Fréttir
181 182 183 184 185 186 187 188 189 … 334 ›
Bandaríkin hafa ekki greitt tíu milljónir dala Bandarísk yfirvöld hafa ekki greitt Hitaveitu Suðurnesja þær tíu milljónir dala sem samið var um við brottflutning varnarliðsins. Málið hefur strandað í bandaríska kerfinu. Í íslenska kerfinu gæti vatnslögn til Vestmannaeyja, fyrir milljarð króna, einnig strandað. Innlent 2.4.2007 19:24
Loftferðareftirlit NATO í bígerð Formaður hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins býst við að fyrir páska muni liggja fyrir áætlun um loftferðaeftirlit við Ísland. Vonast er til að það geti hafist eigi síðar en í sumarlok. Innlent 2.4.2007 18:51
Urmull af aprílgöbbum Fjölmargir hlupu apríl í gær enda voru aprílgöbb fjölmiðlanna einstaklega fjölbreytt að þessu sinni. Hér á Stöð 2 aðstoðaði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, við sprellið og er óhætt að segja að hann hafi átt stórleik í hlutverki sínu. Innlent 2.4.2007 18:24
Leitað að vistmanni á Sogni Lögreglan á Selfossi hefur kallað út björgunarsveitir til að leita að vistmanni á Sogni. Maðurinn er ekki talinn hættulegur. Hann hljóp til fjalla norðan við vistheimilið upp úr klukkan 16 í dag. Hann er illa búinn, en blautt er og þoka, og lítið skyggni á leitarsvæðinu. Maðurinn 35 ára og grannvaxinn. Hann er klæddur blárri hettupeysu, gallabuxum og hvítum íþróttaskóm. Innlent 2.4.2007 18:40
Búið að skipa svokallaða Breiðavíkurnefnd Forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem ætlað er að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn. Í fyrstu er nefndinni ætlað að kanna starfsemi Breiðavíkur á árunum 1950 til 1980. Meðal þess sem nefndinni er ætlað að skoða er í hvaða mæli börnin, sem vistuð voru á Breiðavík, hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi á meðan á dvölinni stóð og leggja fram tillögur til stjórnvalda um frekari viðbrögð. Nefndin hefur til fyrsta janúar, á næsta ári, til að skila inn skýrslu til forsætisráðherra. Innlent 2.4.2007 18:37
Árásarpiltarnir ákærðir á næstunni Kæra á hendur piltunum þremur, sem frömdu hrottalega líkamsárás í Garðarstræti á nýársnótt, verður send til ákærusviðs lögreglu á næstunni. Piltarnir, sem allir eru ungir að árum, geta átt yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsi. Innlent 2.4.2007 18:30
Sigrún Eldjárn hlaut Sögusteininn 2007 Sigrún Eldjárn er fyrsti verðlaunahafi barnabókaverðlaunanna Sögusteins árið 2007. Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn í dag á alþjóðlegum degi barnabókarinnar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálráðherra afhenti Sigrúnu verðlaunin, en það var einróma álit dómnefndar að hún hlyti verðlaunin að þessu sinni. Innlent 2.4.2007 18:07
Kosið um staðsetningu, ekki framtíð álframleiðslu Greiningardeild Kaupþing segir að íbúakosningin í Hafnarfirði um helgina hafi snúist um staðsetningu álvers, en ekki framtíð álframleiðslu hér á landi. Umframorka sem ætluð hafi verið til stærra álvers í Straumsvík geti nýst annars staðar. Þar komi nýtt álver í Helguvík sterklega til greina. Innlent 2.4.2007 17:38
Hráolíuverð lækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði í dag eftir nokkra hagnaðartöku fjárfesta á helstu mörkuðum. Olíuverðið er þó enn yfir 65 bandaríkjadölum á tunnu. Verðið tók kipp uppá við eftir að sjóliðar voru handteknir á Persaflóa á föstudaginn fyrir rúmri viku. Viðskipti erlent 2.4.2007 16:33
Eimskip opnar nýja skrifstofu á Ítalíu Eimskip opnar aðra skrifstofu sína í Genúa á Ítalíu í dag, 2. apríl. Opnun skrifstofunnar er liður í markvissri uppbyggingu Eimskips í Evrópu og miðast að því að styrkja enn frekar stöðu félagsins á ítalska markaðnum, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 2.4.2007 16:24
Viðsnúningur hjá Nýsi Fasteignafélagið Nýsir hf og dótturfélög þess skiluðu 450,6 milljóna króna tapi á síðasta ári samanborið við 1.623 milljóna króna hagnað árið 2005. Helsta ástæðan eru gengisbreytingar og mikill vaxtakostnaður af framtíðarfjárfestingum á Íslandi og erlendis sem ekki eru farnar að skila fullri arðsemi, að því er segir í uppgjöri félagsins. Viðskipti innlent 2.4.2007 12:56
Allir sjóliðarnir sagðir hafa játað Allir bresku sjóliðarnir sem Íranar hafa í haldi sínu hafa nú viðurkennt að hafa siglt inn í lögsögu ríkisins í óleyfi, að því er þarlendir fjölmiðlar herma. Íranska ríkissjónvarpið birti í gærkvöld og í morgun nýjar myndir af sjóliðunum þar sem þeir játa brot sín. Erlent 2.4.2007 12:26
Heilu þorpin fóru á kaf Að minnsta kosti þrettán fórust þegar risavaxin flóðbylgja sem myndaðist í kjölfar neðansjávarskjálfta skall á Salómonseyjum í Kyrrahafi í gærkvöld. Fjölda fólks er saknað og því er óttast að mun fleiri hafi látist vegna flóðbylgjunnar en fyrstu upplýsingar benda til. Erlent 2.4.2007 12:24
Minna tap hjá Pliva Króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva tapaði rétt tæpum 35,2 milljónum dala, jafnvirði 2,3 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Til samanburðar nam tap fyrirtækisins tæpum 92 milljónum dala, tæplega 6,1 milljarði króna, árið á undan. Bandaríska lyfjafyrirtækið Barr keypti Pliva síðastliðið haust á 2,4 milljarða bandaríkjadali eða 170,5 milljarða íslenskra króna eftir harða samkeppni við Actavis um félagið. Viðskipti erlent 2.4.2007 11:41
Tilboð í Sainsbury fyrir vikulok Fjárfestahópurinn CVC mun leggja fram að minnsta kosti 10 milljarða punda, jafnvirði um 1.300 milljarða íslenskra króna, yfirtökutilboð í bresku verslanakeðjuna Sainbury fyrir lok þessarar viku. Þetta staðhæfðu breskir fjölmiðlar um helgina. Viðskipti erlent 1.4.2007 23:43
Indverjar hækka stýrivexti Seðlabanki Indlands ákvað undir lok síðustu viku að hækka stýrivexti um fjórðung úr prósentustigi og standa vextirnir nú í 7,75 prósentum. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem bankinn hækkar stýrivexti í þeim tilgangi að halda aftur af verðbólgu. Stýrivextir á Indlandi hafa ekki verið hærri í tæp fjögur og hálft ár. Viðskipti erlent 1.4.2007 23:23
Veltan í Kauphöllinni nam 350 milljörðum Heildarvelta í Kauphöll Íslands í nýliðnum mánuði nam 350 milljörðum króna og nemur heildarvelta ársins nú 1.329 milljörðum. Þetta er þriggja prósenta aukning frá sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Hlutabréfavelta jókst um 18 prósent á milli ára en velta á skuldabréfamarkaði dróst saman. Viðskipti innlent 1.4.2007 23:10
Engin áhrif á virkjunaráform Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, segir niðurstöðu kosninga um stækkun álversins í Straumsvík geta haft skammtímaáhrif á framgang virkjunaráætlana fyrirtækisins í Þjórsá. Innlent 1.4.2007 22:07
Sautján sendiherrar á kjörtímabilinu Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka hafa sautján nýir sendiherrar verið skipaðir í embætti á vegum utanríkisráðuneytisins og tvö ný sendiráð opnuð. Framlag úr ríkissjóði til sendiráða Íslands hefur hækkað nokkuð til samræmis við það. Innlent 1.4.2007 17:25
Byrgismálið til ríkissaksóknara Rannsókn á meintum misbeitingarbrotum Guðmundar Jónssonar í Byrginu er á lokastigi og verður málið sent til Ríkissaksóknara á næstu dögum. Í það minnsta átta konur lögðu inn kæru á hendur Guðmundi en málið hefur verið til rannsóknar hjá Sýslumanninum á Selfossi. Innlent 1.4.2007 19:13
Iðnaðarráðherra hefur áhyggjur af efnahagsmálum Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, hefur áhyggjur af því að efnahagslífið í landinu líði fyrir ákvörðun Hafnfirðinga um að hafna stækkun álversins. Hann segir óheppilegt að kosningar af þessu tagi beinist gegn einu fyrirtæki og vanda verði betur til verka ef færa eigi valdið til íbúanna. Innlent 1.4.2007 18:59
Grjóti og flugeldum kastað að sendiráðinu Vonir standa til að deilan, vegna bresku sjóliðanna sem Íranar hafa í haldi sínu, leysist á næstu dögum eftir að greint var frá því að beinar viðræður á milli ríkjanna standi yfir. Mótmælendur köstuðu grjóti og flugeldum að breska sendiráðinu í Teheran í dag. Erlent 1.4.2007 17:22
Mikill áhugi á þátttöku í varaliðinu Færri komust að en vildu þegar fyrstu úrtökuprófin, fyrir nýtt varalið lögreglunnar, fóru fram um helgina. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að í ljósi viðtakanna verði að hraða byggingu nýs lögregluskóla á Keflavíkurflugvelli og jafnframt kemur til álita að fjölga verulega í liðinu. Innlent 1.4.2007 17:33
Blátt áfram fagna lögum um fyrningarfrest Blátt áfram fagnar samstöðu stjórnmálaflokka í málefnum um lengingu á fyrningarfresti í alvarlegum kynferðisbrotum gegn börnum. Lögin voru samþykkt 16. mars síðastliðinn. Blátt áfram safnaði 23 þúsund undirskriftum á þremur árum sem sendar voru til ráðherra og þingmanna. Innlent 1.4.2007 14:10
Sprengt í Breska sendiráðinu í Teheran Nokkrar sprengingar heyrðust í sendiráði Bretlands í Teheran nú rétt í þessu. Reuters fréttastofan skýrir frá þessu. Vitni heyrðu nokkrar minni sprengingar og sáu reyk inn í sendiráðsbyggingunni. Sprengjurnar sprungu á sama tíma og mótmæli fór fram vegna sjóliðanna sem eru í haldi í Íran. Eitt vitni sagði átta heimagerðar sprengjur hafa sprungið. Erlent 1.4.2007 12:54
Framkoma Írana ófyrirgefanleg George Bush forseti Bandaríkjanna segir Írana hafa hagað sér með óafsakanlegum hætti í deilunni um bresku sjóliðanna fimmtán sem þeir hafa í haldi sínu. Á meðan saka írönsk stjórnvöld Breta um að ganga fram af hroka og eigingirni. Erlent 1.4.2007 11:53
Uppstokkun í rúmönsku ríkisstjórninni Calin Tariceanu forsætisráðherra Rúmeníu stokkaði upp í tveggja ára ríkisstjórn sinni í dag. Ráðherrar úr demokrataflokknum í stjórnarsamstarfi misstu ráðherrastóla sína. Frjálslyndi flokkur Tariceanu hafði þrýst á þrjá ráðherrana að segja af sér. Stjórnmálaskýrendur töldu afsögn ráðherranna geta splundrað stjórnarsamstarfi flokkanna þriggja. Erlent 1.4.2007 12:11
Málflutningur frjálslyndra ekki grundvöllur fyrir samstarfi Varaformenn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar segja málflutning frjálslyndra í málefnum innflytjenda ekki góðan grundvöll fyrir samstarfi. Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstri grænna útilokar þó ekki samstarf við flokkinn. Þetta kemur fram í svari Katrínar við opnu bréfi Sigurðar Ólafssonar alþjóðastjórnmálafræðings. Innlent 1.4.2007 11:37
Rússar banna smásala af erlendum uppruna Rússar hafa bannað útlendingum að vinna sem smásalar í verslunum og á mörkuðum með nýjum lögum sem tóku gildi í dag. Um 20 þúsund útlendingar vinna á mörkuðum í Moskvu. Hefð hefur verið fyrir því frá tímum Sovétríkjanna. Vladimir Putin forseti Rússlands segir lögin séu sett þar sem hagsmunir Rússa séu í húfi. Erlent 1.4.2007 11:13
Enn deilt um sjóliðana George Bush Bandaríkjaforseti fordæmdi í gær framgöngu íranskra stjórnvalda í deilunni vegna bresku sjóliðanna fimmtán sem þeir hafa í haldi sínu og sagði hana með öllu óafskanlega. Fyrr í gær fullyrti Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti hið gagnstæða og sagði að bresk stjórnvöld gengju fram af hroka og eigingirni. Erlent 1.4.2007 09:55