Fótbolti

Eiður kom inn á í tapleik Barcelona

Eiður Smári náði ekki að setja mark sitt á leikinn í kvöld.
Eiður Smári náði ekki að setja mark sitt á leikinn í kvöld. MYND/AFP
Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 25 mínúturnar fyrir Barcelona sem tapaði fyrir Real Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Zaragoza vann 1-0 en það var argentínski framherjinn Diego Milito sem skoraði eina mark leiksins. Barcelona er áfram með tveggja stiga forystu á Sevilla á toppi deildarinnar en síðarnefnda liðið á leik til góða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×