Menning

Húsmóðir Vesturports á fjölunum

Húsmóðirin verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Húsmóðirin verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Nýr íslenskur gleðileikur verður frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. Það er leikhópurinn Vesturport sem á heiðurinn að sýningunni og er þetta í fyrsta sinn sem hópurinn tekst á við gamanleikjaformið þar sem dyr „opnast og lokast á hárréttu augnabliki, persónur birtast á óþægilegu andartaki eða yfirgefa sviðið rétt áður en allt verður óbærilega vandræðalegt," eins og segir í fréttatilkynningu.

Höfundar og leikarar verksins eru þau Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Víkingur Kristjánsson og Jóhannes Níels Sigurðsson. Leikmynd og búninga hannar Ilmur Stefánsdóttir og lýsingu annast Þórður Orri Pétursson. Pálmi Sigurhjartarson semur og flytur tónlist og Ólafur Örn Thoroddsen er hljóðmaður sýningarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.