Lífið

Gengur yfir Sprengi­sand með hundrað kíló í eftir­dragi

Bjarki Sigurðsson skrifar
Bergur Vilhjálmsson er slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður. Þessa kerru ætlar hann að draga frá Goðafossi út að Gróttuvita.
Bergur Vilhjálmsson er slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður. Þessa kerru ætlar hann að draga frá Goðafossi út að Gróttuvita. Vísir/Stefán

Maður sem ætlar að ganga rúmlega fjögur hundruð kílómetra með hundrað kílóa kerru í eftirdragi segir gönguna táknræna. Hann gengur til að vekja athygli á starfsemi Píetasamtakanna.

Í fyrravor gekk Bergur Vilhjálmsson hundrað kílómetra frá Akranesi til Reykjavíkur með níðþungan sleða í eftirdragi fyrir sama málstað.

Nú er komið að enn stærra verkefni því Bergur ætlar að ganga frá Goðafossi, gegnum Sprengisand, og til Reykjavíkur, rúmlega fjögur hundruð kílómetra leið. Þá verður hann með gula kerru í eftirdragi, sem mun vega um hundrað kíló.

„Þeir sem hafa farið Sprengisand vita að þetta er bara auðn. Þetta er pínulítið eins og að vera á tunglinu, sem er táknrænt fyrir Píetasamtökin. Þeir sem leita til þeirra halda oft að þeir séu bara aleinir í heiminum. Þannig mér finnst táknrænt að fara Sprengisand. Þetta er ekki auðveld leið, þetta er ekki bara þjóðvegurinn,“ segir Bergur.

Í kerrunni verða helstu nauðsynjar og á hverjum morgni mun Bergur lesa bréf frá aðstandendum þeirra sem hafa svipt sig lífi. Þá er kerran einnig táknræn.

„Þeir sem þurfa aðstoð hjá Píeta eru oft með mikla byrði til að draga. Þeir eru oft að draga hana einir. Það er það sem vagninn á að sýna, það eru byrðarnar sem fólk er að burðast með,“ segir Bergur. 

Gerð verður heimildamynd um gönguna og hægt verður að fylgjast með gangi mála og undirbúningnum á samfélagsmiðlum verkefnisins.

„Við ætlum að sýna hans sögu, búa til myndlíkingarnar sem fólk er að glíma við sem er að glíma við andlega vanlíðan. Svo er heildarmarkmiðið að okkur langar að ýta undir þennan málstað og stækka samfélagslegu áhrifin. Svona framtak eru auðvitað frábær en þau eru skammlíf, því þetta tekur stuttan tíma og deyr kannski út, en okkur langar að teygja þetta eins og við getum. Fara með þetta út um allt,“ segir Teitur Magnússon, leikstjóri. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.