Innlent

Helsta valdasetur fyrri alda er orðið höfuðból hestamennsku

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá Hólum í Hjaltadal.
Frá Hólum í Hjaltadal. Sigurjón Ólason

„Ég hef stundum sagt að mér finnist Norðlendingar svolítið kaþólskari í hugsun en Sunnlendingar,“ segir Solveig Lára Guðmundsdóttur, fráfarandi vígslubiskup á Hólum, þegar hún fræðir okkur um biskupssetrið og sögu biskupanna. Þannig haldi Norðlendingar mikið upp á Jón Arason og hafi reist turn Hóladómkirkju til minningar um síðasta kaþólska biskupinn fyrir siðaskipti.

Hún er meðal viðmælenda í þættinum Um land allt á Stöð 2, sem fjallar um Hóla í Hjaltadal. Biskupsstóllinn var um aldir helsta valda- og menningarsetur landsins, höfuðstaður Norðurlands og vettvangur nokkurra af stærstu viðburðum Íslandssögunnar. Þar var fyrsta prentsmiðja landsins og bændaskóli sem núna hefur þróast upp í háskóla.

Solveig Lára Guðmundsdóttir, fráfarandi vígslubiskup, lýsir kynnum sínum af Hólum, sýnir hún okkur Hóladómkirkju og segir frá helstu dýrgripum hennar.Sigurjón Ólason

„Við sjáum hér til dæmis tvo af alstærstu viðburðum Íslands gerast,“ segir Skúli Skúlason, prófessor og fyrrverandi rektor. Og nefnir annarsvegar þegar Íslendingar fóru undir Noregskonung árið 1262; það tengist mikið viðburðum í Skagafirði á Sturlungaöld, sem snertu biskupsetrið á Hólum. Hins vegar séu það siðaskiptin 1550 og barátta Jóns Arasonar í raun fyrir sjálfstæði þegar Danakonungur hafi tekið yfir.

Skúli Skúlason, prófessor og fyrrverandi rektor á Hólum.Sigurjón Ólason

„Það eru mjög margir Íslendingar sem tala um að fara heim að Hólum. Ég held að það sé mjög mörgum sem þykir vænt um Hóla,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, sem segir skólann hafa markað sér sérstöðu með kennslu í hestafræði, ferðamáladeild og fiskeldis- og fiskalíffræðideild.

Nemendur á fyrsta ári í reiðtúr.Sigurjón Ólason

Hólar eru Mekka íslenska hestsins, segir hin norska Elisabeth Jansen, en hún stýrir hestafræðideild Hólaskóla. Sem eini skólinn í heiminum sem býður upp á háskólanám í íslenska hestinum, með þrjár reiðhallir, stærsta hesthús landsins, mikla sögu hrossaræktar og sögusetur íslenska hestsins geta Hólar vel talist höfuðból hestamennskunnar hérlendis.

Við kynnumst jafnframt mannlífi á Hólum, hittum nemendur og skoðum bjórsetur Íslands. Þátturinn um Hóla er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld, mánudagskvöld, klukkan 19:10. Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins:


Tengdar fréttir

Þurfa að kunna íslensku til að komast í hestafræði á Hólum

Um fjörutíu prósent nemenda sem komast að í hestafræði við Háskólann á Hólum eru útlendingar, og það þrátt fyrir að það sé inntökuskilyrði að geta talað íslensku. Rektor segir skólann útskrifa að minnsta kosti tíu sendiherra á hverju vori.

Nemendur flykkjast heim að Hólum að læra fiskeldi

Sprenging hefur orðið í fjölda nemenda í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum og stunda núna um áttatíu manns nám í faginu. Samtímis fer þar fram rannsóknar- og kynbótastarf í fiskeldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×