Fótbolti

Spánn: Valencia gerði Barcelona greiða

David Villa skoraði bæði mörk Valencia í kvöld
David Villa skoraði bæði mörk Valencia í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Valencia lagði Sevilla 2-0 í kvöldleiknum í spænska boltanum með tveimur mörkum frá spænska landsliðsmanninum David Villa. Sigur Valencia þýðir að Barcelona er enn með fjögurra stiga forskot á toppnum. Valencia skaust með sigrinum í fjórða sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir Sevilla.

Villa kom Valencia yfir með laglegu marki á 27. mínútu fyrri hálfleiks og gerði svo nánast út um leikinn í upphafi þess síðari þegar hann skoraði mark úr vítaspyrnu sem dæmd var á þýska varnarmanninn Andreas Hinkel. Hann fékk rauða spjaldið í kjölfarið og eftirleikurinn heimamönnum auðvledur.

Staða efstu liða eftir 30 umferðir:

1.Barcelona        59

2.Sevilla             55

3.Real Madrid     54

4.Valencia          53

5.Zaragoza        50




Fleiri fréttir

Sjá meira


×