Sport

Frábær sigur Ástrala

Ástralska liðið hafði góða ástæðu til að fagna í dag
Ástralska liðið hafði góða ástæðu til að fagna í dag
Ástralir unnu dramatískan sigur á Japönum í opnunarleik f-riðilsins á HM í dag. Shunsuke Yakamura kom Japan yfir í fyrri hálfleik þegar fyrirgjöf hans skoppaði í net Ástrala, en varamaðurinn Tim Cahill var hetja liðsins og skoraði tvö mörk á fimm mínútum í lokin. John Aloisi bætti svo við þriðja markinu í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×