Spænski boltinn
241 242 243 244 245 246 247 248 249 … 267 ›
Arsenal bauð í Robinho Umboðsmaður brasilíska sóknarmannsins Robinho hjá Real Madrid hefur greint frá því að Arsenal og AC Milan hafi viljað fá leikmanninn í sínar raðir þegar leikmannaglugginn var opinn í upphafi ársins. Forráðamenn Real Madrid komu hins vegar í veg fyrir að Robinho færi því félagið ku ekki vera tilbúið að selja Brasilíumanninn. Fótbolti 26.2.2007 13:00
Ibanez: Real Madrid er lélegt lið Pablo Ibanez, varnarmaður Atletico Madrid, segist sjaldan hafa séð eins lélega frammistöðu hjá Real Madrid eins og þegar liðin mættust á föstudagskvöld í spænsku úrvalsdeildinni. Ibanez segir með ólíkindum að Atletico hafi ekki náð að vinna leikinn, en hann endaði með 1-1 jafntefli. Fótbolti 26.2.2007 12:54
Ronaldinho: Ég hef aldrei verið í betra formi Ronaldinho, brasilíski snillingurinn hjá Barcelona, kveðst aldrei hafa verið í betra formi og að hann hafi verið staðráðinn í að sýna það í leiknum gegn Atletico Bilbao í gær. Ronaldinho var stórkostlegur í leiknum, en fyrir nokkrum dögum voru birtar myndir sem gáfu til kynna að hann hefði fitnað um nokkur kíló. Fótbolti 26.2.2007 12:28
Eto'o: Búinn að bíða lengi eftir þessu marki Samuel Eto'o, framherji Barcelona, er mjög ánægður með að vera búinn að finna skotskóna á ný en hann skoraði eitt marka Barcelona í auðveldum sigri liðsins á Atletico Bilbao í gær, 3-0. Eto'o segist hafa beðið lengi eftir þessu marki, en slæm hnémeiðsli héldu honum frá keppni í tæpa fimm mánuði fyrr í vetur. Fótbolti 26.2.2007 11:02
Eto´o skoraði í öruggum sigri Barcelona Barcelona er komið með tveggja stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir léttan 3-0 sigur á Atletico Bilbao á Nou Camp í kvöld. Xavi og Samuel Eto´o skoruðu mörk Barcelona í leiknum auk þess sem eitt markið var sjálfsmark. Eto´o var óvænt í byrjunarliðinu í kvöld en Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á varamannabekknum. Fótbolti 25.2.2007 22:03
Eto´o byrjar – Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, þvert á spár helstu fjölmiðla Spánar. Í fremstu víglínu liðsins í kvöld er Samuel Eto´o, sem er í fyrsta sinn í byrjunarliðinu síðan í október. Leikurinn hófst kl. 20 og er í beinni útsendingu á Sýn. Fótbolti 25.2.2007 20:16
Atletico og Real skildu jöfn Real Madrid var stálheppið með að sleppa við jafntefli í viðureign sinni gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Gonzalo Hugain skoraði jöfnunarmark Real í 1-1 jafntefli þegar um hálftími var eftir en Atletico var mun sterkari aðilinn í leiknum og fór illa með nokkur mjög góð marktækifæri. Fótbolti 25.2.2007 11:46
Ronaldo vill 160 þúsund pund á viku Cristiano Ronaldo vill fá 160 þúsund pund í vikulaun frá Man. Utd. ætli félagið sér að fá hann til að skrifa undir nýjan samning. Þetta fullyrðir spænska dagblaðið Marca í stórri umfjöllun um málið og bætir við að Real Madrid og Barcelona séu reiðubúin að mæta kröfum Ronaldo, auk þess að borga Man. Utd. 40 milljónir punda fyrir portúgalska landsliðsmanninn. Fótbolti 24.2.2007 17:59
Dida fer líklega til Barcelona Barcelona er komið langleiðina með að semja við brasilíska markvörðinn Dida, en margt bendir til þess að hann yfirgefi herbúðir AC Milan þegar samningur hans rennur út eftir núverandi leiktíð. Carlo Ancelotti, stjóri Milan, segir að samningaviðræður við markmanninn hafi ekki gengið sem skildi. Fótbolti 24.2.2007 18:04
Eiður byrjar hjá Barcelona á morgun Spænskir fjölmiðlar fullyrða að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði Barcelona þegar liðið fær Atletico Bilbao í heimsókn á Nou Camp í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. Þjálfarinn Frank Rijkaard er sagður hafa verið ósáttur með frammistöðu Javier Saviola í leiknum gegn Liverpool. Samuel Eto´o og Santiago Ezquerro eru einnig í 18-manna hópi Barca fyrir leikinn. Fótbolti 24.2.2007 18:02
Messi vill Ronaldo til Barcelona Lionel Messi hjá Barcelona vill ólmur fá Cristiano Ronaldo til spænska liðsins frá Manchester United, en portúgalski leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við sölu frá Man. Utd. eftir þetta tímabil. Messi segir Ronaldo vera ótrúlegan leikmann og að það yrði mikill heiður að spila í sama liði og hann. Fótbolti 24.2.2007 17:57
Barcelona og Real Madrid kljást um 11 ára gutta Laureano Ludena er 11 ára argentínskur sóknarmaður sem þykir einn efnilegasti leikmaður sem upp hefur komið í heimalandi sínu. Barcelona og Real Madrid eru nýjustu félögin sem bætast í slaginn um undirskrift Ludena, en áður höfðu öll stærstu lið Argentínu fengið hann á reynslu til sín. Fjölskylda leikmannsins segir hins vegar líklegast að hún muni flytja til Evrópu. Fótbolti 24.2.2007 12:54
Emerson orðaður við AC Milan Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hjá Real Madrid er nú sterklega orðaður við sölu til AC Milan, en hann hefur engan veginn náð sér á strik á Spáni í vetur. Emerson er sagður hafa neitað að spila í sigurleik Real á Bayern Munchen í Meistaradeildinni á þriðjudag og vilja forráðamenn spænska liðsins hann burt. Fótbolti 23.2.2007 16:22
Inter ætlar að losa sig við Adriano Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano verður að öllum líkindum seldur frá Inter Milan í sumar og er talið að forráðamenn ítalska félagsins séu að undirbúa risatilboð í Cristiano Ronaldo hjá Man. Utd, þar sem Adriano mun verða hluti að kaupverðinu. Fótbolti 23.2.2007 16:13
Beletti verður frá í tvær vikur Spánarmeistarar Barcelona fengu ekki að njóta þess lengi að vera með fullskipaðan hóp eftir meiðsli lykilmanna í vetur, því brasilíski varnarmaðurinn Juliano Belletti meiddist í leiknum í Liverpool í Meistaradeildinni í gær og verður frá í tvær vikur. Hann missir því af deildarleikjum gegn Bilbao og Sevilla og verður væntanlega tæpur fyrir síðari leikinn gegn Liverpool þann 6. mars. Fótbolti 22.2.2007 18:32
Reyes gagnrýnir Capello Jose Antonio Reyes hefur nú fetað í fótspor félaga síns Robinho hjá Real Madrid með því að væla yfir vinnuaðferðum þjálfara síns í fjölmiðlum. Reyes er lánsmaður frá Arsenal og í gær sagðist hann hvorki skilja upp né niður í vinnubrögðum þjálfara síns. Fótbolti 22.2.2007 04:13
Capello sagður hafa sagt af sér hjá Real Madrid Spænsk útvarpsstöð hafði eftir heimildamanni sínum í dag að ítalski þjálfarinn Fabio Capello hefði sagt starfi sínu lausu hjá Real Madrid. Talsmaður Real vildi ekki staðfesta þetta og segir þjálfarann muni stýra liðinu gegn Bayern í Meistaradeildinni á morgun. Hann vildi hinsvegar ekki staðfesta að Capello yrði við stjórnvölinn þegar Real mætir grönnum sínum í Atletico um næstu helgi. Fótbolti 19.2.2007 19:08
Valencia lagði Barcelona Valencia vann í kvöld mikilvægan sigur á Barcelona í stórleik helgarinnar í spænska boltanum. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld en var skipt af velli eftir klukkutíma leik. Silva og Angulo skoruðu mörk Valencia með þriggja mínútna millibili í upphafi síðari hálfleiks, en Ronaldinho minnkaði muninn í uppbótartíma. Fótbolti 18.2.2007 19:55
Tottenham áfram í bikarnum Tottenham vann nokkuð auðveldan 4-0 útisigur á Fulham í fimmtu umferð enska bikarsins á Craven Cottage í dag. Robbie Keane og varamaðurinn Dimitar Berbatov skoruðu mörk gestanna sem eru komnir í 8-liða úrslitin. Heiðar Helguson var í byrjunarliði Fulham en var skipt af velli eftir klukktíma leik. Enski boltinn 18.2.2007 17:56
Eiður Smári í byrjunarliði Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona í stórleiknum gegn Valencia sem hefst á Mestalla leikvangnum nú klukkan 18 og er sýndur beint á Sýn. Barcelona tekur svo á móti Liverpool í Meistaradeildinni í vikunni. Fótbolti 18.2.2007 17:53
Þrautaganga Real heldur áfram - Beckham sá rautt Real Madrid er enn að hiksta í spænsku deildinni í fótbolta og í kvöld náði liðið aðeins markalausu jafntefli gegn Real Betis á heimavelli sínum Santiago Bernabeu í Madrid. David Beckham fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins sem sýndur var beint á Sýn. Bein útsending frá leik Zaragoza og Villarreal hefst klukkan 21. Fótbolti 17.2.2007 20:54
Beckham í liði Real Madrid á ný David Beckham er í byrjunarliði Real Madrid í kvöld þar sem liðið tekur á móti Real Betis í spænsku deildinni. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hófst nú uppúr klukkan 19. Síðar í kvöld verður leikur Zaragoza og Villarreal sýndur beint á Sýn. Á morgun verður Sýn svo með beina útsendingu frá stórleik Barcelona og Valencia þar sem Eiður Smári Guðjohnsen verður í leikmannahópi Barcelona. Fótbolti 17.2.2007 19:21
Capello vill sjá Beckham í landsliðinu David Beckham er greinlega orðinn að algjöru uppáhaldi hjá stjóra sínum Fabio Capello. Ekki er nóg með að hann skuli aftur vera kominn í byrjunarlið Real Madrid heldur hefur Capello nú hvatt Steve McLaren, þjálfara enska landsliðsins, að velja Beckham á ný í liðið. Capello telur að Beckham geti haft sömu áhrif á enska liðið og hann hafði á lið Real um síðustu helgi. Fótbolti 16.2.2007 18:24
Nistelrooy segir Ferguson hafa sparkað í sál sína Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy hefur tjáð sig í fyrsta sinn um hvað það var sem olli trúnaðarbresti hans og Sir Alex Ferguson, stjóra Man. Utd. á síðustu leiktíð. Ósættið leiddi til þess að Nistelrooy var seldur til Real Madrid í sumar, og segist sá hollenski hafa hafnað AC Milan og Bayern Munchen áður en hann ákvað að skrifa undir hjá spænska stórliðinu. Fótbolti 16.2.2007 18:21
Casillas gagnrýnir spænska fjölmiðla Iker Casillas, markvörður Real Madrid, gerir lítið úr meintu uppþoti í herbúðum Barcelona, hvað meintar deilur Samuel Eto´o, Ronaldinho og þjálfarann Frank Rijkaard varðar. Casillas harmar hvernig spænskir fjölmiðlar hafa blásið málið upp. Fótbolti 16.2.2007 13:49
Canizares framlengir við Valencia Markvörðurinn Santiago Canizares hjá Valencia hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2009 og verður því kominn nær fertugu þegar hann rennur út. Canizares hefur verið mjög sigursæll með Valencia síðan hann gekk í raðir liðsins árið 1998 en hann lék áður með Real Madrid. Fótbolti 15.2.2007 18:49
Robinho: Tottenham er ekki nógu stór klúbbur fyrir mig Brasilíski framherjinn Robinho neitar því alfarið að hann sé á leið til Tottenham á Englandi. Orðrómur þess efnis fór af stað í morgun eftir að Robinho hafði lýst því yfir að hann væri óánægður hjá Real Madrid. "Ef ég fer frá Real verður það til að fara til annars stórs félags - og Tottenham er ekki stórt félag," sagði Robinho. Fótbolti 15.2.2007 15:18
Ronaldinho og Eto´o féllust í faðma á æfingu Þeir Ronaldinho og Samuel Eto´o hjá Barcelona virðast hafa grafið stríðsöxina frá því í gær en þeir félagar féllust í faðma og slógu á létta strengi á æfingu í hádeginu. Eto´o gagnrýndi félaga sinn harðlega í gær en nú virðist hann amk hafa náð sáttum við Ronaldinho. Fótbolti 14.2.2007 14:08
Eiður Smári á hörðum aukaæfingum Spænska fréttasíðan Mundo Deportivo greinir frá því í dag að Eiður Smári Guðjohnsen æfi nú manna mest hjá liði Barcelona og sást hann æfa einn í gær og í morgun. Það er því greinilegt að landsliðsfyrirliðinn ætlar að vinna sér sæti í liðinu á ný og er Frank Rijkaard mjög ánægður með einbeitingu hans. Fótbolti 14.2.2007 13:44
Eto´o hraunar yfir Rijkaard og Ronaldinho Kamerúninn Samuel Eto´o hjá Barcelona segir að Frank Rijkaard og Ronaldinho séu vondir menn í kjölfar þess að þeir gagnrýndu ákvörðun hans um að neita að fara inná í leik gegn Santander um síðustu helgi. Eto´o segist vera fastur í miðju stríði innan liðsins. Fótbolti 13.2.2007 17:23