Bernard Cribbins látinn Breski leikarinn Bernard Cribbins er látinn, 93 ára að aldri. Á umfangsmiklum leiklistarferli sem náði yfir sjö áratugi var hann meðal annars þekktur fyrir að fara með hlutverk Tom Campbell í kvikmynd um Doctor Who og Wilfred Mott í þáttaröðinni um doktorinn fræga. Lífið 28. júlí 2022 11:36
Höfundur Gaia-kenningarinnar er látinn Breski vísindamaðurinn James Lovelock sem þekktastur er fyrir Gaia-kenninguna lést í gær. Hann fæddist þann 26. júlí árið 1908 og lést því á 103 ára afmælisdaginn. Erlent 27. júlí 2022 14:50
Paul Sorvino er látinn Leikarinn Paul Sorvino lést í gær, 83 ára að aldri. Hann var einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í stórmyndinni Goodfellas. Lífið 26. júlí 2022 11:19
Kristbjörn Albertsson er látinn Kristbjörn Albertsson, fyrrum körfuboltamaður, körfuboltadómari og formaður KKÍ, er látinn. Kristbjörn lést eftir baráttu við krabbamein þann 18. júlí síðastliðinn en Kristbjörn hefði orðið 78 ára þann 6. ágúst næstkomandi. Körfubolti 26. júlí 2022 09:31
The Omen og Titanic-leikarinn David Warner er látinn Leikarinn David Warner er látinn, áttatíu ára að aldri. Warner er þekktastur fyrir hlutverk sín í myndum á borð við The Omen, Titanic, Tron og sjónvarpsmyndinni A Christmas Carol. Lífið 26. júlí 2022 08:35
Nóbelsverðlaunahafinn David Trimble er látinn Norður-Írinn David Trimble er látinn. Trimble hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1998 ásamt John Hume fyrir þeirra þátttöku í gerð Good Friday-sáttmálans. Erlent 26. júlí 2022 08:11
Minnast fyrrum eiganda Liverpool David Moores, fyrrum eigandi enska knattspyrnufélagsins Liverpool, lést á föstudag. Félagið og fyrrum þjálfarar liðsins hafa heiðrað minningu hans. Fótbolti 24. júlí 2022 11:30
Elvis leikkonan Shonka Dukure fannst látin á heimili sínu Leik- og tónlistarkonan Shonka Dukureh, sem fór með hlutverk Big Mama Thornton í nýrri mynd um Elvis, fannst látin á heimili sínu í gær. Lífið 22. júlí 2022 13:19
Uwe Seeler látinn Þýski framherjinn Uwe Seeler er látinn, 85 ára að aldri. Hans er minnst sem eins af allra merkustu íþróttamönnum í sögu þýsku þjóðarinnar. Fótbolti 21. júlí 2022 20:31
Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur er látinn Gísli Arnór Víkingsson, sjávarlíffræðingur og einn helsti hvalasérfræðingur landsins er látinn, 65 ára að aldri. Innlent 20. júlí 2022 09:52
Myndhöggvarinn Claes Oldenburg er látinn Claes Oldenburg, myndhöggvari þekktur fyrir að gera stóra skúlptúra af hversdagslegum hlutum, er látinn. Hann lést í gær á heimili sínu, 93 ára að aldri, eftir að hafa dottið illa nýlega. Erlent 19. júlí 2022 09:56
Einn handritshöfunda Big Mouth látinn Grínistinn og leikarinn Jak Knight er látinn. Knight er þekktastur fyrir að hafa verið einn af handritshöfundum teiknimyndaþáttanna Big Mouth sem eru afar vinsælir á Netflix. Lífið 16. júlí 2022 22:47
Ivana Trump er látin Ivana Trump, fyrrverandi eiginkona Donald Trump, er látin, 73 ára að aldri. Með Donald eignaðist hún þrjú börn, þau Donald yngri, Ivanka og Eric. Erlent 14. júlí 2022 19:55
Höfundur James Bond-stefsins er látinn Monty Norman, höfundur James Bond-stefsins, er látinn 94 ára að aldri. Hann lést í dag eftir skömm veikindi samkvæmt tilkynningu á vefsíðu hans. Lífið 11. júlí 2022 17:49
Ingvar Lundberg í Súellen látinn Ingvar Lundberg, hljómborðsleikari í hljómsveitinni Súellen er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu sveitarinnar á Facebook. Innlent 9. júlí 2022 17:17
Tony Sirico er látinn Bandaríski leikarinn Tony Sirico er látinn. Sirico var hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Peter Paul „Paulie Walnuts“ Gualtieri í þáttunum The Sopranos. Sirico var 79 ára gamall er hann lést. Lífið 9. júlí 2022 07:38
Játar að hafa myrt Abe Tetsuya Yamagami hefur játað að hafa myrt Shinzo Abe, fyrrum forsætisráðherra Japan. Yamagami skaut Abe með haglabyssu í nótt þegar hann var að flytja stuðningsræðu fyrir frambjóðanda í borginni Nara. Erlent 8. júlí 2022 14:55
Fyrrverandi forseti Angóla til 38 ára látinn José Eduardo dos Santos, fyrrverandi forseti Angóla, er látinn, 79 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í Barcelona eftir landvinn veikindi. Erlent 8. júlí 2022 13:13
Skapari Yu-Gi-Oh! fannst látinn Kazuki Takahashi, skapari Yu-Gi-Oh! teiknimyndasagnanna, fannst látinn í gær. Lík hans fannst við strendur Okinawa-eyju í Japan en hann hafði verið að snorkla. Erlent 8. júlí 2022 08:51
Shinzo Abe skotinn til bana Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japan, hefur látist af sárum sínum eftir að hann var skotinn í bakið í nótt. Abe var að flytja ræðu í Nara í vestur Japan í nótt þegar skotmaður skaut hann með haglabyssu og hæfði hann í bakið. Abe var fluttur á spítala í kjölfar árásinnar en nú hefur japanka ríkisútvarpið NHK staðfest að hann sé látinn. Erlent 8. júlí 2022 06:12
Stórleikarinn James Caan er látinn Stórleikarinn James Caan er látinn. Fjölskylda hans tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum um klukkan fimm í dag, að íslenskum tíma, en hann var 82 ára gamall og átti fimm börn, þar á meðal leikarann Scott Caan. Lífið 7. júlí 2022 17:26
Framkvæmdastjóri OPEC látinn Mohammad Barkindo, framkvæmdastjóri Samtaka olíuframleiðsluríkja, OPEC, er látinn, 63 ára að aldri. Nígeríumaðurinn Barkindo hafði gegnt stöðunni frá árinu 2016, en hann hugðist láta af störfum síðar í þessum mánuði. Erlent 6. júlí 2022 07:38
Örn Steinsen er látinn Örn Steinsen, fyrrverandi framkvæmdastjóri KR, er látinn, 82 ára að aldri. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. júlí síðastliðinn. Sport 5. júlí 2022 11:31
Árni Gunnarsson látinn Árni Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður og blaðamaður, er látinn 82 ára að aldri. Árni lést aðfaranótt föstudags. Innlent 2. júlí 2022 17:34
Joe Turkel er látinn Bandaríski leikarinn Joe Turkel er látinn 94 ára að aldri. Turkel er hvað þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndunum The Shining og Blade Runner. Lífið 2. júlí 2022 16:58
Andy Goram fyrrum landsliðsmarkvörður Skota látinn Andy Goram sem varði mark Skota á EM ´92 og ´96 og HM ´90 er látinn úr krabbameini einungis 58 ára að aldri. Fótbolti 2. júlí 2022 13:30
Milljónir syrgja einn þekktasta og besta Minecraft-spilara heims Milljónir tölvuleikaaðdáenda út um allan heim syrgja nú einn þekktasta og besta Minecraft-leikmann heims. Alex, eða Technoblade eins og hann kallaði sig í netheimum, lést úr krabbameini í gær. Hann var aðeins 23 ára gamall. Erlent 1. júlí 2022 12:50
Minecraft-spilarinn Technoblade er látinn Bandaríski Minecraft-spilarinn sem gekk undir nafninu Technoblade er látinn, 23 ára að aldri. Technoblade starfrækti gríðarvinsæla rás á YouTube þar sem hann birti Minecraft-myndbönd, en alls var hann með um tíu milljónir fylgjenda. Leikjavísir 1. júlí 2022 09:23
Skapari grænlenska fánans fallinn frá Grænlenski listamaðurinn og þingmaðurinn fyrrverandi, Thue Christiansen, er látinn, 82 ára að aldri. Christiansen hannaði grænlenska fánann sem samþykktur var árið 1985. Erlent 27. júní 2022 14:07
Róbert Downey látinn Róbert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson er látinn 76 ára að aldri. Innlent 24. júní 2022 11:07