Erlendar
155 156 157 158 159 160 161 162 163 … 264 ›
Ítalir taplausir í 19 leikjum Sigur Ítala á Gana í gær markaði 19. leikinn í röð sem liðið spilar án þess að tapa. Aðeins einu sinni áður í sögu ítalska landsliðsins hefur það spilað fleiri leiki í röð án þess að tapa, en það var fyrir 70 árum síðan. Sport 13.6.2006 11:40
Vidic gæti misst af HM Varnarmaðurinn Nemanja Vidic frá Manchester United gæti misst af heimsmeistaramótinu eftir að hann meiddist illa á hné á æfingu serbneska landsliðsins í gær. Vidic tók út leikbann í fyrsta leik Serba á mótinu og því er útlit fyrir að hann nái ekki að spila einn einasta leik í keppninni. Sport 13.6.2006 11:30
Bayern hefur áhuga á Nistelrooy Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa gefið það út að félagið hafi áhuga á að kaupa hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy frá Manchester United ef hann er til sölu. Mikil óvissa ríkir um framtíð hans á Englandi eftir að hann lenti í deilum við knattspyrnustjórann Alex Ferguson. Sport 13.6.2006 10:03
Ensk félög bítast um Duscher Ensku úrvalsdeildarfélögin West Ham og Manchester United eiga nú í samningaviðræðum við Deportivo La Coruna um kaup á Aldo Duscher miðjumanni Deportivo. Deportivo menn hafa hvatt félögin til þess að bjóða í leikmanninn, en í gær tryggðu þeir sér Jordi Lopez frá Sevilla sem koma á í stað Duscher. Sport 13.6.2006 03:40
Viduka á leið til Liverpool Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, sé að undirbúa tilboð í Mark Viduka framherja Middlesbrough. Gareth Southgate, nýráðinn knattspyrnustjóri Middlesbrough, er sagður vilja losna við Viduka, en talið er að Liverpool get fengið leikmanninn fyrir aðeins 1.5 milljón punda. Sport 13.6.2006 03:34
Adriano hvetur Emerson til að leika með Inter Adriano, framherji Brasilíu og Inter á Ítalíu, hvetur landa sinn Emerson til þess að fara til Inter, fari svo að Juventus verði dæmt niður um deild. Emerson hefur áður sagt að það komi ekki til greina að spila í Ítölsku B deildinni og því ljóst að hann muni yfirgefa félagið fari svo að það verði dæmt niður um deild. Fótbolti 13.6.2006 03:30
Óvissa með Justo Villar Justo Villar, markvörður Paragvæ, mun fara í læknisskoðun í dag þar sem úr því verður skorið hvort að leikmaðurinn verði meira með á HM. Fótbolti 13.6.2006 03:27
Bera til baka fregnir af slagsmálum Svía Forráðamenn sænska landsliðsins neita þeim orðrómi að slagsmál hafi brotist út í búningsherbergi þeirra eftir jafnteflið gegn Trinidad & Tobago. Fjölmiðlar hafa greint frá því að Freddy Ljungberg og Olaf Mellberg hafi lent í ryskingum inn í klefa sænska landsliðsins eftir leikinn, en forráðamenn sænska landsliðsins segja það algjöra vitleysu. Fótbolti 13.6.2006 03:23
Koller klár í 16 liða úrslit Jan Koller, framherji Tékklands, er bjartsýnn á að geta spilað meira fyrir Tékka á HM. Koller tognaði á læri í leik Tékklands og Bandaríkjanna í dag og var búist við því að hann yrði ekki meira með á mótinu. Fótbolti 13.6.2006 03:18
Franck Ribery í byrjunarliði Frakka Þjálfari Frakka Raymond Domenech hefur tilkynnt lið sitt fyrir leikinn á móti Svisslendingum. Uppstillingin er nákvæmlega eins og franska blaðið L'Equipe greindi frá í dag. Sport 12.6.2006 22:11
Ítalir eru til alls líklegir eftir 2-0 sigur Leik Ítalíu og Gana er lokið með 2-0 sigri Ítalíu. Það var Adrea Pirlo sem kom Ítölum yfir á 40. mínútu með góðu skoti fyrir utan vítateig. Vincenzo Iaquinta skoraði seinna markið á 83. mínútu. Sport 12.6.2006 20:55
Ítalir yfir gegn Gana Ítalir hafa yfir 1-0 gegn Gana í hálfleik í viðureign liðanna í e-riðli HM. Það var miðjumaðurinn Andrea Pirlo sem skoraði mark ítalska liðsins á 40. mínútu með glæsilegu langskoti utan teigs. Ítalska liðið hefur nokkuð óvænt boðið upp á skemmtilegan sóknarbolta, en Ganamenn eru þó enn til alls líklegir. Sport 12.6.2006 20:02
Ítalía - Gana að hefjast Seinni leikur dagsins í e-riðlinum á HM er nú að hefjast og þar er á ferðinni mjög athyglisverður leikur Ítalíu og Gana. Byrjunarliðin eru klár og ítalska liðið getur aftur teflt fram Rómverjanum Francesco Totti sem er stiginn upp úr erfiðum meiðslum. Sport 12.6.2006 18:32
Shaquille O´Neal sektaður Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat hefur verið sektaður um 10.000 dollara fyrir að veita ekki viðtöl eftir tapleikinn gegn Dallas í nótt. Dallas vann leikinn örugglega og hefur náð 2-0 forystu í einvíginu um NBA meistaratitilinn, en O´Neal átti sinn versta leik á ferlinum í úrslitakeppni í gær. Sport 12.6.2006 18:21
Theo Walcott meiddur Táningurinn Theo Walcott hefur ekki geta æft með enska landsliðinu undanfarna daga vegna meiðsla og því er að verða fátt um fína drætti í framlínu enska landsliðsins. Michael Owen lék aðeins rúmar 50 mínútur í fyrsta leiknum og Wayne Rooney er enn meiddur eins og flestir vita. Peter Crouch er því í raun eini brúklegi framherji enska liðsins sem stendur og ekki laust við að menn setji spurningarmerki við val Sven-Göran Eriksson á landsliðshópnum. Sport 12.6.2006 18:13
Einbeitingarleysi okkar kostaði tap Zico, hinn brasilíski þjálfari japanska landsliðsins, segir að hitinn á Fritz Walter-vellinum í dag og einbeitingarleysi leikmanna sinna, hafi kostað sína menn sigurinn. Sport 12.6.2006 18:00
Joe Cole skrifar undir nýjan samning Enski landsliðsmaðurinn Joe Cole undirritaði í dag nýjan fjögurra ára samning við Englandsmeistara Chelsea. Cole er 24 ára gamall og var einn af fyrstu leikmönnunum sem Roman Abramovich keypti til liðsins í stjórnartíð Claudio Ranieri. Honum gekk illa að vinna sér sæti í liðinu framan af, en er nú orðinn einn af lykilmönnunum í liði Jose Mourinho. Sport 12.6.2006 17:54
Öruggur sigur Tékka Tékkar unnu öruggan 3-0 sigur á Bandaríkjamönnum í e-riðli HM í dag. Jan Koller skoraði fyrsta markið með glæsilegum skalla á 5. mínútu, en þurfti síðar að fara meiddur af velli. Tomas Rosicky, leikmaður Arsenal, skoraði annað markið með stórglæsilegu skoti á 36. mínútu og innsiglaði svo sigurinn í síðari hálfleik með öðru marki sínu. Sport 12.6.2006 17:49
Frábær fyrri hálfleikur hjá Tékkum Tékkar hafa sannarlega verið í essinu sínu í fyrri hálfleik gegn Bandaríkjamönnum í leik liðanna í e-riðli. Risinn Jan Koller kom liðinu yfir eftir aðeins 5 mínútur og Tomas Rosicky bætti við öðru marki á 36. mínútu með stórkostlegu langskoti. Tékkar urðu svo fyrir áfalli skömmu fyrir leikhlé þegar Koller var borinn af velli meiddur á læri og svo gæti farið að hann væri því búinn að spila sinn fyrsta og síðasta leik fyrir Tékka í keppninni. Sport 12.6.2006 16:41
Getum vonandi strítt Englendingum Stern John verður einn í framlínu Trinidad og Tobago þegar liðið tekur á móti Englendingum í Nurnberg á fimmtudaginn. Trinidad er þegar orðið eitt af spútnikliðunum í keppninni eftir jafntefli við Svía. Sport 12.6.2006 16:33
Við unnum verðskuldað Guus Hiddink, þjálfari Ástrala, sagði sigur sinna manna á Japan í f-riðli hafa verið fyllilega verðskuldaðan í dag. "Það var eins gott fyrir dómarann að við höfðum sigur, því honum hefði ekki liðið vel ef við hefðum tapað, því hann hefði aldrei átt að leyfa marki Japana að standa. Lið mitt sýndi styrk sinn í dag og gefst aldrei upp, enda er það sá hlutur sem mér þykir vænst um við þetta lið," sagði Hiddink. Sport 12.6.2006 15:48
Leikur Tékka og Bandaríkjamanna að hefjast Nú styttist í að leikur Tékka og Bandaríkjamanna í e-riðli HM hefjist og búið er að tilkynna byrjunarliðin. Milan Baros, leikmaður Aston Villa, er ekki í byrjunarliði Tékka vegna meiðsla og því verður hinn stóri Jan Koller einn í framlínunni. Brian McBride hjá Fulham er í framlínunni hjá Bandaríkjamönnunum. Sport 12.6.2006 15:35
Pfister snýr aftur á bekkinn Hinn þýski Otto Pfister hefur nú hætt við að hætta að þjálfa landslið Tógó á HM og mun stýra liðinu gegn Suður-Kóreu á morgun. Pfister hætti um helgina eftir að launadeila kom upp milli leikmanna og knattspyrnusambandsins, en hefur nú snúið aftur eftir að hann fékk bréf frá forseta knattspyrnusambandsins sem bað hann að endurskoða ákvörðun sína. Sport 12.6.2006 15:16
Frábær sigur Ástrala Ástralir unnu dramatískan sigur á Japönum í opnunarleik f-riðilsins á HM í dag. Shunsuke Yakamura kom Japan yfir í fyrri hálfleik þegar fyrirgjöf hans skoppaði í net Ástrala, en varamaðurinn Tim Cahill var hetja liðsins og skoraði tvö mörk á fimm mínútum í lokin. John Aloisi bætti svo við þriðja markinu í uppbótartíma. Sport 12.6.2006 15:05
Roy Keane leggur skóna á hilluna Knattspyrnugoðsögnin Roy Keane hjá Glasgow Celtic hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla á mjöðm. Keane gerði garðinn frægan hjá Manchester United lengst af á ferlinum og vann alla titla þá titla sem knattspyrnumanni standa til boða með liðinu. Keane verður minnst sem eins af betri leikmönnum í sögu Manchester United og ensku úrvalsdeildarinnar. Sport 12.6.2006 13:24
Dallas valtaði yfir Miami Flestir bjuggust við að annar leikur Dallas Mavericks og Miami Heat í úrslitarimmu NBA deildarinnar yrði æsispennandi, en annað átti sannarlega eftir að koma á daginn. Dallas-liðið var betra á öllum sviðum leiksins í nótt og vann auðveldan 99-85 sigur og hefur náð 2-0 forystu í einvíginu. Sport 12.6.2006 05:41
Dallas - Miami í beinni á Sýn í kvöld Annar leikur Dallas Mavericks og Miami Heat í lokaúrslitum NBA deildarinnar í körfubolta fer fram í Dallas í kvöld. Dallas vann fyrsta leikinn á fimmtudag og eftir leik kvöldsins færist einvígið til Flórída, þar sem næstu þrír leikir fara fram. Leikur kvöldsins verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst klukkan eitt eftir miðnætti. Sport 11.6.2006 21:20
Portúgalar lögðu Angóla Portúgalar lögðu Angóla 1-0 í lokaleik dagsins í d-riðlinum á HM. Það var Pauleta sem skoraði markið strax í upphafi, en hafi einhver haldið að framhaldið byði upp á markasúpu, átti annað eftir að koma á daginn. Portúgalar og Mexíkóar eru því komnir með 3 stig á toppi riðilsins, en Mexíkó lagði Íran 3-1 fyrr í dag. Sport 11.6.2006 20:51
Portúgal yfir í hálfleik Portúgalar hafa yfir 1-0 gegn Angóla þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í d-riðlinum á HM. Það var Pauleta sem skoraði mark portúgalska liðsins strax á 4. mínútu, en Portúgalarnir hafa verið mun sterkari í hálfleiknum. Sport 11.6.2006 19:48
Powell jafnaði heimsmetstímann Spretthlauparinn Asafa Powell jafnaði heimsmet sitt og Justin Gatlin í 100 metra hlaupi í Gateshead á Englandi í dag þegar hann hljóp vegalengdina á 9,77 sekúndum. Þetta er í annað sinn á rúmu ári sem Powell nær þessum tíma og er einvígi þeirra tveggja þann 28. júlí nk því beðið með gríðarlegri eftirvæntingu. Sport 11.6.2006 19:22
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent