Fréttir
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 334 ›
Fjöldamorðingja leitað í Frakklandi Fjórir eru látnir eftir að byssumaður á vespu eða mótorhjóli hóf skothríð við gyðingaskóla í borginni Toulouse í Frakklandi í gærmorgun. Þrjú börn létust og eitt er alvarlega sært. Viðtæk leit hefur verið gerð að manninum. Erlent 19.3.2012 21:51
Hljóðupptökur úr Landsdómi verða gerðar opinberar Samkvæmt ákvörðun Landsdóms og með samþykki málsaðila verður veittur aðgangur að hljóðritunum af munnlegum skýrslum ákærða og vitna, sem gefnar voru við aðalmeðferð málsins, svo og að hljóðritunum frá munnlegum flutningi þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsdómi. Innlent 16.3.2012 15:17
Treystu ekki Kaupþingi Framkvæmdastjóri alþjóðamarkaðssviðs Seðlabanka Íslands íslensku bankana hafa verið mjög meðvitaða um þann vanda sem vofði yfir þeim á árinu 2008. Viðskipti innlent 10.3.2012 09:23
Taldi að með því að taka yfir Glitni myndi ríkið fella alla bankana Tryggvi Þór Herbertsson, sem var efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde frá ágúst og fram í miðjan október 2008, var mjög á móti Glitnisleiðinni svokölluðu og ræddi tillögur um endurskipulagningu og sölu eigna við bankana í ágúst 2008. Þetta kom fram fyrir Landsdómi í gær. Viðskipti innlent 10.3.2012 09:24
Segir Geir ekki hafa haft beina aðkomu að Icesave-málinu Bolli Þór Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, svaraði aðspurður að það hefði aldrei verið farið fram á aðkomu Geirs H. Haarde að Icesave-málinu þegar unnið var að því að koma reikningunum í dótturfélag í Bretlandi. Þessu svaraði hann í Landsdómi þegar Andri Árnason spurði hvort það hefði verið farið fram á að Geir hefði afskipti af málinu. Innlent 7.3.2012 14:39
The Sun í sunnudagsútgáfu: „Keppinautarnir eiga eftir að svitna" Breska síðdegisblaðið The Sun kemur út á morgun í fyrsta sinn í sunnudagsútgáfu, sem í reynd tekur við af sunnudagsblaðinu News of the World, sem lagt var niður síðasta sumar vegna harðrar gagnrýni á vinnubrögð blaðamanna. Erlent 24.2.2012 21:36
Beðið eftir samþykki bankanna Grísk stjórnvöld hafa samþykkt áætlun um skuldbreytingu, sem felur í sér að fjármálafyrirtæki felli niður 53,5 prósent af skuldum gríska ríkisins. Viðskipti erlent 24.2.2012 21:36
Þrjú tilboð í útboð skuldabréfa á Hörpu Þrjár innlendar lánastofnanir skiluðu í gær inn tilboði til að sjá um skuldabréfaútgáfu til að endurfjármagna lántökur vegna byggingar tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Búist er við því að ákvörðun um við hverja þeirra verði samið liggi fyrir í lok næstu viku. Endurfjármögnuninni á að ljúka fyrir mitt þetta ár. Skuldabréfaútgáfan verður um 18,3 milljarðar króna til að hægt verði að endurgreiða sambankalán sem veitt var fyrir byggingu hússins og eigendalán sem íslenska ríkið og Reykjavíkurborg veittu eigenda þess í lok síðasta árs. Viðskipti innlent 24.2.2012 21:35
Uppsögn gæti þurft að bæta Ekki er að merkja ný gögn eða sannleik í nýjasta bréfi stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME) til Gunnars Andersen, forstjóra FME, að mati Skúla Bjarnasonar, lögmanns Gunnars. Viðskipti innlent 24.2.2012 21:36
Telja starfslok notuð til að hækka launin „Hér er augljóslega verið að hækka laun fyrrverandi bæjarstjóra svo laun nýs bæjarstjóra geti tekið mið af þeim hækkunum,“ segir Hafsteinn Karlsson, fulltrúi Samfylkingarinnar, í bókun sem hann lagði fram í bæjarráði Kópavogs á fimmtudag. Innlent 24.2.2012 21:36
Sögð hættuleg neytendum Fyrirtækið Aðföng hefur innkallað eins lítra rjómasprautu af gerðinni Excellent Houseware. Á vef fyrirtækisins segir að í ljós hafi komið að rjómasprautan geti verið hættuleg neytendum. Innlent 24.2.2012 21:36
Seldu í Icelandair fyrir milljarð Þrotabú Glitnis seldi í fyrrakvöld allan hlut sinn í Icelandair Group fyrir 979 milljónir króna. Um er að ræða 3,7 prósenta hlut sem seldur var á genginu 5,37 krónur á hlut. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins keyptu tveir sjóðir í stýringu hjá Stefni, í eigu Arion banka, um þriðjung af þeim hlutum sem seldir voru. Viðskipti innlent 24.2.2012 21:36
Segja blóðprufu ekki henta til greiningar Landlæknir sendi frá sér yfirlýsingu á fimmtudag vegna dreifibréfs sem Framför – krabbameinsfélag karla sendi körlum sem verða fimmtugir á þessu ári. Í bréfinu er mælt með að viðtakandi láti mæla PSA-gildi í blóði sem geti gefið vísbendingar um blöðruhálskrabbamein á frumstigi. Landlæknir varar hins vegar sterklega við að blóðprufan sé notuð í þessum tilgangi. Innlent 24.2.2012 21:37
Ríkisbankar lúti eigendastefnu Eigendastefna ríkisins ætti að ná til fjármálafyrirtækja í eigu hins opinbera og skylda þau þannig til að upplýsa opinberlega um eignir sínar og hvaða stefnu þau hafa um sölu þeirra. Þetta segir starfshópur forsætisráðuneytisins um verklag við einkavæðingu í skýrslu sem lögð var fram á fundi ríkisstjórnarinnar í vikunni. Viðskipti innlent 24.2.2012 21:36
Opna á lyftur Skálafells í dag Stefnt er að því að allar lyftur í Skálafelli verði opnar í dag. Skíðadeild KR hefur náð samningum við stjórn skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu um rekstur Skálafells það sem eftir lifir vetrar. Innlent 24.2.2012 21:36
Leikskólagjöld aftur lækkuð Byggðaráð Vesturbyggðar hefur ákveðið „áherslubreytingar“ í rekstri sveitarfélagsins fyrir árið 2012. Eru þær sagðar gerðar „í ljósi bættrar niðurstöðu í fjárhagsáætlun 2012 vegna niðurfellingar á láni í Landsbanka Íslands vegna stofnfjárbréfakaupa og endurfjármögnunar á lánum sveitarfélagsins“. Innlent 24.2.2012 21:36
Áfengir koffíndrykkir sendir til EFTA-dóms Bann íslenskra stjórnvalda við sölu á áfengum drykkjum með koffíni í vínbúðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) er á leið fyrir EFTA-dómstólinn til að fá úr því skorið hvort það standist ákvæði samningsins um evrópska efnahagssvæðið (EES). Innlent 24.2.2012 21:36
Fjölgar í skipaflota á milli ára Fiskiskipum á skrá Siglingastofnunar fjölgaði um þrjátíu milli áranna 2010 og 2011. Alls voru 1.655 skip á skrá í lok síðasta árs. Fjöldi vélskipa var 764, togarar voru 58 og opnir fiskibátar 833. Innlent 24.2.2012 21:36
Jarðhræringar á yfirborði tunglsins Nýjar myndir úr könnunarfari Bandarísku geimvísindastofnunarinnar (NASA) sýna skýr merki um nýlegar jarðhræringar á yfirborði tunglsins. Erlent 24.2.2012 21:35
Konur og börn flutt frá Homs Konur og börn voru flutt burt frá úthverfi sýrlensku borgarinnar Homs í gær en þá komust starfsmenn Rauða krossins og Rauða hálfmánans á staðinn. Sprengjuregn hefur dunið á hverfinu undanfarið og eru slasaðir blaðamenn meðal þeirra sem bíða flutnings. Erlent 24.2.2012 21:36
Svavar og Helga tilnefnd Svavar Hávarðsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, er tilnefndur til verðlauna Blaðamannafélags Íslands fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins 2011. Tilnefninguna hlýtur Svavar fyrir viðamikla umfjöllun sína um díoxínmengun frá sorpbrennslustöðvum í Skutulsfirði, Vestmannaeyjum og á Kirkjubæjarklaustri. Innlent 24.2.2012 21:36
Óttast að fyrirtæki flýi úr miðborginni Skiptar skoðanir eru um fyrirhugaða hækkun á bílastæðagjöldum í miðborg Reykjavíkur. Fultrúi Sjálfstæðisflokks, sem er í minnihluta, segir hækkunina of bratta og óttast að hún verði til þess að hrekja fyrirtæki úr miðborginni. Formaður umhverfis- og samgönguráðs segir hins vegar að ráðstöfunin sé til þess fallin að bæta flæði í bílastæðamálum og auðvelda akandi gestum miðborgarinnar að fá stæði. Innlent 23.2.2012 21:56
Formaður gagnrýnir vinnubrögð Alþingis Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs, gagnrýnir málatilbúnað Alþingis við að kalla ráðið saman í mars til að bregðast við tillögum þingsins varðandi frumvarp til stjórnskipunarlaga sem lá fyrir í ágúst. Skammur fyrirvari og óskýrt hlutverk vinnufundarins er hluti þeirrar gagnrýni. Innlent 23.2.2012 21:56
Flugmennirnir ráðnir næst WOW air hefur gengið frá ráðningum á flugfreyjum og flugþjónum, en umsóknarfrestur vegna starfa flugstjóra og flugmanna rennur út um næstu mánaðamót. Viðskipti innlent 23.2.2012 21:55
Geir Jón í pólitík Geir Jón Þórisson, lögreglumaður og fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn, gefur kost á sér sem annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Geir Jóni. Kosið verður á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins þann 17. mars. Innlent 23.2.2012 21:56
Fleiri mál vofa yfir Kaupþingsmönnum - fréttaskýring Eiga fleiri dómsmál á hendur fyrrverandi stjórnendum Kaupþings eftir að líta dagsins ljós? Þrátt fyrir að sérstakur saksóknari hafi gefið út ákæru í máli sem kennt er við katarska sjeikinn Al Thani þýðir það ekki að fyrrverandi stjórnendur í Kaupþingi séu komnir fyrir vind í öðrum málum sem hafa verið til rannsóknar hjá embættinu. Viðskipti innlent 23.2.2012 21:56
EFTA mun skera úr um heimildir ÁTVR EFTA-dómstóllinn mun gefa ráðgefandi álit á heimildum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) til að hafna því að taka áfengistegundir í sölu. Áfengisheildsalar hafa deilt hart á stofnunina fyrir að neita að selja áfengistegundir vegna umbúðanna. Innlent 23.2.2012 21:56
Bréf Jóns mögulega refsivert á Íslandi Jón Baldvin Hannibalsson var kærður fyrir kynferðisbrot gagnvart Guðrúnu Harðardóttur, ungri frænku eiginkonu sinnar, árið 2005. Ríkissaksóknari taldi bréf frá Jóni Baldvini til hennar geta fallið undir brot á lögum um blygðunarsemi, en málið var látið niður falla vegna þess að verknaðurinn þótti ekki refsiverður í Venesúela. Sagt er frá málinu í Nýju lífi, sem kom út í gær. Innlent 23.2.2012 21:56
Verulegur ábati er af flugstarfsemi Flugrekstur leiðir af sér verulegan þjóðhagslegan ábata fyrir efnahag Íslands og íslenska borgara, auk þess sem sumir þættir flugrekstrarins eru þess eðlis að ekkert getur komið í þeirra stað og þeir eru algerlega ómissandi fyrir nútímahagkerfi. Þetta er meginniðurstaða nýrrar landsskýrslu Oxford Economics um efnahagslegan ábata af flugrekstri á Íslandi. Viðskipti innlent 23.2.2012 21:56
Sex laxar á hver þúsund tonn Meðafli á laxi á Íslandsmiðum virðist nema um 5 til 6 löxum á hverjar 1.000 lestir sem veiðast af makríl. Rannsóknirnar benda til að laxinn sem veiðist sem meðafli á Íslandsmiðum sé ekki upprunninn á Íslandi. Viðskipti innlent 23.2.2012 21:55
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent