Bretland
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 129 ›
Örlög Julian Assange ráðast í næstu viku Það kemur í ljós í næstu viku hvort Julian Assange fær heimild til að áfrýja framsalsmáli sínu einu sinni til viðbótar. Ef svarið verður nei, óttast eiginkona hans að hann verði fluttur til Bandaríkjanna innan fárra daga. Erlent 16.2.2024 07:33
Óvænt kreppa í Japan og Þýskaland tekur þriðja sætið Óvæntur samdráttur mældist á japanska hagkerfinu en verg landsframleiðsla dróst þar saman um 0,4 prósent á síðasta fjórðungi síðasta árs. Þar áður var 3,3 prósenta samdráttur og er nú tæknilega séð kreppa í Japan. Viðskipti erlent 15.2.2024 11:54
Yfir 700 hjúkrunarfræðingar grunaðir um svindl Rannsókn stendur yfir á Bretlandseyjum þar sem grunur leikur á að yfir 700 hjúkrunarfræðingar hafi greitt milligönguaðila fyrir að taka próf í Nígeríu, til að tryggja sér leyfi til að starfa á Bretlandi. Erlent 14.2.2024 10:30
Sár árásarmannsins gætu reynst banvæn Maðurinn sem skvetti sýru framan í 31 árs gamla konu og tvær dætur hennar í Lundúnum síðasta miðvikudag áður en hann lagði á flótta, er enn ófundinn. Sár hans gætu að sögn lögreglu reynst banvæn komist hann ekki undir læknishendur. Erlent 7.2.2024 17:59
Nógu heilsuhraustur fyrir símtal Breska forsætisráðuneytið tilkynnti fjölmiðlum sérstaklega að Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, hyggist ræða við Karl Bretakonung símleiðis í dag. Eins og greint var frá því á dögunum er Karl með krabbamein. Lífið 7.2.2024 16:09
Engir rauðir límmiðar lengur á Iittala Nýr listrænn stjórnandi Iittala hefur nú svipt hulunni af nýjum lit og merkingum fyrir merkið. Í stað rauða litarins sem hefur einkennt merkið í áratugi, og auðvitað rauðu límmiðana, er nú tekinn við gulur ferskari litur. Viðskipti erlent 7.2.2024 08:56
Sprenging í matarinnkaupum á netinu Íslendingar versluðu mest í erlendri netverslun frá Kína árið 2023 eða fyrir rúmlega sex milljarða króna. Verslun í erlendri vefverslun nam rúmlega helmingi af innlendir vefverslun sem eykst um fimmtung á milli ára. Sprenging hefur orðið í verslun á netinu í dagvöruverslunum. Neytendur 6.2.2024 14:36
Hefur margbrotið sig en annars verið við ágæta heilsu Harry Bretaprins mun ferðast frá heimili sínu í Los Angeles á næstu dögum til þess að heimsækja föður sinn, Karl III Bretakonung, sem hefur greinst með krabbamein. Erlent 6.2.2024 06:58
Karl Bretakonungur með krabbamein Karl III Bretakonungur hefur greinst með krabbamein. Erlent 5.2.2024 18:07
Enn og aftur ráðist á Húta í Jemen Bandaríkjaher gerði enn og aftur árásir á bækistöðvar Húta í Jemen í gær. Erlent 5.2.2024 07:58
Nánast allir íbúar Gasa reiða sig á okkur Gréta Gunnarsdóttir, yfirmaður UNRWA í New York, segir starfsemi stofnunarinnar falla um sjálfa sig í lok mánaðarins ef þau ríki sem ætla sér að fresta framlögum til stofnunarinnar láta verða af því. Tvær milljónir manna á Gasa reiða sig á stofnunina en auk þess starfar hún á Vesturbakkanum í Palestínu og í Jórdaníu og Sýrlandi. Innlent 4.2.2024 12:00
Lætur draum látins eiginmanns síns rætast á Íslandi „Ég veit að hann á eftir að vera með okkur í anda,“ segir Sinéad Nolan Martin, 27 ára gömul kona frá Englandi í samtali við Vísi en í næsta mánuði mun hún leggja af stað í 40 kílómetra göngu frá Nesjavöllum til Þingvalla. Þannig hyggst hún heiðra minningu eiginmanns síns, Harry Martin, sem lést úr sjaldgæfu krabbameini árið 2021, einungis 25 ára gamall. Einn stærsti draumur Harry þegar hann var á lífi var að heimsækja Ísland. Lífið 4.2.2024 09:00
Ráðast enn og aftur á Húta Bandaríkin og Bretland gerðu loftárásir á Húta í Jemen í dag í nýjustu bylgju aðgerða til að fella vígahópa sem eru studdir af Írönum. Erlent 3.2.2024 23:58
Írskur þjóðernissinni forsætisráðherra Norður-Írlands í fyrsta sinn Michelle O'Neill, þingkona Sinn Féin, skráði sig í sögubækurnar þegar hún tók við embætti sem forsætisráðherra Norður-Írlands þegar þing kom saman í dag eftir tveggja ára sniðgöngu sameiningarsinna. Erlent 3.2.2024 18:44
Leita enn að manninum sem skvetti sýrunni Breska lögreglan fór inn í og rannsakaði fimm byggingar í leit sinni að Abdul Ezedi, sem skvetti sýru á konu og tvær dætur hennar á miðvikudag. Ekki hefur sést til mannsins síðan á miðvikudagskvöld og liggur móðirin þungt haldin. Erlent 3.2.2024 17:49
Tveir táningar dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á trans stúlku Tveir táningar hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi í Bretlandi fyrir morðið á trans stúlkunni Briönnu Ghey. Saksóknarar hafa lýst morðinu sem því óhugnanlegasta sem þau hafa unnið við og dómari segir trans hatur hafi drifið þau til glæpsins. Erlent 3.2.2024 00:15
Móðurinni haldið sofandi Móðurinni sem varð fyrir því að sýru var skvett framan í hana í London á miðvikudagskvöld er haldið sofandi. Hún er alvarlega slösuð. Dætur hennar tvær sem einnig urðu fyrir árásinni eru ekki eins hætt komnar. Erlent 2.2.2024 16:02
Þolinmæði Netflix sögð við það að þrjóta Harry Bretaprins og Meghan Markle eru sögð eyða tíma sínum í það þessa dagana að koma í veg fyrir að forsvarsmenn Netflix streymisveitunnar rifti ríflegum samningi sínum við hjónin. Lífið 2.2.2024 11:00
Leita manns sem skvetti eiturefnum framan í mæðgur Lögreglan í London leitar árásarmanns sem talinn er hafa skvett eiturefnum framan í 31 árs gamla konu og tvær dætur hennar, átta og þriggja ára, í suðurhluta borgarinnar í gærkvöldi. Fólk sem kom konunni til aðstoðar hlaut brunasár í kjölfarið. Erlent 1.2.2024 15:06
Með lásboga, hníf, sverð og öxi og í skotheldu vesti Maður sem skotinn var af lögregluþjónum í Lundúnum í morgun var vopnaður lásboga, hníf, sverði og öxi. Þar að auki var hann klæddur skotheldu vesti og hótaði hann íbúum húss í Southwark. Erlent 30.1.2024 21:03
Maður með lásboga skotinn til bana Maður með lásboga var skotinn til bana af lögreglu í suðurhluta London í Bretlandi í morgun. Maðurinn var á fertugsaldri. Erlent 30.1.2024 10:30
Amazon hættir við kaup á framleiðanda Roomba Amazon hefur hætt við kaup á snjallryksuguframleiðandanum iRobot. Ákvörðunin liggur fyrir örfáum dögum eftir að fréttir bárust af því að Evrópusambandið hygðist ekki veita fyrirtækinu leyfi fyrir kaupunum. Viðskipti erlent 29.1.2024 15:19
Fimmtán og sextán ára drengir létust í stunguárás í Bristol Tveir drengir, fimmtán og sextán ára, voru stungnir til bana í borginni Bristol í Bretlandi í gærkvöldi. Erlent 28.1.2024 17:02
Færeyingar vonast eftir hlutdeild í olíuvinnslu Færeyingar sjá tækifæri til að fá hlutdeild í gríðarmiklum umsvifum sem fylgja munu fyrirhugaðri olíu- og gasvinnslu á breska Rosebank-svæðinu. Svæðið er um 130 kílómetra norðvestur af Hjaltlandseyjum en aðeins fimmtán kílómetra austan við lögsögumörk Færeyja. Mun styttra er á svæðið frá Færeyjum heldur en frá Aberdeen, helstu olíuþjónustumiðstöð Bretlandseyja. Viðskipti erlent 28.1.2024 07:07
Olíuflutningaskip í ljósum logum eftir loftárás Húta Breskt olíuflutningaskip stendur í ljósum logum í Adenflóa eftir að Hútar skutu eldflaug að því í gærkvöldi. Árásin er samkvæmt Hútum viðbragð við auknum árásum Breta og Bandaríkjamanna á Jemen síðastliðnar vikur. Erlent 27.1.2024 10:31
Ekki talin hafa byrlað vinnufélögunum Viagra Sextíu og tveggja ára gömul ræstingarkona er ekki talin hafa byrlað vinnufélögum sínum með Viagra töflum, líkt og henni hafði verið gefið af sök. Þetta er niðurstaða dómstóls í Bretlandi. Erlent 25.1.2024 22:27
Börn geti ekki leikið sér nógu mikið úti Börn og ungmenni í Bretlandi verða fyrir mikilli heilsufarsskerðingu þar sem þeim stendur ekki til boða að leika sér úti í sama mæli og áður í landinu. Hagsmunasamtök segja bresk stjórnvöld ekki horfa til mikilvægi þessa þegar kemur að skipulagsmálum. Erlent 23.1.2024 10:47
Réðust aftur gegn Hútum í Jemen í nótt Bandaríkjamenn og Bretar skutu aftur á skotmörk í Jemen sem þeir telja tengjast Hútum. Í tilkynningu frá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í Pentagon í gær kom fram að skotið hefði verið á átta skotmörk. Erlent 23.1.2024 06:23
Nýfætt barn fannst í innkaupapoka í London Nýfætt stúlkubarn fannst pakkað inn í handklæði í innkaupapoka í austurhluta Lundúna. Barninu heilsast vel á sjúkrahúsi þökk sé hundaeiganda sem fann það og hélt á því hita. Leit að móðurinni stendur yfir. Erlent 19.1.2024 14:20
Einu skrefi nær því að senda hælisleitendur til Rúanda Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, er einu skrefi nær því að tryggja flutning hælisleitenda til Rúanda, á meðan þeir bíða efnislegrar meðferðar sinna mála í Bretlandi. Frumvarp þess efnis var samþykkt í neðri deild breska þingsins í gær eftir misheppnaða tilraun samflokksmanna Sunaks til uppreisnar. Erlent 18.1.2024 07:41