Fótbolti

Myndir af nýjasta húðflúri David Beckham

Beckham er einnig með stórt húðflúr á bakinu
Beckham er einnig með stórt húðflúr á bakinu NordicPhotos/GettyImages
Knattspyrnumaðurinn David Beckham hefur verið iðinn við að láta húðflúra sig undanfarin ár. Hann bætti við stóru listaverki á hægri handlegg sinn þegar hann var í Manchester á dögunum og afraksturinn má sjá í hlekk í þessari frétt.

Beckham dvelur nú á Spáni en nýja húðflúrið hans er til marks um vistaskipti hans síðar í sumar þegar hann fer til Bandaríkjanna til að spila með liði LA Galaxy. Listaverkið á handlegg hans er yfir 60 cm langt og þar stendur meðal annars áletrunin "Pray for me" - eða "Biðjið fyrir mér" - og óskar þar eftir stuðningi æðri máttarvalda í þessum nýjasta kafla í lífi sínu.

Breska blaðið Daily Mail náði myndum af kappanum og konu hans þar sem þau snæddu kvöldverð fyrir nokkru og á þeim sést listaverkið mjög greinilega. Húðflúrið var sett á hann dagana 11. og 13. mars á stofu Louis Malloy í Manchester. Smelltu hér til að sjá myndirnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×