Fjármagnaði uppsetningu í Iðnó en hrökk úr lið á frumsýningu Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 18. apríl 2025 21:44 „Ég held að öskrin mín hafi heyrst um alla bygginguna. Þetta var rosalegt og hnéð mitt er núna fimmfalt,“ segir Halldóra Björg Guðmundsdóttir, leikkona í sýningunni Ride the Cæclone. Gnosis Sviðslistakona sem lagði út fyrir uppsetningu leiksýningar sjálfsstæðs sviðslistahóps í Iðnó lenti í því óhappi á frumsýningu að falla í gólfið með þeim afleiðingum að hnéskel hennar fór úr lið. Sýninguna fjármagnaði hún með launum sínum hjá frístundaheimili í Reykjavík.
Halldóra Björg Guðmundsdóttir er einn sjö leikara í leikhópnum Gnosis sem stendur að uppsetningu söngleiksins Ride the Cæclone í Iðnó um þessar mundir. Hún, ásamt einum öðrum í hópnum, leggur út fyrir uppsetningunni úr eigin vasa. Bæði starfa þau á frístundaheimili. Hópurinn hafði mánuðum saman unnið hörðum höndum að sýningunni og mikil spenna ríkti fyrir frumsýningarkvöldinu á þriðjudaginn. Sýningin gekk smurt fyrir sig þar til í lokaatriðinu, þegar Halldóru skrikaði fótur. „Það er smá eftir af lokalaginu og við erum að dansa. Ég stíg eitthvað skringilega og dett í gólfið, og finn það í augnablikinu að það er eitthvað að,“ segir Halldóra í samtali við blaðamann. Konfettíið enn að hrynja Leikhópurinn flytur söngleikinn á ensku, og olli látbragð Halldóru eftir fallið því að áhorfendur virtust ekki klárir á hvað gengi á. Héldu jafnvel að fallið væri hluti af sýningunni. „Áhorfendur eru ekki að fatta fyrr en ég kalla á íslensku, ég er farin úr lið! Þá stoppar allt.“ segir Halldóra. Í framhaldinu hafi orðið uppi fótur og fit. Sjúkrabíll verið kallaður til og afar hjálplegur áhorfandi, sem reyndist gömul skátakona, aðstoðað hana. „Ég er föst á gólfinu og það er ennþá konfettí að hrynja úr loftinu. Ég ligg þarna í svona korter áður en sjúkrabíllinn kemur.“ Ride the Cæclone fjallar um kaþólskan kór sem deyr í rússíbanaslysi. Svartur húmor og vinsæl lög meðal ungra söngleikjaunnenda einkenna leiksýninguna. Gnosis Og hvað var það sem gerðist? „Hnéskelin mín fór úr lið. Þetta var meira að segja góða hnéð mitt sem er ákveðinn skellur,“ segir Halldóra kímin. Tekur þetta á hnefanum Þegar sjúkraflutningamenn bar að garði hafi henni verið kippt aftur í lið, enn uppi á sviði með nýhrunið konfettíið allt um kring. „Ég held að öskrin mín hafi heyrst um alla bygginguna. Þetta var rosalegt og hnéð mitt er núna fimmfalt.“ Atvikið olli því að aflýsa þurfti næstu sýningu, kvöldið eftir. Ákveðið svekkelsi í ljósi þess hve mikill vinna hefði farið í þetta allt saman. Hópurinn stefnir þó á aðra sýningu þann 30. apríl, þrátt fyrir að Halldóra segi hnéð sitt nú á við fimm. „Ég er svo andskoti þrjósk að ég læt þetta ekki stoppa mig.“ Ride the Cæclone er önnur sýningin sem leikhópurinn Gnosis setur upp. Gnosis Engin sýning án peninganna og Iðnó Sem fyrr segir hjálpast Halldóra og annar leikari í hópnum að við að fjármagna sýninguna úr eigin vasa. „Við erum bara áhugamenn um leikhús, vinnum bæði í frístund. Þannig að við erum bara að borga þetta sjálf. Annars væri engin sýning.“ Iðnó hefur styrkt hópinn með því að leyfa honum að sýna leiksýninguna endurgjaldslaust. „Við sóttum alls staðar um styrki og fengum sem betur fer þennan styrk frá Iðnó og fáum að vera þar. Án þeirra hefðum við ekki möguleika á að setja þetta upp,“ segir Halldóra. Sýningin er flutt á ensku, hvers vegna? „Ef við horfum á íslenska leiksamfélagið er rosalega lítið sýnt á ensku. Það eru margir sem búa hérna og tala ekki málið eða skilja ekki nógu mikið til að fara í hefðbundið leikhús. Við reynum að velja öðruvísi leikverk, eitthvað sem brennum fyrir, og ákváðum að sýna á ensku,“ segir Halldóra.
Leikhús Menning Tónlist Mest lesið „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Fjármagnaði uppsetningu í Iðnó en hrökk úr lið á frumsýningu Lífið Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Lífið Sunneva og Benedikt trúlofuð Lífið Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Áskorun Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið „Eina sem maður getur gert er að reyna vera betri maður í dag en þá“ Lífið Gengur yfir Sprengisand með hundrað kíló í eftirdragi Lífið „Ég vildi fela mig fyrir heiminum“ Lífið Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Fjármagnaði uppsetningu í Iðnó en hrökk úr lið á frumsýningu Sunneva og Benedikt trúlofuð Tónlistarmyndband Addison Rae tekið upp á Íslandi Gengur yfir Sprengisand með hundrað kíló í eftirdragi Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa Mælir með því að tala við gervigreind sem sálfræðing „Eina sem maður getur gert er að reyna vera betri maður í dag en þá“ „Ég vildi fela mig fyrir heiminum“ „Leyfi lífinu bara að leiða mig“ Annarri tilraun að Fyre-hátíðinni frestað um ókomna tíð Fanney og Teitur greina frá kyninu Sonur Ringo Starr rekinn úr The Who Drógu saman um 74 prósent í samgöngukostnað Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Ferðalög, heimsóknir eða huggulegheit heima framundan um páskana Hátíðlegur páskamatseðill að hætti Móniku á Apótekinu 100 áhrifamestu einstaklingar í heimi Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Breytt útlit Daða Freys vekur athygli Horfði á vin sinn fara í snjóflóði Falleg sérhæð í Hlíðunum Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Kærastan vill bara stunda kynlíf í bol Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Skuggavaldið: Dýrð og dauði dansa saman í blóði og bjarma Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Kastaði Pétri og Sveppa fram og til baka í indverskri glímu Sjá meira