Viðskipti
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 223 ›
Úrvalsvísitalan hangir við 4.000 stigin Nokkur viðsnúningur varð á gengi banka og fjármálafyrirtækja í Kauphöllinni eftir hækkun í fyrstu viðskiptum. Í byrjun dags leiddi Eimskipafélagið nokkra hækkun. Nú er gengi skipaflutningafélagsins hins vegar eitt á uppleið á meðan gengi bankanna hefur lækkað. Viðskipti innlent 10.9.2008 10:37
Gengi bankanna hækkar Gengi Landsbankans, Straums, Glitnis og Kaupþings hefur hækkað mest í dag ef frá er skilin mikil hækkun á gengi Eimskipafélagsins. Bréf í skipaflutningafélaginu rauk upp um rúm tíu prósent á fyrstu mínútum viðskiptadagsins og bætti tæpum þremur prósentum við sig nokkrum mínútum síðar. Viðskipti innlent 10.9.2008 10:07
Eimskip skýst upp um 10 prósent Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu rauk upp um rétt rúm tíu prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í morgun. Fram hefur komið að feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson fari fyrir hópi fjárfesta sem er tilbúinn til að veita Eimskip víkjandi lán uppá 26 milljarðar fari svo að ábyrgð vegna XL Leisure Group falli á félagið. Viðskipti innlent 10.9.2008 10:03
Krónan styrkist lítillega Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst um 0,3 prósent í upphafi dags á gjaldeyrismarkaði og stendur gengisvísitalan í 168,5 stigum. Vísitalan endaði í rétt rúmum 169 stigum í gær og hafði þá aldrei verið hærri, eða síðan Seðlabankinn tók að skrá vísitöluna um áramótin 1993. Viðskipti innlent 10.9.2008 09:32
Lækkun á flestum mörkuðum Hlutabréf hafa almennt lækkað í verði á meginlandi Evrópu og í Asíu í dag. Hrun gengis á bandaríska fjárfestingabankanum Lehman Brothers dró alþjóðlega hlutabréfamarkaði niður í gær. Viðskipti erlent 10.9.2008 09:17
Gengi Lehmans Brothers hrundi um 40 prósent Gengi hlutabréfa í Lehman Brothers, fjórða umsvifamesta fjárfestingabanka Bandaríkjanna hrundi um 45 prósent á hlutabréfamarkaði í dag og dró markaðinn með sér í fallinu vestanhafs. Viðskipti erlent 9.9.2008 20:33
Lækkunarhrina í Kauphöllinni Lækkunarhrina einkenndi daginn í Kauphöllinni í dag. Gengi hlutabréfa í Eik banka og Bakkavör var það eina sem hækkaði á meðan gengi annarra lækkaði. Viðskipti innlent 9.9.2008 15:39
Bréf Eimskips sigldu niður Gengi bréfa í Eimskipafélaginu féll um rúm 8,2 prósent í dag. Félagið hefur misst tæpan fjórðung af markaðsverðmæti sínu á tveimur dögum. Viðskipti innlent 9.9.2008 15:30
Bandaríkjadalur kominn í níutíu kallinn Gengi íslensku krónunnar hefur veikst um 0,95 prósent innan dags í dag og stendur gengisvísitalan í 167,9 stigum. Bandaríkjadalur hefur styrkst nokkuð að sama skapi og kostar nú rúmar 90,3 krónur. Hann hefur ekki verið dýrari síðan snemma í júní árið 2002. Viðskipti innlent 9.9.2008 12:34
Spron og Eimskip lækka mest Gengi hlutabréfa Spron féll um 2,9 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í morgun. Bréf Eimskipafélagsins fór niður um 1,45 prósent á sama tíma. Bréf félagsins voru færð á Athugunarlista í morgun. Gengi bréfa í félaginu féll um tæp 16,5 prósent í gær. Við áramótin stóð gengið í 34,9 krónum á hlut og nemur fall þess nú 70,7 prósentum á þeim tíma. Viðskipti innlent 9.9.2008 10:06
Hlutabréf hækka í Evrópu Gengi hlutabréfa hefur almennt hækkað á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag, annan daginn í röð. Hækkanahrina gekk yfir fjármálaheiminn í gær eftir að bandarísk stjórnvöld tilkynntu um tímabundna yfirtöku á hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac á sunnudag. Viðskipti erlent 9.9.2008 09:45
Bréf Eimskips sett á athugunarlista Kauphallarinnar Hlutabréf í Eimskipafélaginu hafa verið færð á athugunarlista í Kauphöllinni. Þetta er gert í tengslum við skilyrði Kauphallarinnar fyrir töku hlutabréfa til viðskipta, vegna umtalsverðrar óvissu varðandi verðmyndun vegna hættu á ójafnræði meðal fjárfesta, líkt og segir í tilkynningu. Viðskipti innlent 9.9.2008 09:30
Olíuverðið við hundrað dali á tunnu Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað nokkuð í dag og liggur það nú í rúmum 102 dölum á tunnu. Fundur Samtaka olíuútflutningsríkja (OPEC-ríkjanna) sem haldinn verður síðar í dag skýrir lækkunina. Reiknað er með að OPEC-ríkin ákveði að halda framleiðslukvótum óbreyttum. Viðskipti erlent 9.9.2008 09:17
"Þjóðnýtingin" gladdi bandaríska fjárfesta Gengi hlutabréfa hækkaði almennt á bandarískum fjármálamarkaði í dag í kjölfar yfirtöku ríkisins á fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac. Þetta er jafnframt umfangsmesta björgunaraðgerð í sögu fjármálageirans. Viðskipti erlent 8.9.2008 20:44
Glitnir með tæp níu prósent í Atorku Glitnir keypti í dag 300 milljón hluti í Atorku Group fyrir rúma 1,4 milljarða króna. Hlutirnir voru í eigu Atorku, samkvæmt flöggun félagsins. Þetta jafngildir 8,89 prósenta hlut í félaginu. Viðskipti innlent 8.9.2008 17:42
Gengi Eimskipafélagsins féll um 16,5 prósent Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um tæp 16,5 prósent undir lok viðskipta í Kauphöllinni í dag. Að öðru leyti einkenndist dagurinn af hækkun hlutabréfaverðs. Viðskipti innlent 8.9.2008 15:42
Gengi Fannie Mae og Freddie Mac hrundi Gengi hlutabréfa í hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac hrundi um rúm áttatíu prósent við upphaf viðskiptadagsins í Bandaríkjunum í dag. Þetta er nokkurn vegin í samræmi við væntingar eftir að tilkynnt var í gær að stjórnvöld hafi tekið yfir stjórn stjóðanna. Viðskipti erlent 8.9.2008 13:34
Stefnir í mikla hækkun vestanhafs Allt stefnir í mikla hækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði við upphafi viðskiptadagsins. Skýringin liggur í mikilli bjartsýni fjárfesta beggja vegna Atlantsála á yfirtöku ríkisins á hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac. Viðskipti erlent 8.9.2008 13:18
Bilun í bresku kauphöllinni Viðskipti liggja niðri í kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi vegna bilunar. Kauphöllin segir um tæknileg vandræði að ræða. Óvenjumikil velta með hlutabréf í dag kunni að hafa ofkeyrt kauphallarkerfið. Viðskipti erlent 8.9.2008 10:43
Spron upp um tæp 11 prósent Gengi hlutabréfa í Spron rauk upp um 10,77 prósent í hækkanahrinu við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag. Gengið stendur í 3,6 krónum á hlut, sem eru svipaðar slóðir og það stóð í við upphaf mánaðar. Viðskipti innlent 8.9.2008 10:06
Wood & Company eykur hlutdeild sína utan Tékklands Tékkneski fjárfestingabankinn Wood & Company, sem Straum-Burðarás á helmingshlut í, jók í ágústmánuði hlutdeild sína í miðlun verðbréfa í kauphöllum utan Tékklands. Hlutdeildin hefur aldrei verið hærri í Póllandi. Viðskipti innlent 8.9.2008 09:46
Krónan styrkist eftir mikla veikingu Gengi íslensku krónunnar hefur hækkað um 0,5 prósent á gjaldeyrismarkaði í dag og stendur gengisvísitalan í 162,8 stigum. Gengið lækkaði nokkuð í síðustu viku, þar af féll það um tvö prósent á föstudag. Viðskipti innlent 8.9.2008 09:35
Kaupþingsbréf stökkva upp í erlendri hækkanahrinu Hlutabréf í Kaupþingi sem skráð eru á markað í Stokkhólmi í Svíþjóð hafa hækkað um 3,32 prósent það sem af er dags. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum sem almennt einkennast af mikilli hækkun. Viðskipti erlent 8.9.2008 09:14
Vísitölur enduðu beggja vegna núllsins Helstu hlutabréfavísitölur Bandaríkjanna enduðu beggja vegna núllsins í dag og batt þar með enda á fjögurra daga samfellt lækkunarferli á þarlendum fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 5.9.2008 20:40
Atvinnuleysi eykst í Bandaríkjunum Atvinnuleysi mældist 6,1 prósent í síðasta mánuði, samkvæmt nýjustu tölum bandarísku vinnumálastofnunarinnar, sem birtar voru í dag. Þetta er 0,4 prósentustiga á milli mánaða en atvinnuleysið hefur ekki verið jafn mikið í tæp fimm ár. Viðskipti erlent 5.9.2008 13:10
Olíuverð lækkar - í samræmi við styrkingu bandaríkjadals Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað lítillega í dag. Þetta er í samræmi við styrkingu á gengi bandaríkjadals gagnvart helstu myntum, þar á meðal íslensku krónunni. Viðskipti erlent 5.9.2008 11:49
Krónan fellur um tvö prósent Gengi íslensku krónunnar hefur verið á viðstöðulausri niðurleið í morgun og nemur fall hennar nú rúmum tveimur prósentum. Gengisvísitalan stendur nú í 164,9 stigum. Viðskipti innlent 5.9.2008 11:23
Rabobank gefur út 13 milljarða krónubréf Hollenski bankinn Rabobank gaf í dag út krónubréf til eins árs fyrir þrettán milljarða króna. Þetta er stærsta útgáfan frá því í mars, eða síðan þrenginga fór að gæta á innlendum gjaldeyrisskipamarkaði. Viðskipti innlent 5.9.2008 10:51
Krónan veikist skyndilega á hálftíma Gengi krónunnar hefur veikst hastarlega frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði í dag, eða um 1,67 prósent, og stendur gengisvísitalan í 164,3 stigum. Viðskipti innlent 5.9.2008 10:17
Eik banki einn á uppleið - önnur félög lækka Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Eik banka hefur hækkað um 0,94 prósent í Kauphöllinni í dag eftir 6,2 prósenta fall í gær. Á móti einkennist upphaf viðskiptadagsins af lækkun hlutabréfaverðs. Viðskipti innlent 5.9.2008 10:08