Lífið

Á flótta með kærustunni

Á flótta Parið Charlie og Annie leggja upp í ferðalag og er fylgt eftir af ýmsum aðilum. Kvikmyndin Hit and Run er frumsýnd í kvöld.
Á flótta Parið Charlie og Annie leggja upp í ferðalag og er fylgt eftir af ýmsum aðilum. Kvikmyndin Hit and Run er frumsýnd í kvöld.
Gamanmyndin Hit and Run er frumsýnd í kvikmyndahúsum í kvöld.

Gamanmyndin Hit and Run segir frá Charlie og Annie sem ákveða að leggja af stað akandi til Los Angeles. Einn hængur er þó á, því Charlie er í vitnavernd og á ekki að yfirgefa heimili sitt. Parið er elt uppi af glæpamönnum í hefndarhug, fyrrum kærasta Annie og lögreglumanni sem er ætlað að gæta öryggis Charlies.

Handritið er skrifað af Dax Shepard sem fer einnig með aðalhlutverkið og leikstýrir myndinni ásamt David Palmer. Kristen Bell fer með hlutverk Annie og Bradley Cooper fer með hlutverk glæpamannsins og fyrrum félaga Charlies, Alex Dimitri. Með önnur hlutverk fara Tom Arnold og Kristin Chenoweth.

Shepard steig sín fyrstu skref í leiklistinni sem leikari í sjónvarpsþáttunum Punk'd með Ashton Kutcher. Hann lék einnig á móti Dane Cook og söngkonunni Jessicu Simpson í gamanmyndinni Employee of the Month árið 2006 sem og í myndinni Idiocracy. Shepard er trúlofaður leikkonunni Kristen Bell og ættu þau því ekki að hafa átt í neinum vandræðum með að leika ástfangið par í kvikmyndinni.

Gagnrýnendur gefa myndinni 45 prósent ferskleikastig á vefsíðunni Rottentomatoes.com. Sumir segja myndina vera sem ferskan blæ inn í kvikmyndaflóruna en aðrir segja fátt annað spennandi við myndina en bílarnir. „Myndin er hvorki fyndin né spennandi, en í henni eru margir fallegir bílar," skrifar gagnrýnandi Chicago Reader.

Áhorfendur er eilítið jákvæðari í garð myndarinnar og gefa henni 58 prósent ferskleikastig. Gagnrýnendur á vefsíðunni Metacritic.com eru sama sinnis og segja kvikmyndina sæmilega afþreyingu en langt því frá að vera stórvirki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.