Lífið

Fréttamynd

Nýjungagjarnir rokkarar

Sjötta hljóðversplata Muse heitir 2nd Law og kemur út eftir helgi. Þar blanda Matt Bellamy og félagar saman hinum ýmsu tónlistarstefnum í eina stóra epík.

Lífið
Fréttamynd

Óvenju mörg eintök pöntuð af Rowling

„Við finnum fyrir mikilli eftirvæntingu fyrir þessari bók,“ segir Ragnar Veigar Guðmundsson, vörustjóri erlendra bóka í Eymundsson, um nýjustu bók metsöluhöfundarins JK Rowling, The Casual Vacancy, sem kemur út í Bretlandi í dag. The Casual Vacancy er fyrsta skáldsaga JK Rowling síðan seinasta bók Harry Potter-seríunnar kom út árið 2007. Mikill spenningur er fyrir bókinni í Bretlandi en yfir milljón eintök hafa þegar selst þar í forsölu.

Lífið
Fréttamynd

Saga raftónlistarinnar

Plötuútgáfa á stafrænu formi er alltaf að aukast. Bæði tónlistarútgáfur og tónlistarveitur eru duglegar að bjóða upp á efni sem er eingöngu fáanlegt sem niðurhal. Nýlega gaf til dæmis Hellcat-útgáfan út 57 laga safnið The Hellcat Years í tilefni af því að Joe Strummer hefði orðið sextugur. Útgáfan spannar það efni sem Strummer gerði með hljómsveitinni Mescaleros. Flott safn með ýmsu áður óútgefnu efni og eingöngu fáanlegt stafrænt.

Lífið
Fréttamynd

Spáir yfir tíu þúsund eintökum

Fyrsta plata tónlistarmannsins Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, hefur selst eins og heitar lummur að undanförnu. Samanlagt hafa um tvö þúsund eintök farið yfir búðarborðið á aðeins þremur vikum og situr platan í efsta sæti Tónlistans aðra vikuna í röð.

Lífið
Fréttamynd

Á fimmta þúsund sjá Baggalút

„Þetta gerist miklu hraðar núna,“ segir Guðmundur Pálsson þegar borin er saman miðasalan á jólatónleika Baggalúts í fyrra og í ár.

Lífið
Fréttamynd

Gerir franska víkingamynd

Framleiðslufyrirtækið Zik Zak kemur að gerð franskrar stuttmyndar sem taka á upp í október. Myndin er á íslensku og gerist að hluta til í íslenskum nútíma og að hluta til á víkingaöld og skartar einvörðungu íslenskum leikurum í aðalhlutverki.

Lífið
Fréttamynd

Ósammála um tilurð "Já sæll!“-frasans í Vöktunum

„Það er fullgróft að halda því fram að Jón Gunnar eigi alla frasana sem hrjóta af vörum Ólafs Ragnars í Vaktaseríunni. Pétur Jóhann hitti hann á einum fundi og fékk ráðgjöf en stærstur hluti frasanna varð bara til á handritsfundum,“ segir Ragnar Bragason, leikstjóri og einn handritshöfunda Vaktaseríunnar sívinsælu.

Lífið
Fréttamynd

Svíar eru víst fyndið fólk

Uppistandarinn Johan Glans kemur fram í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardag. Sýningin samanstendur af glænýju efni og nefnist World Tour of Scandinavia.

Lífið
Fréttamynd

Bastörðum tekið vel á Norðurlöndum

Samnorræna leiksýningin Bastards hefur fengið afbragðs gagnrýni hjá nágrönnum okkar í Svíþjóð og Danmörku. Sýningin hefur verið á flakki um Norðurlöndin síðan hún var forsýnd á Listahátíð í vor, en það er Gísli Örn Garðarsson sem leikstýrir verkinu.

Lífið
Fréttamynd

Obi-Wan Gnarr

Jón Gnarr skartar óvenju myndarlegu alskeggi þessa dagana, enda hefur hann safnað því síðastliðinn mánuð. Ástæðan er sú að borgarstjórinn hyggst sækja sérstaka búningasýningu á Comic Con, nýjustu mynd leikstjórans Morgans Spurlock sem fjallar um fræga nördaráðstefnu í San Diego, á RIFF-hátíðinni næstkomandi föstudag, í gervi Obi-Wan Kenobi úr Star Wars.

Lífið
Fréttamynd

Vinna með lagasmið Willow

Hljómsveitin The Charlies sendi frá sér nýtt tónlistarmyndband í gær við lagið Hello Luv. Lagið er eftir lagahöfundinn Jukebox en sá samdi einnig lagið Whip My Hair með Willow Smith.

Lífið
Fréttamynd

Enginn tími til að vera gamall

Listamaðurinn Guðmundur Guðmundsson, betur þekktur sem Erró, varð áttræður í júlí. Í tilefni þess er opnuð yfirlitssýning í dag í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi af merkustu grafíkverkum hans, undir stjórn Danielle Kvaran. Erró ber aldurinn með reisn, er beinn í baki og fjörlegur.

Menning
Fréttamynd

Stórt hjarta í þessu

Klukkan er tíu að morgni og leikarar Þjóðleikhússins að tínast í hús bakdyramegin. Sumir eru komnir til að æfa Dýrin í Hálsaskógi sem á að frumsýna 8. september, þeirra á meðal þeir Jóhannes Haukur og Ævar Þór. En áður en sminkurnar ná til þeirra eru þeir króaðir af í viðtal og fyrsta spurning er hvernig stemningin sé í Hálsaskógi.

Lífið
Fréttamynd

Ánægðir gestir á Ávaxtakörfunni

Kvikmyndin Ávaxtakarfan var frumsýnd í gær. Gestir voru bæði stórir og smáir líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum og virtust þeir skemmta sér stórvel yfir ævintýrinu.

Menning
Fréttamynd

Hétu því að spila meira heima

„Ævintýrið byrjaði með því að okkur var boðið að spila á Ítalíu,“ segir Guðbjörg Tómasdóttir sem skipar íslensk-sænska nýkántrí dúettinn My Bubba & Mi ásamt sænska lestarstjóranum My Lardotter.

Tónlist
Fréttamynd

Kynnir íslenska list fyrir Pólverjum

„Ég hef gengið með hugmyndina í maganum í nokkurn tíma en opnaði síðuna nú fyrst í ágúst,“ segir Magdalena Dybka sem heldur úti bloggsíðunni showrum.wordpress.com. Á síðunni fjallar hún ítarlega um íslenska hönnun, tónlist og myndlist og er ætlunin að kynna íslenska list fyrir pólskum lesendum.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Matreiðsluþáttur fyrir tískuunnendur

Tíska Vefsíðan Fashionista.com hefur farið af stað með matreiðsluþætti er nefnast Haute cuisine. Þar munu þekktir einstaklingar úr tískuiðnaðinum elda uppáhaldsrétti sína með þáttastjórnandanum David Yi.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Tónverk um skákeinvígi

Í tilefni fjörutíu ára afmælis „einvígis aldarinnar“ í Laugardalshöll 1972 á milli Bobbys Fischer og Boris Spasskíj verður flutt tónverk eftir Guðlaug Kristin Óttarsson á sunnudaginn.

Tónlist
Fréttamynd

Ávaxtafjör fyrir blessuð börnin

Íslenska barnaleikritið um ávextina í Ávaxtakörfunni hefur nú verið flutt af sviði yfir á hvíta tjaldið í fyrsta skipti og verður bíómyndin frumsýnd á morgun.

Menning
Fréttamynd

Dad Rocks! á tónleikaferð

Dad Rocks! er á leiðinni í tónleikaferð um England og Skotland í október. Þar mun hann hita upp fyrir hina tilraunakenndu ensku hljómsveit Tall Ships.

Lífið
Fréttamynd

Fagrir kjólar í Feneyjum

Kvikmyndahátíðin í Feneyjum fer fram þessa dagana en þetta er í 69. sinn sem hátíðin er haldin. Opnunarhátíðin fór fram með pompi og prakt á miðvikudagskvöldið þar sem ekki síst síðkjólarnir vöktu athygli. Kate Hudson kastaði stjörnublæ á samkomuna þar sem hún kom í gullkjól með unnusta sinn Matt Bellamy upp á arminn. Hudson leikur aðalhlutverkið í myndinni The Reluctant Fundamentalist sem var opnunarmynd hátíðarinnar.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Fjallað opinskátt um kynlíf

„Þetta er fræðsluþáttur en efnið er séð með augum ungs fólks og við upplifum þetta svolítið í gegnum það,“ segir Hrefna Björk Sverrisdóttir einn framleiðenda sjónvarpsþáttanna 2+6 sem hefja göngu sína á Popptíví í vetur. Stórveldið framleiðir þættina í samstarfi við Hrefnu Björk.

Menning
Fréttamynd

Grín á þremur tungumálum

Uppistandarinn DeAnne Smith frá Montreal og Freddie Rutz, svissneskur grínisti og töframaður, koma fram á Iceland Comedy Festival 2012 sem verður haldin í september á Gamla Gauknum og í Gamla kaupfélaginu á Akranesi. Rökkvi Vésteinsson stendur fyrir komu þeirra og mun hann einnig troða upp.

Menning
Fréttamynd

Kvintett með Slowscope

Kvintettinn The Heavy Experience hefur sent frá sér sína fyrstu stóru plötu, Slowscope. Áður hefur sveitin gefið út samnefnda stuttskífu.

Tónlist