Lífið

Nichelle Nichols er látin

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Nichelle Nichols heillsar að vúlkönskum sið.
Nichelle Nichols heillsar að vúlkönskum sið. Getty/Gabe Ginsberg

Leikkonan Nichelle Nichols er látin 89 ára að aldri. Hún er þekktust fyrir að hafa leikið liðsforingjann Nyota Uhura í upprunalegu Star Trek þáttunum á árunum 1966 til 1969 og svo í sex myndum um áhöfn USS Enterprise.

Nichols var brautryðjandi fyrir svartar konur í Bandaríkjunum þar sem hún var ein af fyrstu svörtu konunum í Bandaríkjunum til að leika stórt hlutverk í bandarísku sjónvarpi.

Nichols var brautryðjandi fyrir svartar konur í bandarísku sjónvarpi.Getty

Auk þess að leika í sjónvarpsþáttunum vinsælu lék hún í fjölda annarra mynda yfir margra áratuga tímabil.

Þá vann hún hjá NASA frá 1977 til 2015 við að hvetja konur og fólk í minnihlutahópum til að sækja um hjá stofnunni.

Sonur Nichols, Kyle Johnson, greindi frá því á Facebook að móðir hans hafi látist í gærkvöldi í Silver City í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. 

Hann segir Nichols hafa látist af náttúrulegum orsökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.