Innlent

Ein­hver heimili enn keyrð á varaafli

Árni Sæberg skrifar
Nokkur fjöldi rafmagnsstaura brotnaði í óveðrinu.
Nokkur fjöldi rafmagnsstaura brotnaði í óveðrinu. RARIK

Nokkrir viðskiptavinir RARIK á Austurlandi fá sem stendur afhent rafmagn með smærri varaflsvélum meðan verið er að gera við rafmagnslínur sem skemmdust í óveðrinu sem hófst á sunnudag. 

Í fréttatilkynningu frá RARIK segir að tugir staura hafi brotnað og nokkrar skemmdir hafi orðið á línum víðsvegar á Austfjörðum í miklu óveðri sem hófst sunnudaginn 19. janúar. 

Verra en búist var við

Framkvæmdaflokkar fyrirtækisins hafi verið í viðbragsstöðu og aukamannskapur hafi verið kallaður út vegna veðurspár frá sunnudeginum en vegna mikillar ofankomu með tilheyrandi ófærð og slæmu skyggni hafi þeim ekki orðið hægt um vik þegar mikil ísing fór að fella línur og staura. 

Veðurspá hefði gert ráð fyrir að ísing yrði mun ofar en raunin varð. RARIK hafi verið í nánu samstarfi við almannavarnir og Vegagerðina um að koma starfsfólki örugglega milli svæða eftir því sem þörf krafði og björgunarsveitir og verktakar hafi einnig aðstoðað.

Sex bilanir hafi orðið á Austurlandi í þessu áhlaupi og allar hafi þær orðið á stöðum sem treysta á afhendingu rafmagns um loftlínur.

Mega búast við truflunum

Nokkrir viðskiptavinir fái sem stendur afhent rafmagn með smærri varaflsvélum meðan verið er að gera við þær línur sem fóru. Þetta eigi við í dreifbýli í sunnanverðum Fáskrúðsfirði, Berufirði, Stöðvarfirði og Lóni. 

Nokkrir afhendingarstaðir þar sem ekki er föst búseta séu án rafmagns og það sé samkvæmt samkomulagi við þá viðskiptavini. Viðskiptavinir sem fá rafmagn með varaafli geti búist við smávægilegum truflunum þegar viðgerðum líkur og þeir verða tengdir dreifikerfinu aftur.

„RARIK vill þakka öllum íbúum og fyrirtækjum á svæðinu fyrir þolinmæði og skilning og senda sérstakar þakkir til verktaka og björgunarsveita sem aðstoðuðu okkur í þessu verkefni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×