Innlent

Fjórar hænur drápust í elds­voða

Bjarki Sigurðsson skrifar
Átta hænur voru inni í kofanum.
Átta hænur voru inni í kofanum. Brunavarnir Skagafjarðar

Eldur kom upp í hænsnakofa á Sauðárkróki rétt eftir miðnætti í nótt. Átta hænur voru í kofanum og drápust fjórar þeirra. Vegfarendur komu í veg fyrir að tjónið varð ekki meira. 

Greint er frá þessu í Facebook-færslu Brunavarna Skagafjarðar. Þar segir að snör viðbrögð vegfarenda og húseigenda hafi orðið til þess að tjónið varð ekki meira en orðið var. Timburpallur og íbúðarhús sem liggja samhliða kofanum sluppu með skrekkinn.

Slökkviliðið mætti svo á staðinn, slökkti eldinn og gekk úr skugga um að ekki væri að finna frekari glæður í kofanum. Ástæðu eldsins má líklega rekja til bilunar í ljósabúnaði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×