Menning

Skálað fyrir skíthræddri Unni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Aðstandendur í stuði, Katrín Halldóra, Matthías Tryggvi, Unnur Elísabet og Einar Lövdahl svo fáeinir séu nefndir.
Aðstandendur í stuði, Katrín Halldóra, Matthías Tryggvi, Unnur Elísabet og Einar Lövdahl svo fáeinir séu nefndir.

Það var blásið til heljarinnar teitis í Þjóðleikhúskjallaranum síðastliðið laugardagskvöld þegar uppistandið Skíthrædd, í söngleikjaformi, eftir Unni Elísabetu var loksins frumsýnt. Salurinn var í trylltu stuði.

Unnur ræddi verkið við Vísi í lok síðasta árs þegar titillag söngleiksins kom út. Verkið byggir á hennar eigin lífsreynslu en Unnur sagðist hafa þurft að kljást við mikla lífshræðslu í gegnum lífið. Áhyggjurnar sneru meðal annars að öndunarvegi og meltingarfærum en Unnur hefur mikinn húmor fyrir öllu saman.

Katrín Halldóra leikstýrir í Skíthrædd sínu fyrsta verki. Unnur sló á létta strengi og opnaði eigið hjarta upp á gátt fyrir leikhúsgestum. Hún samdi tólf lög fyrir verkið, öll um þessa lífsreynslu sem Unnur gerir stólpagrín að. Hún segist himinlifandi í samtali við Vísi með frumsýninguna, það hafi verið gríðarleg stemning í lofti.

Unnur í stuði á sviði. Owen Fiene
Frumsýningar teymið mínus Gógó Starr, Brett Smith og Vigdís Hafliðadóttir.Owen Fiene

Sáttar með sýningarbæklinginn. Owen Fiene

Ásta Jónína og Bjartur Bachman með vinkonu.Owen Fiene

Sally Cowdin og Snæfríður Sól Gunnarsdóttir.Owen Fiene

Þorgils Helgason og Unnur Elísabet. Owen Fiene

Ebba og Berglind Halla.Owen Fiene

Matthías Tryggvi Haraldsson. Owen Fiene

Ásta Jónína Arnardóttir og Bjartur Bachman.

Anna Classsen ásamt Unni. Owen Fiene

Magnús Thorlacius, Rósa Björk Ásmundsdóttir og Gríma Kristjánsdóttir. Owen Fiene

Heiðdís Inga Hilmarsdóttir og Hilmar Þorkelsson.Owen Fiene

Unnur Elísabet og Guðrún Haraldsdóttir.Owen Fiene

Skálað fyrir frumsýningu á Mánabar.Owen Fiene

Leonardo Morris ásamt Soffíu Thorarensen og Kristjáni Róbert Kristjánssyni. Owen Fiene

Silja Aðalsteinsdóttir og vinkona.Owen Fiene

Sesselja Magnúsdóttir ásamt vinkonu.Owen Fiene

Oddur Ólafsson, Steinar Atli Skarphéðinsson og Arnar Jónsson.Owen Fiene

Annalísa Hermannsdóttir og Unnur Elísasbet. Owen Fiene

Bros á vörum og vín í glösum. Owen Fiene

Katrín Halldóra leikstjóri sýningarinnar ásamt Sigrún Jörgenssen búningahönnuði.Owen Fiene

Friðrik Friðriksson og Álfrún Helga Örnólfsdóttir.Owen Fiene

Gríma og Snæfríður Sól.Owen Fiene

Einar Lövdahl og Heiðdís Inga Hilmarsdóttir. Owen Fiene

Tengdar fréttir

Er bókstaflega skíthrædd

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir hefur gefið út nýtt lag, lagið Skíthrædd. Um er að ræða titillagið í væntanlegum söngleik hennar sem byggir á hennar eigin lífsreynslu. Unnur segist hafa þurft að kljást við mikla lífshræðslu í gegnum lífið og áhyggjurnar snúa meðal annars að öndunarveginum og meltingarfærunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.