Handbolti

„Held að hann sé hund­fúll að vera ekki í liðinu“

Aron Guðmundsson skrifar
Ísak Steinsson fær tækifærið til þess að spreita sig með íslenska landsliðinu í komandi verkefni liðsins í undankeppni EM. Björgvin Páll situr eftir heima.
Ísak Steinsson fær tækifærið til þess að spreita sig með íslenska landsliðinu í komandi verkefni liðsins í undankeppni EM. Björgvin Páll situr eftir heima. Vísir/Samsett mynd

Markvörðurinn Ísak Steinsson gæti leikið sinn fyrsta A-landsleik í komandi verkefni íslenska karlalandsliðsins í handbolta í undankeppni EM. „Mjög efnilegur markvörður sem mér fannst við þurfa að sýna athygli,“ segir landsliðsþjálfarinn sem telur reynsluboltann Björgvin Pál vera hundfúlan að vera ekki í liðinu.

Eins og rakið var í grein hér á Vísi á dögunum hefur Ísak verið að standa sig vel með norska úrvalsdeildarfélaginu Drammen. Ísak er nítján ára gamall og hefur þegar farið á stórmót fyrir Íslands hönd, með yngri landsliðum. Síðasta sumar var hann í íslenska liðinu sem endaði í 7. sæti á EM U20-landsliða. Hann hefur búið í Noregi nær alla sína ævi en á íslenska móður sem heitir Jenný Rut Sigurgeirsdóttir. Pabbi hans er norskur, Stein Simonsen, og Ísak á tvíburabróðurinn Viljar.

Snorri Steinn vildi gefa honum landsliðsreynslu í komandi verkefni gegn Grikkjum, tveimur leikjum í undankeppni EM í næstu viku. Sjá Ísak í því umhverfi en ítrekaði þó á blaðamannafundinum í gær þegar landsliðshópurinn var opinberaður, að það gerði hann ekki sökum þess að reynsluboltinn Björgvin Páll hafi staðið sig eitthvað illa í síðasta verkefni.

„Hann er búinn æfa með okkur í tvö til þrjú skipti, stóð sig vel með U-20 ára liðinu síðasta sumar og stendur sig vel með sínu liði í Noregi. Er bara efnilegur, mjög efnilegur markvörður sem mér fannst við þurfa að sýna athygli. Koma honum hægt og rólega inn í okkar hluti. Mjaka einhverri reynslu á hann. Það er erfitt í landsliðsbolta. Þetta eru ekki það margir gluggar og leikir.“ 

„Þetta er einn liður í því að auka breiddina, búa til markvörð svo við höfum úr fleiri vopnum að velja þar. En ég ítreka það sem að ég sagði á fundinum að þetta er ekki val af því að ég var eitthvað óánægður með Björgvin í síðasta verkefni. Hann og Viktor Gísli eru enn okkar sterkasta markvarðapar að mínu mati. En ef þú ætlar að hugsa eitthvað lengra fram í tímann þá finnst mér við þurfa að gera svona hluti.“

Björgvin hefur væntanlega sýnt þessu skilning eða hvað?

„Ég held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu ef ég þekki hann rétt. Ég þekki hann mjög vel og það eru fáir meiri keppnismenn en hann. Ef hann er ánægður með það þá erum við á villigötum. Ég vona að menn séu ekki sammála mér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×