Innlent

Rúta valt við Kirkju­bæjar­klaustur

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Slysið varð um klukkan 18:26. 
Slysið varð um klukkan 18:26.  Vísir/Vilhelm

Rúta fór út af vegi við Kirkjubæjarklaustur og valt á hliðina rétt í þessu. 

Ellefu manns voru í rútunni auk bílstjóra. Tilkynning vegna slyssins barst lögreglu klukkan 18:26.

Garðar Már Garðarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi staðfestir þetta í samtali við Vísi. Hann segir jafnframt minniháttar meiðsl hafa orðið en að einn virðist slasaður.

Viðbragðsaðilar eru á leið á vettvang.

Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×