Tónlist

Kvintett með Slowscope

fyrsta platan The Heavy Experience hefur gefið út sína fyrstu stóru plötu.
fyrsta platan The Heavy Experience hefur gefið út sína fyrstu stóru plötu.
Kvintettinn The Heavy Experience hefur sent frá sér sína fyrstu stóru plötu, Slowscope. Áður hefur sveitin gefið út samnefnda stuttskífu.

Tónlist The Heavy Experience er illlýsanleg blanda drunutónlistar og djass; einföld en ákveðin, þunglamaleg en skýr.

Slowscope kemur aðeins út á 12 tommu hljómplötu, en platan er skorin í 180 gramma jómfrúarvínylblöndu. Þess ber að geta að geisladiskur fylgir vínylplötunni. Útgefendur eru Kimi Records og Úsland, útgáfufélag hljómsveitarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.