Fréttir
208 209 210 211 212 213 214 215 216 … 334 ›
Bandaríkin og Norður-Kórea í sögulegum viðræðum Viðræður eru hafnar á milli erindreka Bandaríkjanna og Norður-Kóreu um að koma á eðlilegum diplómatískum samskiptum á milli ríkjanna tveggja. Fyrsti fundurinn var í dag og er hann sá fyrsti í 50 ár á milli landanna tveggja. Erlent 5.3.2007 23:19
Enn ekki samkomulag um refsiaðgerðir Sendiherrar hjá Sameinuðu þjóðunum funduðu í dag um væntanlegar refsiaðgerðir gegn Íran en samkomulag hefur enn ekki náðst. „Málið hefur verið fært til öryggisráðsins“ sagði aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, eftir fund með Ban Ki-Moon, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Erlent 5.3.2007 23:02
Ætla að rannsaka möttul jarðarinnar Vísindamenn frá háskólanum í Cardiff í Bretlandi lögðu í dag af stað í leiðangur til þess að kanna hafsbotninn á Atlantshafinu en á staðnum sem þeir ætla að skoða vantar jarðskorpuna. Möttull jarðarinnar er þar óvarður en svæðið, sem er mörg þúsund ferkílómetrar að stærð, uppgötvaðist nýlega. Erlent 5.3.2007 22:40
Umferðaróhapp á Sæbraut í kvöld Umferðaróhapp varð á Sæbraut til móts við Aktu Taktu skyndibitastaðinn í kvöld. Slysið var ekki alvarlegt en farþegi í aftursæti í öðrum bílnum slasaðist lítillega. Ökumenn beggja bílanna sluppu ómeiddir. Lögreglan vísar sem stendur umferð af Sæbrautinni inn á Skúlagötuna á meðan hún sinnir störfum sínum. Bílarnir skemmdust eitthvað en ekki er vitað hvort að þeir séu ökufærir. Innlent 5.3.2007 22:23
Veður fer versnandi á Holtavörðuheiði Veður og færð fer versnandi á Holtavörðuheiði og eru ökumenn lítilla bíla beðnir að leggja ekki á heiðina fyrir nóttina. Veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur er lokaður og einnig er varað við snjóflóðahættu á veginum um Óshlíð. Björgunarsveitir voru kallaðar út til þess að aðstoða mann sem hafði fest sig á Steingrímsfjarðarheiði en Vegagerðin hafði varað fólk við að ferðast þar um þar sem þjónustu var hætt klukkan átta í kvöld. Innlent 5.3.2007 22:09
Ofurleiðni er næsta skrefið Hraðlestir sem snerta ekki jörðina, ofurrafgeymar og enn öflugri og kröftugri tölvur eru skammt undan. Efni sem nefnast háhita ofurleiðarar munu gera allt þetta að veruleika í framtíðinni. Viðskipti innlent 5.3.2007 22:02
Reyndu að eyðileggja sönnunargögn Bandarískir hermenn reyndu að uppræta og eyðileggja allar myndir og myndbönd af skotárásinni sem átti sér stað í gær. Í henni létust að minnsta kosti tíu manns. Þetta kom fram á vefsíðu fréttastöðvarinnar Al Jazeera í dag. Erlent 5.3.2007 21:01
Cheney með blóðtappa Læknar í Bandaríkjunum fundu í dag blóðtappa í vinstri fótlegg Dick Cheneys varaforseta Bandaríkjanna. Hann fær lyf til þess að þynna blóðið en verður ekki lagður inn á spítala samkvæmt fregnum frá talsmönnum hans. Erlent 5.3.2007 20:39
Ókeypis hafragrautur handa svöngum nemendum Grunnskóli á Akureyri hefur brotið blað í sögu skóla þar í bæ með því að bjóða öllum nemendum sínum upp á ókeypis hafragraut. Börnin taka árbítnum fagnandi og rennur grauturinn ofan í maga nemenda í stríðum straumum. Innlent 5.3.2007 19:50
Akureyrarbær boðar kennara á sérfund Ríkissáttasemjari hefur ákveðið að funda með kennurum vegna kjaradeilunnar. Akureyrarbær hefur einnig boðað sína kennara á sérfund og er fyrsta sveitarfélagið sem tekur það það skref. Innlent 5.3.2007 19:30
Gera lítið úr ágreiningi Formenn og varaformenn stjórnarflokkanna gerðu lítið úr ágreiningi sínum eftir að hafa verið á fundi í forsætisráðuneytinu í morgun. Engin niðurstaða er enn komin í málið. Innlent 5.3.2007 19:14
Stjórnarandstaðan vill auðlindaákvæði í stjórnarskrá Þingflokkar Samfylkingar, vinstri grænna og frjálslyndra vilja greiða fyrir því að ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum verði tekið upp í stjórnarskrá. Þingflokkarnir samþykkja jafnframt að afgreiðsla frumvarps til nýrra stjórnskipunarlaga, með slíku innihaldi, verði forgangsmál í störfum Alþingis það sem eftir lifir þingtímans. Innlent 5.3.2007 19:00
Átta fórust í flugslysi í Austurríki Átta manns létu lífið þegar lítil eins hreyfils flugvél lenti í árekstri við þyrlu yfir skíðasvæðinu í Zell am See í Austurríki í dag. Sjö voru um borð í þyrlunni en einn í flugvélinni og komst enginn lífs af. Erlent 5.3.2007 18:22
Íslendingar kosta skólamáltíðir í Úganda Íslensk stjórnvöld ætla að kosta skólamáltíðir 65.000 barna á átakasvæðum Norður-Úganda næstu tvö árin. Með ákvörðuninni kemst Ísland í hóp þeirra ríkja sem verja mestu fé til Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Úganda, sé miðað við höfðatölu. Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, heimsótti á dögunum flóttamannabúðir á svæðinu. Innlent 5.3.2007 18:25
Ungdómshúsið rifið Ungdómshúsið, á Norðurbrú í Kaupmannahöfn, var rifið í morgun af grímuklæddum verkamönnum sem óttuðust hefndaraðgerðir mótmælenda. Frekari mótmæli hafa verið boðuð í borginni á næstu dögum. Erlent 5.3.2007 18:16
NATO banar níu almennum borgurum í Afganistan Níu almennir borgarar í norðurhluta Afganistan létu lífið í loftárásum NATO í dag. NATO gerði þá árásir fyrir mistök á íbúðarhúsnæði en þeir töldu að þar hefðu verið hryðjuverkamenn á ferð. Erlent 5.3.2007 17:46
Minna tap hjá Atlantic Petroleum Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum skilaði tapi upp á rúma 8,1 milljón danskra króna, jafnvirði rétt rúmra 96 milljóna íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta er nokkru minna tap en árið áður en þá tapaði félagið tæplega 10,4 milljónum danskra króna, sem jafngildir 123,3 milljónum íslenskra króna. Tap félagsins á fjórða ársfjórðungi í fyrra minnkaði talsvert á milli ára. Viðskipti innlent 5.3.2007 15:57
Lítil breyting á markaði í Bandaríkjunum Fjármálamarkaðir í Bandaríkjunum opnuðu fyrir skömmu. Lækkanir á vísitölum á mörkuðum í Asíu og í Evrópu virðast ekki hafa skilað sér vestur um haf enda hækkuðu helstu vísitölur á bandaríska markaðnum lítillega við opnun markaða. Greinendur eru ekki vissir um hvað dagurinn feli í skauti sér en vísa til orða Henry Paulsons, fjármálaráðherra, sem segist hafa tröllatrú á bandaríska hagkerfinu. Viðskipti erlent 5.3.2007 15:21
Olíuverðslækkanir hafa áhrif í Noregi Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Osló í Noregi hefur ekki farið varhluta af lækkunum á helstu fjármálamörkuðum í Asíu og Evrópu í dag. Inn í spilaði reyndar heimsmarkaðsverð á hráolíu, sem hefur talsverð áhrif inn í norsku kauphölina, en það dró vísitöluna niður um 2,8 prósent. Gengi bréfa í Kauphöll Íslands hefur lítið breyst eftir því sem liðið hefur á daginn. Viðskipti erlent 5.3.2007 13:18
Konur í aðalhlutverki Sendinefndin sem fylgdi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra á ferð hennar um Afríku í síðustu viku var þorra ferðarinnar eingöngu skipuð konum. Ekki eru dæmi um að svo hátt sett sendinefnd hafi verið þannig skipuð. Innlent 5.3.2007 12:30
Lækkanir í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð við opnun Kauphallar Íslands í dag en Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 2,07 prósent það sem af er dags. Þetta er nokkuð í samræmi við gengi á mörkuðum í Evrópu og í Asíu. Gengi kínversku hlutabréfavísitölunnar lækkaði um 3,5 prósent en gengi japönsku Nikkei-hlutabréfavísitölunnar lækkaði um 3,4 prósent í dag. Hún hefur ekki lækkað jafn mikið í níu mánuði. Viðskipti innlent 5.3.2007 10:35
HSBC skilaði methagnaði Alþjóðlegi bankinn HSBC, einn stærsti banki í Evrópu, skilaði 11,5 milljarða punda hagnaði á síðasta ári. Þetta jafngildir rúmum 1.500 milljörðum íslenskra króna sem er fimm prósenta hækkun á milli ára. Þetta er langt yfir væntingum greinenda enda metafkoma í sögu bankans. Á sama tíma varð bankinn að afskrifa um 5,4 milljarða punda á bandaríska fasteignalánamarkaðnum. Viðskipti erlent 5.3.2007 09:59
Stórt vopnabúr í Kaliforníu Slökkviliðsmenn í Kaliforníu í Bandaríkjunum komu niður á milljón skothylki í göngum á einkalóð fyrir helgi. Eldur brenndi hluta þaks af húsinu fyrir ofan og var slökkvilið kallað til. Einhver skotfæri sprungu meðan eldur logaði í húsinu og hitnaði í göngunum. Þar voru, auk skotfæranna, rúm 30 kíló af svörtu byssupúðri, fjölmargar skammbyssur, haglabyssur og árásarrifflar. Erlent 4.3.2007 18:26
Betra að róa menn niður en handtaka þá Lögregla ætti ekki að beita menn, sem ganga berserksgang og eru með óráði, valdi heldur reyna að róa þá. Þetta segir danski réttarmeinafræðingurinn Peter Leth í samtali við fréttaskýringaþáttinn Kompás sem er á dagskrá í kvöld. Þar er fjallað um andlát Jóns Helgasonar, í höndum lögreglu, í lok nóvember á síðasta ári. Innlent 4.3.2007 18:56
Gekk í skrokk á undirmanni sínum Eigandi verktakafyrirtækis er í gæsluvarðhaldi eftir að hafa, síðastliðna nótt, gengið í skrokk á pólskum verkamanni sem vinnur hjá honum. Árásarmaðurinn er nýdæmdur og bíður afplánunar fyrir kynferðisbrot. Verkamaðurinn var ásamt vinnufélögum sínum í gleðskap í gærkvöldi þegar hann tók að syfja og ákvað að leggja sig í bíl fyrirtækisins. Innlent 4.3.2007 18:53
Siv á að segja af sér Heilbrigðisráðherra á að segja af sér, að mati Sigurðar Kára Kristjánssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, vegna hótana ráðherrans um stjórnarslit ef sjálfstæðismenn samþykki ekki að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Hann efast um að sjálfstæðismenn verði við þessari kröfu framsóknarmanna. Heilbrigðisráðherra neitar að tjá sig um yfirlýsingar Sigurðar Kára. Innlent 4.3.2007 18:32
Tollkvótar hækka matarverð Ákvörðun stjórnvalda, um að bjóða upp innflutningskvóta á kjöti og ostum, stuðlar að hærra vöruverði og er andstæð markmiðum ríkisstjórnarinnar um að lækka matarverð. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Dæmi eru um að framleiðendur hafi keypt kvóta til að hindra innflutning og halda verðinu uppi. Innlent 4.3.2007 18:13
Uppörvandi fyrir hægri grænt framboð Gallup-könnun, á fylgi við nýtt framboð umhverfisverndarsinna, sýnir að það hefur hljómgrunn meðal þjóðarinnar, segir Ómar Ragnarsson sem verður á lista flokksins í Reykjavík ásamt Margréti Sverrisdóttur og Jakobi Frímanni Magnússyni. Listinn býður fram í öllum kjördæmum fyrir kosningarnar í vor. Innlent 4.3.2007 18:24
Þingkosningar í Eistlandi Búist er við að sitjandi ríkisstjórn mið- og hægriflokkar í Eistlandi haldi velli í þingkosningum í landinu í dag. Kosningarnar eru þær elleftu frá því landið fékk sjálfstæði árið 1991. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma og verður lokað klukkan sex. Búist er við að úrslit liggi fyrir klukkan tíu í kvöld. Erlent 4.3.2007 14:49
Vel fylgst með tunglmyrkva Tunglmyrkva varð vart víða um heim í gærkvöldi og nótt. Stjörnufræðingar og -skoðarar fylgdust áhugasamir með þegar tunglið dökknaði, roðnaði og varð síðan gráleitt og appelsínugult. Þetta var í fyrsta sinn síðan í lok október 2004 sem tunglmyrkvi sást frá Reykjavík. Innlent 4.3.2007 12:10