Erlent
71 72 73 74 75 76 77 78 79 … 334 ›
Kínverjar hvetja Vesturlönd til þess að sýna þolinmæði vegna Darfur Kína varði í morgun afstöðu sína til mála í Darfur-héraði Súdan og hvatti Vesturlönd til þess að sýna þolinmæði í málefnum þess. Á sama tíma gagnrýndu Vesturlönd Kína og sögðu að afstaða þeirra gæti dregið úr þeirri velvild sem landið fær vegna Ólympíuleikanna sem fara fram í Peking á næsta ári. Erlent 27.7.2007 10:19
Villipen sætir rannsókn Formleg rannsókn er hafin á framferði Dominiques de Villepin, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands í tengslum við meinta rógsherferð gegn Nicolas Sarkozy fyrir síðustu forsetakosningar. Dreift var fölsuðum lista yfir menn sem áttu innistæðu í fjármálafyrirtæki í Luxembourg. Nafn Sarkozys var á þeim lista. Erlent 27.7.2007 09:44
Rússar aðstoða Grikki í baráttunni við skógarelda Rússar ætla að senda fimm flugvélar til Grikklands sem eiga að aðstoða við að slökkva skógarelda sem geisa í landinu. Karamanlis, forsætisráðherra Grikklands, hafði samband við Vladimir Putin, forseta Rússlands, og bað hann um aðstoð við að slökkva skógareldana. Erlent 26.7.2007 23:09
Fullir geimfarar Geimfarar hjá Nasa hafa að minnsta kosti tvisvar farið út í geim undir áhrifum áfengis. Þetta kemur fram í rannsókn sem stendur nú yfir á starfsemi stofnunarinnar og sagt er frá í tímaritinu Aviation Week & Space Technology. Erlent 26.7.2007 21:36
Búlgörsk börn boðin til sölu Búlgörsk börn eru boðin til sölu á um 60 þúsund evrur með loforði um að þeim verði smyglað til annarra landa. Þetta kemur fram í nýjum sjónvarpsþætti sem fréttamenn á vegum BBC hafa unnið. Erlent 26.7.2007 20:39
Grátbað um hjálp Suður-kóresk kona, sem Talibanar hafa haldið í gíslingu í rúma viku, grátbað um hjálp í símaviðtali sem bandaríska sjónvarpsstöðin CBS spilaði í dag. Konan er ein af 23 Suður-Kóreubúum sem Talibanar rændu fyrir viku síðan. Talibanarnir myrtu einn gíslanna í gær. Erlent 26.7.2007 19:34
Shambo færður til slátrunar Farið var með heilaga nautið Shambo til slátrunar í dag. Shambo sem er í eigu munka í hindúaklaustri í Wales greindist með berkla í apríl og hefur áfrýjunardómstóll skipað svo fyrir að honum skuli slátrað til að koma í veg fyrir smit. Erlent 26.7.2007 17:58
Evrópsk dagblöð vilja stöðva Tour de France Dagblöð víðs vegar um Evrópu vilja flauta Tour de France keppninna af vegna mikils hneykslis sem við kemur lyfjanotkun hjólreiðkappa. Þrír keppendur hafa verið dæmdir úr leik vegna þessa, tveir féllu á lyfjaprófi og einn mætti ekki í lyfjapróf. Michael Rasmussen, Cristian Moreni og Alexandre Vinokourov hafa verið dæmdir úr leik. Erlent 26.7.2007 17:23
Raul Castro tilbúinn að opna landið fyrir erlendri fjárfestingu Sitjandi forseti Kúbu, Raul Castro, lofaði í dag því að bæta efnahaginn á Kúbu og bauð viðræður við Bandaríkjastjórn þegar að ríkisstjórn George W. Bush væri farin frá völdum. Í dag var byltingardagur Kúbu en þá er haldið upp á fyrstu árás Fidels Castro á herstöð stjórnarinnar árið 1953. Erlent 26.7.2007 16:42
Íslenskir karlmenn eru sko alls engar gungur Íslenskir karlmenn lifa lengst allra karlmanna, eða 79,4 ár. Í öðru sæti koma Japanir með 79 ár slétt. Japanskar konur lifa hins vegar lengst kvenna, eða 85,8 ár. Á eftir þeim koma konur frá Taívan, Spáni og síðan Sviss. Þær íslensku geta vænst þess að lifa 82,6 ár. Erlent 26.7.2007 15:56
Garðsláttur í bikini Umsvifin hjá litlu garðsláttufyrirtæki í Memphis í Tennessee hafa margfaldast eftir að það byrjaði að senda bikini klæddar stúlkur til þess að slá garðana hjá fólki. Karlmenn sem áratugum saman hafa slegið garða sína sjálfir eru allt í einu búnir að fá í bakið, og þurfa nauðsynlega að fá aðra til þess að slá fyrir sig. Erlent 26.7.2007 15:40
20 létust og 60 særðust í bílsprengju í Bagdad í dag 20 létust og fleiri en 60 særðust þegar að bílsprengja sprakk við gatnamót í Karrada hverfinu í miðborg Bagdad í dag. Það kviknaði í að minnsta kosti einni byggingu við sprenginguna og fjölmargir bílar urðu eldinum að bráð. Mestmegnis sjía múslimar búa í Karrada hverfinu í Bagdad. Erlent 26.7.2007 15:40
Logandi kráka kveikti í akri Slökkviliðsstjórinn í Enköping segist aldrei hafa upplifað nokkuð þessu líkt. Atburðarrásin var þannig að krákan flaug á rafmagnslínu og drapst. Það kviknaði í henni og logandi hræið féll niður á akurinn. Þar lá þurrt hey sem kviknaði í. Erlent 26.7.2007 15:20
Fleiri en 50 talibanar felldir í Afganistan í dag Bandarískar hersveitir, með stuðningi flughersins, drápu fleiri en 50 uppreisnarmenn talibana í bardögum í suðurhluta Afganistan í dag. Ekkert mannfall varð hjá bandaríska hernum í átökunum sem stóðu yfir í tólf tíma. Erlent 26.7.2007 14:46
Einn æðsti stjórnendi ETA handtekinn Alfredo Perez, innanríkisráðherra Spánar, skýrði frá því í dag að franska lögreglan hefði handtekið einn af æðstu yfirmönnum ETA. aðskilnaðarhreyfingar Baska, Juan Cruz Maiza Artola. Hann og tveir aðrir meðlimir ETA voru handteknir í bænum Rodez. Perez sagði Artola hafa stjórnað flutningum og aðföngum hjá ETA og því augljóst að handtaka hans sé mjög mikilvægur atburður. Erlent 26.7.2007 14:16
Nakin vændiskona í hásæti Danadrottningar Dönsk vændiskona komst með einhverjum furðulegum hætti inn í hásætissalinn í Kristjánsborgarhöll. Þar svipti hún sig klæðum, stillti upp myndavél og tók 29 mynda syrpu af sjálfri sér. Meðal annars tók hún myndir af sér í hásæti Margrétar Danadrottningar. Og þar sem hún sat klofvega á sætisörmunum á hásæti drottningarinnar og Hinriks prins. Erlent 26.7.2007 14:01
Prinsessan er útsendari helvítis Þekktur norskur prestur hefur ráðst heiftarlega á Mörtu Lovísu prinsessu eftir að hún upplýsti að hún gæti talað við engla og dýr, og stofnaði nýaldar-skóla ásamt vinkonu sinni. Jan Hanvold sem er frægur sjónvarpsprestur segir að prinsessan sé útsendari frá helvíti. Erlent 26.7.2007 11:57
Rússar segja að kjarnorkuver hefji starfsemi snemma á næsta ári Aðstoðarutanríkisráðherra Rússa tilkynnti í morgun að kjarnorkuverið sem þeir séu að byggja í Íran hefji starfsemi sína á fyrri hluta næsta árs. Rússar hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að byggja kjarnorkuverið og höfðu því tafið framkvæmdir við það. Erlent 26.7.2007 11:10
Bloomberg opnar vefsíðun Mike2008.com Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, hefur opnað vefsvæðið Mike2008.com en margir telja það benda til þess að hann ætli sér að bjóða sig fram sem óháður frambjóðandi í forsetakosningunum á næsta ári. Á nýju heimasíðu sína skrifar Bloomberg að þar fái fólk tækifæri til þess að kynnast honum og stefnumálum hans. Erlent 26.7.2007 10:37
Enn unnið að lausn 22 Suður-Kóreumanna Stjórnvöld í Suður-Kóreu vinna enn að því að reyna að tryggja lausn 22 Suður-Kóreumanna sem talibanar halda í gíslingu. Talibanar hafa þegar tekið einn gísl af lífi en þeir krefjast þess að Suður-Kórea dragi alla hermenn sína frá Afganistan og láti lausa talibana í haldi bandamanna. Erlent 26.7.2007 10:00
Þjóðverjar hatast við Tom Cruise Tom Cruise hefur orðið fyrir heiftarlegum árásum opinberra aðila í Þýskalandi. Þar hefur hann verið við tökur á kvikmynd um tilræðið við Adolf Hitler í júlí árið 1944. Cruise hefur meðal annars verið líkt við Jósef Göbbels, áróðursmeistara Hitlers. Óánægja Þjóðverja virðist eiga sér trúarlegar rætur. Erlent 26.7.2007 09:52
Putin ætlar að halda völdum yfir leyniþjónustunni Aðstoðarmenn Vladimir Putin, forseta Rússlands, hafa ákveðið að auka völd sérstaks öryggisráðs og gera það nærri jafn valdamikið og ríkisstjórnina. Putin hefur ítrekað sagt að hann ætli sér að halda pólitískum áhrifum þegar að hann yfirgefur embætti forseta á næsta ári og talið er að öryggisráðið geti orðið valdastöð hans. Erlent 26.7.2007 09:36
Talibanar taka suður-kóreskan gísl af lífi Talibanar hafa tekið af lífi einn af þeim 23 suður-kóresku gíslum sem þeir hafa haft í haldi síðustu daga. Þetta hefur fréttastofan Reuters eftir Qari Mohammad Yousuf talsmanni Talibana. Erlent 25.7.2007 22:32
Bandarískir læknar útskrifast frá kúbverskum skóla Átta bandarískir nemendur útskrifuðust fyrir skömmu sem læknar frá kúbanska læknaskólanum, Latin American School of Medicine in Havana, eftir sex ára gjaldfrjálst nám. Læknarnir hyggjast allir snúa aftur heim til Bandaríkjanna og sækja um starfsréttindi til að geta starfað sem læknar á þarlendum sjúkrahúsum. Erlent 25.7.2007 21:45
Dönskum blaðamanni rænt en sleppt sólarhring síðar Talibanar í Afganistan tóku danskan blaðamann og túlk hans sem gísl og héldu þeim föngum í sólarhring. Þeim var báðum sleppt þegar Talibanarnir komust að því að Daninn var múslimi. Erlent 25.7.2007 21:09
Fimmtíu fótboltaunnendur látnir í bílsprengjum í Bagdad Tvær bílsprengjur urðu fimmtíu manns að bana í Bagdad í dag og særðu 135. Sprengjunum var beint að fólki sem var að fagna sigri írakska landsliðsins í knattspyrnu í undanúrslitum Asíukeppninnar, en liðið vann Suður-Kóreu í vítaspyrnukeppni. Erlent 25.7.2007 19:28
Brostin olíuleiðsla svartmálaði hús og bíla Vegavinnumenn sem voru að störfum í Burnaby fyrir utan Vancouver í Canada í gær urðu fyrir því óhappi að grafa í sundur olíuleiðslu með þeim afleiðingum að olía sprautaðist yfir 180 metra svæði. Olíugosbrunnurinn sem myndaðist náði 12 metra upp í loft og tók um 20 mínútur að stöðva lekann. Erlent 25.7.2007 17:31
Frakkland og Líbýa taka upp samvinnu á sviði hergagnaframleiðslu Líbýa og Frakkland ætla sér að skrifa undir samstarfssamning varðandi framleiðslu á hergögnum á meðan heimsókn Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, stendur yfir. Erlent 25.7.2007 16:52
Disney bannar reykingar í kvikmyndum sínum Walt Disney Co. hefur ákveðið að banna allar reykingar í kvikmyndum sem að framleiddar eru undir merki þess. Ennfremur ætlar það að hvetja dótturfyrirtæki sín, Miramax og Touchstone, til þess að draga úr reykingum í kvikmyndum sínum. Þá hefur það einnig ákveðið að setja slagorð gegn reykingum á umbúðir allra DVD-mynda sem að reykt er í. Erlent 25.7.2007 16:24
Putin segir nauðsynlegt að styrkja rússneska herinn Vladimir Putin, forseti Rússlands, sagði í dag að nauðsynlegt væri að byggja upp herinn og njósnastarfsemi landsins vegna nýrra ógna, þar á meðal uppbyggingu bandarísks eldflaugakerfis í Austur-Evrópu. Putin sagði þetta á fundi með háttsettum yfirmönnum í hernum og leyniþjónustunni í dag. Erlent 25.7.2007 16:12
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent