun er opið hús í Hallgrímskirkju á degi heilagrar Sesselju og verður dyrum kirkjunnar lokið upp kl. 13.30. Dagskráin er þríþætt, kynning í tali og tónum á óratoríunni Ceceliu eftir Áskel Másson, kynning á nýjum geisladisk Mótettukórsins og dagskrá Listvinafélags Hallgrímskirkju.

Menning

Hverflyndi gæfunnar

Á morgun munu fornir, þýskir, blautlegir og andríkir söngvar hljóma yfir Grafarvoginn úr kirkjunni þegar Vox academica flytur Carmina Burana eftir Carl Orff ásamt liðsstyrk.

Menning

Lapidus les fyrir Íslendinga

Sænski glæpasagnahöfundurinn Jens Lapidus ætlar að sækja landið heim og lesa upp úr bók sinni Fundið fé sem kemur út á vegum JPV fyrir þessi jól. Lapidus þessi hefur slegið í gegn meðal sænsku þjóðarinnar með sakamálasögum sínum en bakgrunnur hans er nokkuð óvenjulegur.

Menning

Steinar rís úr djúpi

Á föstudagskvöld frumsýnir þrettán manna leikhópur undir stjórn Rúnars Guðbrandssonar verkið Steinar í djúpinu í Hafnarfjarðarleikhúsinu.

Menning