Erlent

Rússar segja að kjarnorkuver hefji starfsemi snemma á næsta ári

Aðstoðarutanríkisráðherra Rússa tilkynnti í morgun að kjarnorkuverið sem þeir séu að byggja í Íran hefji starfsemi sína á fyrri hluta næsta árs. Rússar hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að byggja kjarnorkuverið og höfðu því tafið framkvæmdir við það.

Ástæðuna sögðu þeir vera tregðu Írana til þess að borga mánaðarlegar greiðslur en Íranar sögðust ávallt hafa staðið skil á greiðslum sínum. Talið er það þrýstingur Vesturlanda hafi verið raunverulega ástæðan á bak við ákvörðun Rússa að fresta byggingu kjarnorkuversins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×