Diddy á sjálfsmorðsvakt Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. september 2024 17:08 Mörg mál er varða meint kynferðisbrot Sean „Diddy“ Combs eru til meðferðar hjá dómstólum vestanhafs. Getty Tónlistarmaðurinn Diddy hefur verið settur á sjálfsmorðsvakt á meðan hann bíður réttarhalda. Hann hefur verið ákærður fyrir skipulagða glæpastarfsemi og mansal og gæti átt yfir höfði sér fimmtán ára fangelsisdóm.
Diddy, sem heitir fullu nafni Sean Combs, var handtekinn á mánudag og ákærður fyrir að hafa frá árinu 2008 verið hluti af glæpasamtökum sem báru ábyrgð á mansali, nauðungarvinnu, mannráni, íkveikjum, mútuþægni og að hindra framgang réttvísinnar. Saksóknarar sökuðu rapparann um að nota peninga sína og völd til að skipuleggja „niðrandi og á köflum ofbeldisfullar kynlífsathafnir sem kölluðust ,freak-offs'.“ Hann hafi leikstýrt og framleitt margra klukkutíma og margra daga upptökur af slíkum athöfnum þar sem hann hafi hótað og þvingað konur til að uppfylla kynferðislegar þarfir sínar. Fulltrúar Alríkislögreglunnar sögðust hafa gert meira en þúsund flöskur af barnaolíu og öðrum sleipiefnum upptækar af heimilum rapparans. Hlakkar til að hreinsa nafn sitt Þingfesting í málinu fór fram í alríkisdómstóli í New York á þriðjudag þar sem dómarinn Robyn Tarnofsky neitaði honum um lausn úr varðhaldi gegn tryggingu. Eftir þingfestinguna sagði Marc Agnofilo, lögfræðingur Diddy, við blaðamenn fyrir utan dómshúsið að Diddy hefði beðið eftir þessum degi. „Hann hefur hlakkað til að hreinsa nafn sitt, og ætlar að gera það,“ sagði lögfræðingurinn. Agnofilo áfrýjaði ákvörðun dómarans á miðvikudag um að halda Diddy í varðhaldi en dómarinn staðfesti fyrri ákvörðun. Samkvæmt heimildarmönnum NBC hefur rapparinn verið settur á sjálfsmorðsvakt og fylgjast verðir Metropolitan varðhaldsstöðvarinnar (e. Metropolitan Detention Center) náið með honum. Talsmaður Diddy sagði sömuleiðis við NBC að hann væri hraustur, sterkur og einbeittur að því að vinna málið.
Bandaríkin Tónlist Erlend sakamál Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Ákærur gefnar út og Sean Combs handtekinn í New York Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Diddy eða Puff Daddy, var handtekinn á Manhattan í New York í gærkvöldi eftir að ákærur voru gefnar út á hendur honum. 17. september 2024 06:53 1,4 milljarðar króna fyrir að mæta ekki fyrir rétt Bandaríski rapparinn Sean „Diddy“ Combs var í dag dæmdur til þess að greiða meintum brotaþola 100 milljónir dala, um 1,4 milljarða króna, vegna kynferðisbrots fyrir 27 árum síðan. 11. september 2024 00:02 Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Telur fleiri falla á nýju bílprófi Innlent Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Innlent Arnar Þór á leið í nýjan flokk Innlent Senda svifsprengjur fyrir F-16 Erlent „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Innlent Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn Innlent Diddy á sjálfsmorðsvakt Erlent Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsmorðsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Sjá meira
Ákærur gefnar út og Sean Combs handtekinn í New York Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Diddy eða Puff Daddy, var handtekinn á Manhattan í New York í gærkvöldi eftir að ákærur voru gefnar út á hendur honum. 17. september 2024 06:53
1,4 milljarðar króna fyrir að mæta ekki fyrir rétt Bandaríski rapparinn Sean „Diddy“ Combs var í dag dæmdur til þess að greiða meintum brotaþola 100 milljónir dala, um 1,4 milljarða króna, vegna kynferðisbrots fyrir 27 árum síðan. 11. september 2024 00:02
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent