Erlent

Fleiri en 50 talibanar felldir í Afganistan í dag

Bandarískar hersveitir, með stuðningi flughersins, drápu fleiri en 50 uppreisnarmenn talibana í bardögum í suðurhluta Afganistan í dag. Ekkert mannfall varð hjá bandaríska hernum í átökunum sem stóðu yfir í tólf tíma.

Fleiri en 160 uppreisnarmenn hafa látið lífið í bardögum í suðurhluta Afganistan síðan á sunnudaginn. Ekki náðist í talsmenn talibana til þess að staðfesta tölurnar. Tveir íbúar á svæðinu sögðu að 16 almennir borgarar hefðu látið lífið í árásunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×